Harmonikublaðið - 01.05.2014, Qupperneq 10
Afmælistónleikar Karls Jónatanssonar í Salnum
Laugardaginn 22. febrúar sl. fóru fram harmon-
ikutónleikar í Salnum í Kópavogi. Tilefnið var
níutíu ára afmæli. Það voru gamlir nemendur,
vinir og velunnarar Karls Jónatanssonar, sem
gengust fýrir tónleikunum, en þar komu fram
margir af þekktustu harmonikuleikurum lands-
ins og heiðruðu þennan aldna meistara, sem
kennt hefur fleiri Islendingum en tölu verður
á komið.
Það var vel mætt í Salinn þennan laugardag-
seftirmiðdag og öll 300 sætin seld þegar tón-
leikarnir hófust. Guðrún Guðjónsdóttir gamall
nemandi og góðvinur Kalla setti tónleikana með
nokkrum vel völdum orðum til afmælisbarnsins
Það var vel mxtt í Salnum
og gaf Ólafi Þ. Kristjánssyni orðið, sem tók
undir árnaðaróskirnar. Þá tók við kynnir tón-
leikanna, Sigurður Sigurðarson fyrverandi yfir-
dýralæknir. Hann stýrði þeim af öryggi til loka-
tóns.
Tónleikarnir hófust á hluta tónverksins FriSur
á jörSu, eftir Karl Jónatansson, sem Ieikið var
af hljómdiski í flutningi Mosfellskórsins. Verkið
er eitt af því nýjasta úr smiðju meistarans. Nú
var kynntur til sögunnar Combó Smárinn.
Hann skipa harmonikuleikararnir Jón Þór Jóns-
son, Guðný Kristín Erlingsdóttir, Ólafúr Briem
og Eyrún Isfold Gísladóttir. Með þeim léku
Kjartan Jónsson á gítar, Jónas Bjarnason á bassa
og Guðmundur Steingríms-
son á trommur. Þau hófu
leikinn fjörlega á Lillý eftir
Kalla og síðan fylgdu í kjöl-
farið Ljósbrá eftir Eirík á Bóli
og að lokum Sway, erlendur
slagari sem er þeirra einka-
númer. Þau höfðu þar að auki
ýmislegt að segja afmælis-
barninu, enda búin að vera
undir handarjaðri hans lengi
og mikill vinskapur þar að
baki. Næstur á svið var
Norður-Þingeyingurinn Einar
Guðmundsson og lék hann
Evu eftir Kalla. Einar var
fulltrúi Eyfirðinga. Næst var
komið að fulltrúa Rangæinga.
Grétar Geirsson lék Bónda-
valsinn eftir Karl og Lady fish
and chips. Þá sté á svið gamall
nemandi Karls, Jóna Einars-
dóttir. Hún flutti Minningu
eftir Karl og danska tangóinn
Tango Jalousie, eftir Jakob
Gade. Garðar Olgeirsson og
Birgir Hartmannsson komu
fram fyrir hönd Harmoniku-
félags Selfoss og fluttu Hlöðu-
skottís eftir Karl og I'd like to
teach the world to sing. Frá
Harmonikufélagi Suðurnesja
voru mættir þeir Þórólfur Þor-
steinsson, Einar Gunnarsson
og Baldvin Elíasson með tvö
lög eftir afmælisbarnið í far-
teskinu, Angan vorsins vinda
og Sundur ogsaman, bæði eftir
Karl. Fyrri hluta tónleikanna
lauk með því að Gunnar
Kvaran, formaður Sambands
íslenskra harmonikuunnenda
flutti afmælisbarninu kveðju
sambandsins.
Eftir hlé kom fyrst á svið fyrr-
verandi nemandi Karls, Mar-
grét Arnardóttir og lék hún
Ástartöfira Valdimars Auðuns-
Neistar i Salnum. jrá vinstri. Sveinn Rúnar Björnsson, Guðmunáur Stein-
grímsson, Ómar Axelsson, Sigurðu Alfonsson, Edwin Kaaber.
Margt góðra gesta hreiðraði Karl Jónatansson
10
Ajmalisbamið þakkarjyrir sig
sonar og síðan Gunna var í sinni sveit. Næsti
liður var óvænt uppákoma, þegar fyrverandi
nemandi Karls, Einar Friðgeir Björnsson flutti
æskuverk lærimeistara síns, Draum drykkju-
mannsins, með aðstoð tveggja söngvara, þeirra
Jóhanns Sigurðssonar og Ingimars Asgeirssonar.
Var þetta hin skemmtilegasta tilbreyting. Þá
kváðu þau stemmu, kynnirinn Sigurður Sig-
urðarson og Ólöf Erla Halldórsdóttir, fyrst í
einrödd , en síðan í tvíund, þríund og Ioks í
fjórund. Vísurnar eru eftir Björn Friðriksson
frá Bergsstöðum á Vatnsnesi. Alltaf gaman að
heyra vel kveðnar stemmur. Næstir á svið voru
þeir Þingeyingar Reynir Jónasson og Einar Guð-
mundsson, sem léku Norðannepju, Bláberja-
augun og I dúr og moll eftir Karl og síðan Einn
dropi í hafiðeftir Inga Karl Karlsson. Þeir félagar
komu fram fyrir hönd FHUR, sem var fyrsta
harmonikufélagið sem Karl var hvatamaður að.
Yngstu flytjendurnir í á tónleikunum, tvíbur-
arnir frá Hornafirði, þeir Andri Snær og Bragi
Fannar Þorsteinssynir voru næstir í röðinni og
léku Pappírsbrúðkaupið, sem afmælisbarnið
samdi í Noregi fyrir margt löngu og Snjóvalsinn.
Þá var komið að sjálfum Neistum, en þeirri
danshljómsveit stjórnaði Karl um árabil. I
Neistum að þessu sinni voru þeir Sigurður
Alfonsson og Sveinn Rúnar Björnsson á harm-
onikur. Meðleikarar voru þeir Edwin Kaaber á
gítar, Pétur Urbancic á bassa og Guðmundur
Steingrímsson á trommur. Neistar fluttu Aust-
angjóluna, Krossanesminnið, Sumarfriið og
Vestanvindinn eftir Karl. Þetta var eitt besta
atriði dagsins.
Þá var komið að lokaatriði tónleikanna. Það
var við hæfi að 27 manna stórsveitin, stolt Karls
Jónatanssonar, sæi um það. Sveitin lék, undir
öruggri stjórn Einars Friðgeirs Björnssonar, By,
By, blackbird og Barinn okkar, eftir Karl og
Unsterbliches Wien, allt í útsetningu Karls.
Skemmtilegri stund var lokið og tónleikagestir
sneru heim, með tónaflóð í eyrum.
Friðjón Hallgrímsson
Ljósmyndir: Sigurður Harðarson