Harmonikublaðið - 01.05.2014, Síða 11

Harmonikublaðið - 01.05.2014, Síða 11
Til hamingju með daginn! Karl Jónatansson er fæddur að Blikalóni á Melrakkasléttu 24. febrúar 1924. Foreldrar hans voru Guðný S. Daníelsdóttir og Jónatan Hallgrímsson. Eiginkona Karls er Sól- veig Björgvinsdóttir og synir þeirra Jónatan og Ingi Björgvin. Þegar Karl var 8 ára spurði faðir hans hvort hann vildi læra á hljóðfæri, en hann vissi um 80 bassa gamla harmoniku. Eftir smá hik játaði hann en því fylgdi þá að hann yrði að fórna aieigunni, sem var tvær kindur. 1 Ormarslóni bjuggu Jóhann og Þorsteinn Jósefssynir. Karl fékk tveggja vikna tilsögn hjá Jóhanni í nótna- lestri. Fjölskyldan flutti að Krossanesi þegar Karl var 9 ára. Þá var hann farinn að spila nokkur lög og 10 ára gamall spilaði hann á sínu fyrsta balli með Norðmönnum sem ráku verksmiðjuna á Krossanesi. Á miðju balli söfnuðu Norðmenn 7 krónum, sem voru fyrstu spilalaun Karls. Síðar frétti hann af nýlegri harmoniku sem Norð- maður vildi selja á 400 krónur. Það var mikil upphæð fyrir eignalausan dreng, Daníel afi hans bauðst til að lána honum þessar krónur með þeim orðum: Þú borgar þetta þegar þú getur. Veturinn eftir gat Karl greitt skuldina. I Krossanesi kynntist Karl Ledulv Refsnes og um leið jass og sveiflunni, sem hefur verið hans aðall alla tíð. Tvítugur flutti Karl til Reykjavíkur Þann 24. febrúar 2014 varð Karl Jónatansson, tónlistarmaður, níræður. Karl var fæddur að Blikalóni á Melrakkasléttu, sonur hjónanna Guðnýjar S. Daníelsdóttur og Jónatans Hall- grímssonar. Karl og eiginkona hans, Sólveig Björgvinsdóttir, eiga tvo syni, þá Jónatan og Inga Björgvin. Barn að aldri eignaðist Karl fyrstu harmonikuna og fékk tilsögn í nótnalestri á nágrannabæ. Fjöl- skyldan flutti nokkru síðar að Krossanesi við Eyjafjörð og var Karl þá farinn að geta spilað nokkur lög. Ahugi hans á tónlist og dugnaður var mikill. Eftir að hann flutti til Reykjavíkur um tvítugt hóf hann nám í tónlistarfræðum hjá Victori Urbancic. Það nám stóð í fimm ár og átti snaran þátt í að gera Karl að þeim tónlistarsnillingi, sem hann varð landsþekktur fyrir. Hann lék á saxófón, trompet og harmoniku, en harmon- ikan varð síðan aðal hljóðfærið hans og hann þekktastur fyrir harmonikuleik og kennslu á það hljóðfæri. Hafa hundruð ef ekki þúsundir manna notið handleiðslu hans á því sviði hér- Iendis og einnig í Danmörku. Karl var stofnandi Félags harmonikuunnenda í Reykjavík. Um tíma var hann síðan búsettur en þá var hann búinn að læra á saxófón í sjálfs- námi. Hóf hann síðan nám hjá Viktor Urban- cic og var næstu 5 árin í námi í hljóðfræði, kontrapunkti, instrumentasjón og hljóm- sveitarstjórn. Eftir námið kenndi Karl á harm- oniku. Hann skipti úr hnappanikku í píanó- nikku sem kostaði 5 ára endurhæfmgu í tækni. Karl stofnaði Almenna músikskólann, en jafn- framt því lék hann með hljómsveitum á harm- oniku, saxófón og trompet. Árið 1966 fluttu þau hjón tii Danmerkur, kenndi Karl þá aðal- lega fólki sem hafði farið í raforgelskóla en vantaði tilsögn í tónfræði, einnig spilaði hann við ýmis tækifæri meðan þau dvöldu þar. Eftir heimkomuna tók við athyglisverður tími, ICarl kynntist þá fólki sem langaði til að koma saman og spila sér til gamans, upp úr því varð til Félag harmonikuunnenda í Reykjavík sem Karl stofnaði. Um tíma bjó fjölskyldan á Akur- eyri og stofnaði hann þá Félag harmonikuunn- enda við Eyjafjörð og kenndi við tónlistarskóla þar. Á þeim tíma urðu til m.a. lögin hans Bœrinn okkar Akureyri, Bóndavalsinn og fl. Karl var aðalhvatamaður að stofnun