Harmonikublaðið - 01.05.2014, Page 14

Harmonikublaðið - 01.05.2014, Page 14
12. Landsmót SÍHU Laugum í Reykjadal í S-Þingeyj 3. - 6. júlí 2014 Landsmót harmonikufélaganna verður haldið að Laugum í Reykjadal í S-Þingeyjarsýslu, dagana 3. -6. júlí nk., í boði Harmonikufélags Þingeyinga og Félags harmonikuunnenda við Eyjafjörð. Mótið hefst fimmtudagskvöldið 3. júlí kl. 19:00 og fer að mestu fram í íþróttahúsinu. Húsbíla- og tjaldstæði verða sunnan við Reykjadalsána sem er ekið yfir á brú. Einnig er möguleiki að vera við íþróttavallarhús. Bílastæði verða á malarplani rétt ofan við íþróttahúsið. Sjá yfirlitskort. Nóttin á tjaldstæðinu (húsbílastæðinu) kostar 1.000,- kr. hver nótt á mann ef gist er 3 nætur, en 1200.- kr. hvor nótt ef gist er 1-2 nætur. Rafmagn kostar kr. 500.- sólarhringurinn. Matsala verður í tjaldi við bakhlið íþróttahússins og verða þar líka óvæntar og skemmtilegar uppákomur. Það verður mikið spilað og mikið fjör alla dagana til kl. 03:00 aðfaranótt sunnudags. Miðaverð á alla viðburði er 9.000.- kr., en í stökum miðum kostar fimmtu- dagurinn 3.000.- kr., tónleikar á föstudag 1.500.- kr., kvöldið 2.500.- kr. Laugardagurinn tónleikar 2.000.- kr. og kvöldið 2.500,- kr. Dagskráin verður auglýst síðar. Gistimöguleikar eru eftirfarandi: Fosshótel Laugar sími 464 6300, Hótel Stóru Laugar sími 464 2990, Hótel Narfastaðir sími 464 3300 og Einishús á Einarsstöðum sími 865 4910 og 894 9669. Einnig er möguleiki á svefnpokaplássi í Litlulaugaskóla, sem er rétt ofan við íþróttahúsið. Upplýsingar veitir Sigurður í síma 847 5406. A Laugum er verslunin og veitingahúsið Dalakofinn. Einnig er sparisjóður þar rétt hjá. Komið er eftir þjóðvegi nr. 1 og beygt niður Austurhlíðarveg, enda blasa Laugar þá við sjónum. Hlökkum til að sjá sem flest ykkar og eiga með ykkur góða helgi. Þetta verður fjölskylduhátíð sem skilur eftir góðar minningar. Bestu kveðjur, H.F.Þ. og F.H.U.E. 14

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.