Harmonikublaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 17

Harmonikublaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 17
HARMONIKUDAGURINN A BREIÐUMYRI Harmonikudagurinn 2013 var haldinn á Breiðumýri laugardaginn 4. maí og var þar hátíðarbragur þvf þar spiluðu ungir harmonikuleikarar við mjög góðar undirtektir gesta. Að þessu sinni komu nem- endurnir frá Hafralækjarskóla, Öxarfjarðarskóla og frá Tónlistarskóla Húsavíkur og spiluðu þeir bæði einir sér og með kennurum sínum. Frá Hafralækjarskóla kom Hermann Hólmgeirsson ogfrá Öxarfjarðarskóla komu systkinin Margrét Eva og Jón Alexander, en frá Húsavík komu Anna Eir Pálsdóttir og Kristinn Ásbjörnsson. Dagskráin hófst kl. 14 með því að Sigurður Hall- marsson spilaði þrjú lög, en síðan spilaði unga fólkið hvert af öðru og hlaut það mjög mikið klapp fyrirgóðan harmonikuieik. Þeimtilaðstoðarvoru tónlistarkennararnir Árni Sigurbjarnarson og KnúturEmilJónasson. Að þvíloknu spiluðu nokkrir reyndari harmonikuleikarar, en síðan var boðið upp á veislukaffi. Undir borðum fengu krakkarnir viðurkenningarskjölfrá Harmonikufélagi Þingey- inga og afhentu þeir Jón Helgi Jóhannsson og Þór- grímur Björnsson, stjórnarmenn í HÞ, skjölin og þökkuðu þessu unga hæfileikafólki fyrir frábært framlag á harmonikudeginum. Eftir kaffihlé var svo spilað áfram og voru allir sammála um að dagurinn hefði verið skemmti- legur og það hefði verið sérlega ánægjulegt að sjá unga fólkið spila. Atli Vigfússon Frá vinstri: Kristinn Ásbjörnsson, Hermann Hólmgeirsson, Anna Eir Pálsdóttir, Margrét Eva Artúrs og Helgudóttir, jón Alexander H. Artúrsson. Myndina tókAtli Vigfússon 17

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.