Harmonikublaðið - 01.05.2014, Side 4
Frá Harmonikufélagi Héraðsbúa
Lífið er búið að vera ljúft hérna fyrir austan í
vetur.
Vetrarstarflð hófst á dansleik félagsins þann 14.
september í Valaskjálf. Þótti hann ágætlega
heppnaður. Þar léku fyrir dansi þeir Guttormur
Sigfússon, Baldur Pálmason, Sigurður
Eymundsson, Gylfi Björnsson og Jón Sigfússon
á harmonikur. Auk þeirra léku Andrés Einars-
son á gítar og Pálmi Stefánsson á bassa.
við að spila á árlegum dansleik H.F.Þ. á Staðar-
borg í Breiðdal þann 12. april. Þarna var að
sjálfsögðu um að ræða hina árlegu austurferð
Harmonikufélags Þingeyinga og Kvæðafélags-
ins Kveðanda. Var auðvelt að verða við þeirri
beiðni. Biðum við Sveinn Vilhjálmsson, ásamt
frúm, Þingeyinganna við Olís í Fellabæ og
stukkum um borð á tilsettum tíma. Ferðin í
Breiðdalinn gekk vel, þó við þyrftum að fara
sem gerð voru góð skil við almenna ánægju
ferðalanganna. Hófst nú þáttur Kveðanda. Að
honum loknum var síðan dansað til kl. 02:45.
Auk okkar Sveins, sem áður er nefndur, komu
þeir Gylfi Björnsson og Pálmi Stefánsson á Hofl,
auk Andrésar Einarssonar, á eigin vegum síðar
um kvöidið og spiluðu á ballinu með okkur.
Pálmi á trommur, Andrés á gítar og Gylfi á
harmoniku. Þeir fóru síðan til síns heima að
“ Vtnir menn” fiuí vinstri: fínUlnr PtHsson,
Pnhni Stefnnsson, Signrdnr Eymnndsson,
Andrés Einnrsson, dylfi fíjörnsson
$
Þá tók við vetrarstarfið. Hluti af því er að spila
vikulega á miðvikudagskvöldum fyrir eldri
borgara. Annað kvöldið er dansað í Hlims-
dölum, sem er félagsaðstaða eldri borgara á
Héraði. Hitt kvöldið fóru skemmtanirnar fram
í Kaffi Egilsstöðum til áramóta, en eftir það í
Bókakaffi í Fellabæ.
Sigurður Leósson frá Harmonikufélagi Þingey-
inga hringdi í mig í vetur og falaðist eftir aðstoð
fjarðarleiðina, þar eð Breiðdalsheiði var ófær.
Okkur var fljótlega ljóst að nokkrir hagyrðingar
voru um borð enda var látið fjúka í kviðlingum
á leiðinni. Þegar komið var í Staðarborg var
farið að setja upp hljómflutningsgræjurnar
undir styrkri stjórn Gríms Vilhjálmssonar á
Rauðá.
Nú var degi tekið að halla og kominn matur á
hótelinu. Var boðið upp á dýrindis lambasteik,
dansleik loknum. Við hin dvöldum á hótelinu
í góðu yfirlæti. Á sunnudagsmorguninn var svo
haldið heim á leið í fylgd skemmtilegra Þingey-
inga. Kviðlingarnir héldu áfram að sveima um
rútuna. Við H.F.H. fólk fórum úr rútunni við
Söluskálann á Egilsstöðum eftir skemmtilega
ferð. Kærar þakkir fyrir okkur.
Jón Sigfusson
Ljósmyndir: Jón Sigfusson
' 'fr ’f ■ r.ft ■ ■
- IRi IIIii!
$
4