Harmonikublaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 20
VETRARSTARF F.H.U.R.
Starfsemi FHUR hefur verið með venjubundnum hætti á liðnum vetri,
með dansleikjahaldi, árshátíð, þorrablóti ogað ógleymdum skemmti-
fundum.
Fyrsti dansleikur vetrarins var haldinn þann sjötta október og að
venju í Breiðfirðingabúð. Góð aðsókn var og hið ágætasta ball.
Þeir tónlistarmenn sem sáu um að leika fyrir dansi á þessum fyrsta
dansleikvoru á harmoniku Gunnar Kvaran, Reynir Jónasson, Sveinn
Sigurjónsson, Ómar Skarphéðinsson, Garðar Einarsson og Jón Ingi
Júlíusson. Með þeim léku á gítar og bassa Helgi Kristjánsson og
Jónas Pétur Bjarnason og trommararnir Sveinn Ingi Sigurjónsson,
Þórir Magnússon og Guðmundur Steingrímsson.
Þeirri nýbreytni sem tekin var upp á fyrra starfsári, að hefja dansleiki
kl. 20:30 í stað 21:30 og Ijúka þeim kl. 01:00 í stað 02:00 var fram
haldið og er ekki annað að heyra en að almenn sátt ríki um það
fyrirkomulag. Þaraf leiðandi voru þessar tímasetningar við hafðar
á öllum dansleikjum félagsins ívetur. Sami hátturvar ogvið hafður
á árshátíð og þorrablóti félagsins, húsið opnað kl. 18:00 í stað 19:00
Frá Þorrablótinu 23 febrúar. Og þau dönsuðu öll þarna í dynjandi galsa.
og dansleikjum lauk kl. 01:00 í stað 02:00. Finnst mér reynslan af
þessu fyrirkomulagi sýna, að fleiri haldi út og þar af leiðandi meira
fjörallttilenda.
Næsti viðburður á vegum félagsins var síðan árshátíð FHUR og Þjóð-
dansafélags Reykjavíkur. Hún var haldin í Breiðfirðingabúð 24.
nóvember. Tókst hún vel og var ágætlega sótt. Maturinn kom að
þessu sinni frá Hótel íslandi og komu upp smávægilegir hnökrar á
framreiðslu, en leystust þó farsællega áður en lauk. Eitt aðkeypt
skemmtiatriði var, en það voru tvö danspör frá „Háskóladansinum”
sem komu og sýndu nokkra dansa, við góðar undirtektir. Hljómsveit
Einars Guðmundssonar kom norðan frá Akureyri og lék fyrir dansi,
til eins og áður sagði kl. 01:00 um nóttina og var enginn svikinn af
þeirri tónlist.
Nýja árið hófst með dansleik í Breiðfirðingabúð þann 6. janúar. Þar
léku fyrir dansi Vindbelgirnir, þ.e. þeir félagar Friðjón Hallgrímsson
og Hilmar Hjartarson harmonikuleikarar, einnig harmonikuleikar-
arnir Sveinn Sigurjónsson og Þorieifur Finnsson ásamt söngkonunni
Láru Björgu Jónsdóttur. Með þeim léku síðan Helgi E. Kristjánsson
á gítar, Hreinn Vilhjálmsson á bassa, Kjartan Jónsson á gítar og
síðast en ekki síst okkar frábæri trommari Guðmundur Steingríms-
son (Papa jass) sem stóð vaktina allt ballið til enda.
Þá var komið að þorrablóti FHUR og Þjóðdansafélagsins. Það var að
venju haldið í Breiðfirðingabúð og var vel sótt. Snæddur var hefð-
bundinn þorramatur, mismunandi súr og kæstur og þótti góður.
