Harmonikublaðið - 01.05.2014, Page 3

Harmonikublaðið - 01.05.2014, Page 3
Ritstj óraspj all Harmonikublaðið ISSN 1670-200X Ábyrgðarmaður: Friðjón Hallgrimsson FLspigerdi 2 108 Kiykjavík Simi 696 6422, fridjonoggudtiy@internet.is Prentvinnsla: Fíéraðsprent', Egilsstöðum; nmnv.heradsprent.is Netfang: print@heradsprent.is Forsíða: Frá Faugum í Reykjada!, þar sem Landsmót harmonikuunnenda fer fram i byrjun júlí. Meðal efnis: - Frá Harmonikufélagi Héraðsbúa - Jólaball Harmonikufélags Þingeyinga - Gömlu dansarnir - Fréttir frá Félagi harmonikuunnenda í Reykjavík - Afmælistónleikar Karls jónatanssonar - Hvað ungur nemur gamall temur - 12. landsmót S.Í.H.U. - Lag blaðsins - Grettir Björnsson minningartónleikar - Vorferð Harmonikufélags Þingeyinga og Kveðanda - Combo Smárinn - Örvar Kristjánsson minning - Frostpinnar að vestan -1 þá gömlu góðu daga - Útskriftartónleikar Auglýsingaverð: Baksíða 1/1 síða kr. 25.500 1/2 síða kr. 16.500 Intisíður 1/1 síða kr. 20.500 1 /2 síða kr. 12.500 1/4 síða kr. 7.500 1/8 síða kr. 5.000 Smáauglýsingar kr. 5.000 Skilafrestur efnis íyrir næsta blað er 1. september 2014. Nú er landsmótsár. Það eru þrjú ár liðin frá síðasta landsmóti sem fram fór á Hellu. Það er ætíð tilhlökkunarefni þegar farið er á lands- mót. Tilhlökkunin felst í lönguninni til að hitta gamla vini og kunningja, hlusta á skemmtilega harmonikuleikara og jafnvel spila með þeim, taka nokkru dansspor og ýmsu fleiru. Þá eru margir spenntir fyrir, hvað hljómsveitir félag- anna bjóða uppá. Lengi hefur það verið skemmtilegur siður að bjóða erlendum góðum harmonikuleikara á landsmótið. Fyrstir til að taka þetta upp voru að sjálfsögðu Þingeyingar, á þriðja landsmótinu sumarið 1990 og gesturinn sem kom fram einmitt á Laugum var Svíinn Nils Flácke. Þetta voru tímamót. Síðan hefur þessi siður haldist. Við minnumst mikilla snillinga sem komið hafa fram á landsmótum. Upp í hugann skjótast nöfn eins og Tatu Kantomaa, Vadim og Yuri Fjodorov, Annika Andersson, Alf Hágedal og fleiri. Það hefur nær undantekningarlaust tekist vel til, þegar þessir gestir hafa verið valdir. Þeir hafa almennt gert sér grein fyrir hvað fólkið vildi heyra og dagskráin verið í þeim anda. Þá er það stórmerkilegt, að í kjölfarið af landsmótum, áttu nokkrir af þessum harmonikuleikurum eftir að eyða mörgum árum hér á landi við kennslu og auðguðu mikið í leiðinni harmoniku- lífið hér. Gesturinn á Laugum í sumar er Norðmaðurinn Hávard Svendsrud. Það er ástæða til bjartsýni varðandi þá tónleika. Hávard er sérlega glæsi- legur harmonikuleikari og algjörlega jafnvígur á alla tónlist hvort sem hún er frá átjándu eða tuttugustu og fyrstu öldinni. Það er ekki öllum gefið að skemmta fólki á harmonikumóti. Það getur verið tvennt ólíkt að vera góður harmon- ikuleikari og góður harmonikuleikari. Eg er hins vegar sannfærður um að gestir komandi landsmóts verða ekki fyrir vonbrigðum með Hávard Svendsrud. Friðjón Hallgrímsson í fréttum var þetta helst Stjórn S.f.H.U. nöfn, netföng, heimilisföng og símanúmer: Formaður: Gunnar Kvaran alf7@mi.is Álfalandi 7, 108 Reykjavík. S: 568-3670 / 824-7610 Varaformaður: Elísabet Halldóra Einarsdóttir elisabete@heima.is Suðurhúsum 6, 112 Reykjavík S: 587-3179 / 864-8539 Ritari: Sigrún B. Halldórsdóttir