Sambands íslenskra harmonikuunnenda og fyrsti formaður þess. Árið 1982 flutd fjölskyldan aftur til Reykjavíkur og tók hann þá til við fyrri störf í Almenna músikskólanum við kennslu á harm- oniku, ásamt tónfræði. Fljótlega kom upp áhugi á Akureyri og starfaði að harmonikukennslu við tónlistarskóla þar. Á þeim tíma stofnaði hann Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð. Jafnframt var hann einn helsti forgöngumaður um stofnun Sambands íslenskra harmoniku- unnenda og fyrsti formaður þess. I Reykjavík stofnaði Karl og rak Almenna músikskólann en spilaði jafnframt í ýmsum hljómsveitum, sem hann oftast stjórnaði jafn- framt. Hann átti snaran þátt í ásamt eldri nemendum sínum að Músikklúbburinn Accord varð til. I framhaldi af honum var svo Harmon- ikufélag Reykjavíkur stofnað árið 1986, en um árabil hélt félagið úti stórsveit sinni skipaðri rúmlega fimmtíu hljóðfæraleikurum undir styrkri stjórn Karls. Stórsveitin spilaði m.a. klassísk verk í allt að 7-8 harmonikuröddum, sem allar voru handskrifaðar af meistaranum góða. Þá stofnaði Karl og rak í nokkur ár blásarasveit, „bigband" með um 15 hljóðfæraleikurum, sem spilaði m.a. tónlist frá þriðja til fimmta áratug síðustu aldar í útsetningum stjórnandans. Usetningar Karls voru yfirleitt alger snilld, sem fáir ef nokkrir gátu skákað. I flóknari verkum skrifaði Karl stundum sem undirrödd sjálfstætt hjá eldri nemendum að stofna hljómsveit og var það gert undir heitinu Músikklúbburinn Accord sem kom fyrst fram í þætti Omars Ragnarssonar í sjónvarpi 1985. Harmonikufélag Reykjavíkur stofnaði Karl ásamt nemendum sínum 1986 og var mikil gróska í félaginu, m.a. voru farnar utanlandsferðir og Dagur harmon- ikunnar haldinn mánaðarlega ásamt Hátíð harmonikunnar sem haldin var árlega. Fyrst var æfingaaðstaðan að Fríkirkjuvegi 11, en síðan í Tónabæ þar sem hún er enn. Karl stjórnaði Stórsveit H.R. sem taldi um 50 manns, útsetti allt sjálfur bæði sín lög og annarra. Á þessu má sjá að Karl hefúr unnið stórvirki í að viðhalda þessu yndislega hljóðfæri í íslensku tónlistarlífi. Karl hefur verið afkastamikill laga- höfundur og útsetningar hans þykja sumar hverjar meistaraverk. Karl er heiðursfélagi Harmonikufélags Reykja- víkur og var einnig gerður að heiðursfélaga Sambands íslenskra harmonikuunnenda árið 2011 og er vel að þeim heiðri kominn. Karl getur horft yfir farinn veg sáttur og glaður. Við óskum Karli og fjölskyldu hans til hamingju með afmælið. Olafur Þ. Kristjánsson og Guðrún Guðjónsdóttir lag inni í tónverkinu. Það mátti t.d. heyra í franska valsinum, La Petite Valse. Lifði sú undirrödd ein sem sjálfstæður vals, sem talsvert var notaður víða um Iand. Karl samdi líka fjölda smærri tónverka, sem mörg hver eru landskunn og mjög hrífandi. Karl er afar félagslyndur og að honum laðaðist því á langri starfsævi fjöldi fólks, börn og full- orðnir. Hann er mikill hugsjónamður um allt sem að tónlist lýtur en einnig um margs konar þjóðfélagsmál og ekki síst velferð samborgar- anna. Hann hafði einstakt lag á að kenna ungum sem öldnum og að leiða nemendur sína saman til samspils og tónlistarlegs þroska. Við sem þetta ritum fyrir hönd stjórnar Harm- onikufélags Reykjavíkur, höfum lengi þekkt Karl og verið aðnjótandi kennslu hans. Hand- leiðsla hans verður seint fullþökkuð. Stjórn Harmonikufélags Reykjavíkur óskar Karli innilega til hamingju með afmælið og óskar honum og fjölskyldu hans allra heilla í framtíðinni. ÓDfur Briem, formaður Björn ÓDfur Hallgrímsson, ritari 11

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.