Skemmtatriði voru heimafengin og komu fram þau Pátl S. Elíasson,
Emil Hjartarson, Friðjón Hallgrímsson og Sigríður Sigurðardóttir og
höfðu þau íframmi lesturýmiss konaroggamanmál. Varð þessekki
20
vart að samkomugestir legðu á flótta undan því sem þar var fram
borið, þannigað líta verðursvo á að vel hafi tekisttil. Að borðhaldi
loknu tók við dansleikur sem stóð til kl. 01:00, þar sem harmoniku-
leikararnir Sveinn Sigurjónsson, Þorleifur Finnsson og Vindbelgirnir,
þ.e. Friðjón Hallgrímsson og Hilmar Hjartarson léku fyrir dansi og
þeim til fulltingis voru Hreinn Vilhjálmsson bassaleikari, Helgi Krist-
jánsson gítarleikari og Guðmundur Steingrímsson trommuleikari.
Þann 23. mars var síðan dansleikur í Breiðfirðingabúð, þar sem
harmonikuleikararnir Gunnar Kvaran, Reynir Jónasson, Garðar
Olgeirsson og Sveinn Sigurjónsson léku fyrir dansi, ásamt áður
nefndum Hreini Vilhjálmssyni, Helga Kristjánssyni og Guðmundi
Steingrímssyni.
Síðasti dansleikur vetrarins var síðan að venju í Breiðfirðingabúð
27. apríl, að kvöldi kjördags. Þótti það velvið hæfi aðfagna (nú eða
harma) kosningaúrslitum með góðum harmonikudansleik. Spilarar
voru Ingvar Hólmgeirsson, Vindbelgirnir og Gunnar Kvaran nikku-
spilararognutu þeir fulltingis HreinsVilhjálmssonar, Helga Kristjáns-
sonar, Kjartans Jónssonar og Guðmundar Steingrímssonar.
Skemmtifundir voru 3 á vetrinum, haldnir í Iðnó. Sá fyrsti þann 14.
október. Þar komu fram Reynir Jónasson, sem lék einleik, Páll S.
Elíasson og Þorvaldur Jónsson dúett, Hilmar Hjartarson og Friðjón
Hallgrímsson dúett, Þorleifur Finnsson einleikogsíðasten ekki síst
var algerlega óundirbúið atriði, þar sem kempurnar þeir Baldur
Geirmundsson og Árni ísleifs stigu á svið og tóku nokkur gömul og
góð á harmoniku og píanó. Var hrein unun á að hlýða hvernig þessir
vel sjóuðu kappar stilltu saman strengi sína, algerlega óæft. Var
þeim líka vel fagnað.
Tíunda febrúar var svo annar skemmtifundur vetrarins og að vanda
í Iðnó.
Þar komu fram Katla Steinþórsdóttir, Anna Lísa Þorkelsdóttir, Run-
ólfur Bjarki Arnarson, Bergmann Óli Aðalsteinsson. Allt nemendur
Helgu Kristbjargar Guðmundsdóttur. Auk þeirra Ásta Soffía Þorgeirs-
dóttir, Flemming Viðar Valmundsson og Jónas Ásgeir Ásgeirsson.
Allterþetta ungtfólksem mikils er vænst af íframtíðinni.
Einnig kom hljómsveit félagsins fram á fundinum og má með sanni
segja að hér hafi hvert rúm verið vel skipað.
Síðasti skemmtifundurinn á starfsárinu var síðan þann 5. maí í Iðnó.
Á þessum fundi lék hljómsveit félagsins undir stjórn Reynis Sigurðs-
sonar. Þá léku nafnarnir, þeirReynirJónasson ogReynirSigurðsson,
Frá Breiðfirðingabúð 23. mars. HljómsveitGarðars Olgeirssonarátti ekki ívandræðum
að halda dansgólfinufullu. HelgiE. Kristjánsson á gítar, Guðmundur Steingrímsson,
Papa jass á trommur, Hreinn Vilhjálmsson á bassa. Myndir: Sigurður Harðarson
ásamt Þorsteini Rúnari Þorsteinssyni á gítar, Tómasi Leó Halldórssyni
á bassa og Eggerti Kristinssyni á trommur. Haukur Hlíðberg lék listir
sínar og það gerði einnig Harmonikumeistarinn 2013, Bergmann
Óli Aðalsteinsson. FormaðurFHURtóklagið ásamtformanni skemmti-
nefndar og Margrét Arnardóttir sló síðan botn í skemmtifundinn.