sigrunogvilli@gmail.com Breiðabólstað, 371 Búðardalur. S: 434-1207/861-5998 Gjaldkeri: Sigurður Eymundsson sigeym@talnet.is Suðurlandsbraut 60, 108 Reykjavík S: 471-1333/893-3639 Meðstjórnandi: Frosti Gunnarsson hansdottir@simnet.is Vallargötu 3, 420 Súðavík. S: 456-4928/895-1119 Varamaður: Aðalsteinn Isfjörð unnas@simnet.is Forsæti lOb, 550 Sauðárkrókur S: 464-1541 /894-1541 Varamaður: Filippía Sigurjónsdóttir 8208834@internet.is Hólatúni 16, 600 Akureyri S: 462-5534 / 820-8834 Gestur landsmóts harmonikuunnenda að þessu sinni verður norski harmonikusnill- ingurinn Hávard Svendsrud, sem hefur um árabil verið meðal bestu harmonikuleikara Norðmanna. Mánudaginn 17. mars hélt þriðji klúbburinn kvöldskemmtun í Djúpinu við Hafnarstræti. Nokkrum dögum áður sendi Hermóður Alfreðsson bréf á valinn hóp, að vanda, sem síðan mætti í Djúpinu. Óvenjufátt var að þessu sinni, auk þess sem skortur á harmon- ikum kom í veg fyrir fjölbreyttan tónlistar- flutning. Hermóður hélt sínu striki, hélt sitt happdrætti og rabbaði við hópinn. Það er von á góðum gesti á harmonikuhá- tíðina að Varmalandi í sumar. Það er Emil Johansen sem mætir með fríðu föruneyti, því með honum í för verða Linda konan hans, dæturnar Olivía og Emma og sonurinn Sander Emil. Þau munu dvelja á Varmalandi, en ferðast síðan um landið að mótinu loknu. Dæturnar eru ellefu og fjórtán ára og Ieika báðar á harmoniku. Emil mun halda tónleika að Varmalandi, auk þess að leika á dansleikjum helgarinnar, en hann er talinn einn af bestu harmonikuleikurum Norðmanna. Emil hefur tvisvar haldið tónleika á Islandi áður, en það var í Grafarvogskirkju og á árshátíð FHUR í nóvember 2005. Jónas Asgeir Ásgeirsson, sem lauk brottfarar- prófi frá tónlistarskólanum síðastliðið ár, mun hefja nám við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn í haust, eftir að hafa stað- ist inntökupróf í mars. Tveir aðrir Islendingar nema harmonikuleik við sama skóla, Skag- firðingurinn Jón Þorsteinn Reynisson og Isfirðingurinn Helga Kristbjörg Guðmunds- dóttir, sem er þar í meistaranámi. Harmonikufélag Héraðsbúa heldur upp á 30 ára afrnæii sitt um þessar mundir og var því fagnað í Valaskjálf laugardaginn 3. maí. Félagið var stofnað 30. mars 1984. Frekar verður greint frá hátíðarhöldunum í septem- berblaðinu. í grein í desemberblaðinu láðist að geta þess í umfjöllun um starf FHUR, að Bragi Hlíð- berg lék fyrir gesti á árshátið félagsins, sem haldin var daginn fyrir 90 ára afmælið hans. Það er nú orðið ljóst að í sumar verða sjö harmonikumót á Islandi. Selfyssingar ríða fyrstir á vaðið í Básnum um Hvítasunnuhelg- ina. Næstu helgi þar á effir hittast harmon- ikuunnendur í Ásbyrgi í Miðfirði. Þá er komið að Húnaveri um Jónsmessuhelgina. Tveimur vikum síðar tekur landsmótið við og viku eftir landsmót er komið að Fannahlíð undir Akra- fjalli. Enn eru tvö eftir, Breiðamýri á hefð- bundnum tíma, síðustu helgina í júlí og að lokum Varmaland um verslunarmannahelg- ina. Sú breyting er orðin að Héraðsbúar hafa ákveðið að hætta með sitt harmonikumót, sem þeir hafa staðið fyrir síðan 2001, en blása þess í stað til stórdansleiks í Valaskjálf síðustu helgina í ágúst. Allir eru þessir atburðir aug- lýstir í blaðinu. 3

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.