Harmonikublaðið - 01.05.2014, Side 2
Ávarp formanns
Kæru harmonikuunnendur.
Eg vil byrja á því að óska ykkur öllum gleðilegs
sumars. Vetrarstarfið í aðildarfélögunum er að
baki og ég hef spurnir af því að það hafi verið
fjörugt og skemmtilegt. Það er ósk mín að það
sama gildi fyrir komandi sumar, harmo-
nikuhátíðarnar verði fjölbreyttar og skemmti-
legar og aðsókn að þeim verði
ekki lakari en undanfarin ár.
I ár er landsmótsár og verður
Landsmót harmonikuunnenda
haldið að Laugum í Reykjadal
í Þingeyjarsýslu, dagana 3.
- 5. júlí 2014. Eyfirðingar og
Þingeyingar standa sameigin-
lega að mótinu að þessu sinni
og er ég þess fullviss að
vandað verður til alls er
varðar landsmótið. I sam-
tölum mínum við landsmóts-
nefnd hefur allur undirbúningur gengið vel og
verður gaman að mæta á landsmótið og njóta
alls þess er þar verður boðið upp á.
Af starfi stjórnar sambandsins er það helst að
frétta að fúndað hefur verið reglulega og þau
mál er upp hafa komið verið rædd og tekið á
málum hafi þess þurft. Það verður þó að segja
að starfsemi sambandsins er með allt öðrum
hætti þegar um er að ræða landsmótsár. Þá eru
engar æfingabúðir fyrir ungmennin okkar og
harmonikukeppni ekki haldin og það minnkar
álag á stjórnarmenn til muna.
Stjórnin hefur þó unnið ötullega að því að
framfylgja samþykkt síðasta aðalfundar um að
efna til hópferðar til Italíu og var sendur út
tölvupóstur á alla formenn aðildarfélaganna
og þeir beðnir að kynna þessa ferð fyrir sínum
félögum og kanna hug manna til þessarar
ferðar. Um 20 manns hafa nú þegar bókað sig
í ferðina, sem tekur 10 daga og er brottför
fyrirhuguð frá Keflavík 11. september og
komið heim 21. september
2014. Ef áhugi er enn fyrir
hendi hjá einhverjum sem vill
komast í þessa ferð, er hægt
að hafa samband við Elísabetu
H. Einarsdóttur, varafor-
mann.
Byrjað verður á að skoða Róm
og þaðan verður haldið til
Mekka harmonikunnar, Castel-
fidardo og síðustu dögunum
verður eytt á sólarströnd
Rimini.
Einnig tók stjórn sambandsins þá ákvörðun
að einhenda sér í útgáfu á harmonikudiski sem
ætlaður er fyrir alla leikskóla landsins, foreldra
og afa og ömmur. Eg greindi frá þessu í síðasta
blaði en vil koma á framfæri frekari fréttum af
disknum. Salan á þessum diski hefúr gengið
mjög vel og hafa nær allir leikskólar landsins
keypt diskinn og ekki annað að heyra en að
allir séu ánægðir með hann. Diskinn er enn
hægt að kaupa hjá Elísabetu H. Einarsdóttur,
Guðrúnu Guðjónsdóttur og Gunnari Kvaran,
formanni sambandsins.
Harmonikudagurinn verður haldinn um allt
land laugardaginn 3. maí 2014 og er það von
stjórnar að sem flest aðildarfélög sambandsins
sjái sér fært að spila á torgum úti þennan dag
og þannig stuðla að sem bestri kynningu á
þessu frábæra hljóðfæri.
Aðalfundur sambandsins verður haldinn í
Hveragerði síðustu helgina í september 2014
og mun Harmonikufélag Selfoss sjá um allan
undirbúning fyrir þennan fúnd. Nánari upp-
lýsingar verða sendar öllum formönnum
aðildarfélaga sambandsins við fyrsta tækifæri.
Að lokum er það ósk mín að komandi sumar
verði okkur öllum til ánægju og gleði og ekki
má gleyma að allir harmonikuunnendur setja
stefnuna á Landsmótið að Laugum í Reykjadal.
Gleðilegt sumar,
Gunnar Ó. Kvaran, formaður
Harmonikusafn
Ásgeirs S. Sigurðssonar
býður öldruðum harmonikum farsælt ævikvöld á
Byggðasafni Vestfjarða.
Sími: 456 3485 og 844 0172.
Netfang: assigu@internet.is Veffang: www.nedsti.is
Harmonikuviðgerðir
Tek að mér viðgerðir á harmonikum
Gunnar Kvaran sími: 824-7610
2