Harmonikublaðið - 01.05.2014, Side 12

Harmonikublaðið - 01.05.2014, Side 12
Kveðja frá Sigurði Sigurðarsyni dýralækni, flutt við upphaf tónleika í Salnum Karl Jónatansson! Góði vinur! - Eg var nærri því búinn að segja: „Góði, gamli vinur“. Ég áttaði mig í tæka tíð á því, að það á ekki við Karl Jónatansson að segja „góði gamli vinur“. Það væri nær að segja „góði síungi vinur“, því að hugurinn hans Karls Jónatanssonar er vökull og viljinn til að verða að liði öllum mönnum og koma góðu til leiðar er óþreytandi. Þið þekkið greinaskrifin hans Kalla og ræðurnar. Hann var og er og verða mun hugsjónamaður. Til hamingju Sólveig, Jónatan, Ingi, makar og börn með þennan síunga heiðursmann og hug- sjónamann og snilling, sem þið eigið og sem okkur vinum þínum í þessum sal og vítt og breitt um landið finnst að við eigum líka. Ég kynntist Karli og fjölskyldunni hans í Ósió fyrir u.þ.b. hálfri öld, þegar hann kom þangað með Sólveigu sinni og Jónatan eða „Nana“ eins og hann kallaðist þá. Ingi var enn ekki fæddur. Mér skildist þá að hann væri að sækja þangað nýja, dýrmæta harmoniku. Þau fengu húsnæði á stúdentabænum Sogni. Þar áttum við ánægju- Iegan tíma með þeim. Þar var Kalli eins og einn af strákunum og gladdi fólk með harmonikuleik sínum á gleðistundum okkar íslensku stúdent- anna. Hann gerði lag fyrir okkur dýralækna- nemana í Ósló og við ætluðum að semja texta við það. Aður en til þess kom varð annað tilefni. Þar var veisla hjá Jóhanni Sigurjónssyni og Valgerði Árdísi Franklín í tilefni af pappírsbrúð- kaupi þeirra. Við Valdimar Brynjólfsson gerðum texta af þessu tilefni og þar með festist nafnð Pappírsbrúðkaup Dísu og Jóa við lagið. Eftir að ég var kominn heim og farinn að starfa á Tilraunastöð Háskólans að Keidum heimsótti ég Karl í Reykjavík og komst að því að hann vantaði vinnu. Mig vantaði mann sem ritara við krufningar á lömbum og réði Karl á stund- inni. Hann stóð sig með ágætum í því starfi eins og vænta mátti. Þið sjáið af þessu, að Karl hefur leikið í ýmsum sölum og á ýmsar nótur af fingrum fram. Eins og fugl, sem sest á stein, fyrst á einn, svo á annan - og svo er hann floginn burt eftir stutta stund. Þannig er Karl Jónatansson og hefur verið. Hann gleður alla kring um sig, hvar sem hann fer, með fögrum hljóðum og notalegri nærveru, örvandi og hvetjandi og þegar hann kemur, þá fagna menn, en trega, þegar hann fer. Ég hljóp yfir æviferilinn og taldi verustaði hans. Ef mér skjátlast ekki eru þeir 15 á 90 árum. Meðal- dvölin er 6 ár. Þetta er afrek meira en það sem aðrir geta státað af. Tvö bústaðaskipti eru á við húsbruna var eitt sinn sagt. Eftir því hefúr þú staðið af þér þrjá húsbruna og stendur jafnréttur eftir. Það er sérlegur heiður fyrir mig að fá að halda utan um þessa gleðisamkomu, sem vinir þínir setja á þér til heiðurs. Látum oss gleðjast hér. Það er maklegt. Fyrir hlé var flutt kveðja frá Hermóði Alffeðs- syni í Danmörku ásamt eftirfarandi vísu: Allt er munað, allt er geymt, er áður vakti gaman. Engu tapað, engu gleymt. Óllu haldið saman. Fluttar voru fyrir hlé eftirfarandi vísur eftir Sigurð Jónsson tannlækni: Karl Jónatansson níræður - 1. Kvæði um Kalla Jónatans kveð eg og vil þess geta, að harmonikutóna hans hef ég kunnað að meta. 3. Nemendum kenndi nikkuspil nutu þess kynin bæði, að ætíð skyldi hann eiga til einstaka þolinmæði. 2. Fjölmörg samdi hann falleg lög fer líka af því sögum, að útsetningar iðkar hann mjög á annarra manna lögum. 5. Nú skal hylla níræðan nikkumeistarann snjalla. Áfram viljum við hafa hann helst um framtíð alla. 4. Margir hafa nemar hans hlotið tónlistarframann. á afmæliskonsert kennarans koma þeir spilandi saman. Hvað ungur nemur gamall temur 30. apríl s.l. var haldið mjög sérstakt ball í Félagsmiðstöðinni Vitatorgi en þar dansa eldri borgarar hvern einasta miðvikudag næstum allt árið um kring, undir hljóðfæraleik Vitatorgsbandsins. Að þessu sinni buðum við 25 börnum frá leikskólunum Drafnarborg og Dvergasteini, en þessi börn hafa tekið þátt í verkefninu okkar „Harmonikan ískólum hvidsins". Það sýndu börnin og sönnuðu að verkefnið er svo sannarlega að skila sér. Fyrst dönsuðu þau þá sérdansa, sem við erum með í okkar prógrammi við undirleik Hjálmars, Guðrúnar og Elísabetar. Síðan tók Vitatorgs- 12 bandið við og þá voru spiluð þessi venjulegu danslög. Börn og full- orðnir dönsuðu saman og allir skemmtu sér vel. Þegar tími var kominn fyrir börnin að fara, þá vildu þau endilega vera lengur og erfitt var að ná þeim út úr húsinu, en rútubíll beið þeirra fyrir utan húsið. Forstöðu- menn Félagsmiðstöðvar- innar þökkuðu börn- unum fyrir og sögðu þetta frábært framtak og hafa fullan hug á að endurtaka þetta. Eldra fólkið, sem ekki gat dansað ljómaði af gleði og höfðu mikla ánægju af því að fylgjast með börnunum. Kæru lesendur það þarf að fylgja þessu verkefni vel eftir og gott væri að fá fleiri spilara með okkur því þetta skilar sér ekki nema við tökum höndum saman. Að lokum vil ég þakka öllum sem komið hafa að þessari spilamennsku. Með ósk um gott og gjöfult harmonikusumar. GuSrún Guðjónsdóttir. Ljósmyndir: Reynir Elíesersson

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.