Harmonikublaðið - 01.05.2014, Side 15
Gestur Landsmótsins
á Laugum verður norski
harmonikuleikarinn
Hávard Svendsrud
Hann er fæddur árið 1974 í bænum Modum í Buskerud héraði. Hann
snerti fyrst á harmoniku sex ára gamall og náði fljótlega mjög góðum
tökum á hljóðfærinu. Strax á unga aldri var hann orðinn hluti af harm-
onikulífinu í Buskerud. Hann stundaði nám á hljóðfærið í Barratt Due
tónlistarskólanum í Osló árin 1993-1998.
Frá 1998 hefur Hávard starfað á eigin vegum og er sem slíkur einn
atkvæðamesti harmonikuleikari sinnar kynslóðar. Hann hefur unnið
með fjölmörgum Iistamönnum í ýmsum listgreinum. Hann hefur starfað
í leikhúsum og leikið á veitingastöðum. Þá hefur hann aðstoðað við
upptökur í sjónvarpi og útvarpi. Hávard hefur aukþess stjórnað hljóm-
sveitum, útsett og kennt. Þá hefur hann hljóðritað og geflð út nokkra
hljómdiska. Síðast hélt Hávard stórkostlega tónleika á Islandi á vegum
FHUR, í Arnesi um verslunarmannahelgina 2010, við frábærar undir-
tektir.
Það má segja að í Hávard Svendsrud sameinist allt það besta. Frábær
tækni, ósvikin spilagleði, frábær túlkun, en síðast en ekki síst, úthugsað
lagaval þar sem leitað er fanga um víða veröld.
15