Harmonikublaðið - 01.05.2014, Side 20

Harmonikublaðið - 01.05.2014, Side 20
Combo Smárinn Stutid milli striiía hjd Combo Smdra i Studio ReiShöll í Kópavogi. Talið frd vinstri: Halldór Gunnar Pdlsson upptökustjóri, Jónas Pétur Bjarnason, Úlafur Briem, GuSný Kristin Erlingsdóttir, Eyrún tsfold Gisladóttir, Jón Þór Jónsson og Guðmundur Steingrimsson (Papa Jazz) Smárinn er farinn að reskjast en tekur þó enn út þroska. Hann ber nafn verslunarkjarna í Kópavogi, en samt er athafnasvæðið gamli miðbærinn, aðallega við Kvenfataverslunina Stíl á Laugaveginum - innandyra sem utan. En svo á hann það til að fara á túra um Lækjartorg, Ráðhúsið, Ingólfstorg og jafnvel vestur á Granda og lengra. Best líður honum þó inni í versluninni þar sem er hlýtt og notalegt og örlátur húsráðandi sem hlynnir að. Smárinn er hvorki villiköttur né flakkari en ber þó ákveðna eiginleika - eigum við að segja seiglu og nægjusemi? Smárinn er ekki besta bandið í bænum en spilagleðin er í fyrirrúmi og í erfið- ustu köflunum, þegar flngur taka að fálma eftir nótum, sviti perlar á enni og roða slær á vanga, að þá er viljinn tekinn fyrir verkið og enn hefur þessi magnaði hópur ekki verið grýttur af sviði. Þvert á móti, Comboið hefur yfirleitt náð að skila góðu dagsverki - nú síðast náðist loks að gefa út disk sem inniheldur uppáhalds lögin sem öll eru útsett af Karli Jónatanssyni. En hvernig varð þetta spilverk upphaflega til? Kjarninn samanstendur af gerólíkum einstak- lingum sem eiga fátt annað sameiginlegt en áhugann á harmoniku og að hafa sótt tíma hjá Karli Jónatanssyni. Upphafið var nokkuð hefð- bundið, Smárinn er ein af fjöldamörgum harmonikusveitum sem Karl Jónatansson hefur sett saman í Hólmgarðinum gagngert til að þjálfa nemendur í því að spila saman og koma fram. Árið 1999 skipaði hann fjóra hrúta í sveit til að æfa tvö lög að mig minnir, „Nú blika við sólarlag" og „Hvirfil- vindur" og ef mér skjöplast ekki fengum við nafnið Smár- inn af því við vorum tveir úr Kópavoginum , en hinir tveir úr Hafnarfirði og Njarðvík. Einhver óstöðugleiki var í hrútakofanum því Karl kailaði til systur mínar í afleysingar, en þær sóttu báðar tíma um þessar mundir. Karl sá fljótt að það myndi reynast affara- sælla að hafa kynjahlutfollin rétt og stokkaði því sveitina upp og kallaði til leiks Guð- nýjuogEyrúnu. Síðarbættust við tveir ómissandi burðarbitar, session mennirnir Jónas Pétur á bassa og Papa Jazz á trommur og til varð Combó Smárinn. Þrátt fyrir miklar annir á vinnustöðum og við heimilisstörf hefur hljómsveitarmeðlimum á einhvern undraverðan hátt tekist að halda neistanum alla tíð án hurðaskella og leiðinda eins og vill verða hjá frægu hljómsveitunum. Á þessum tíma frá stofnun höfðu safnast nokkrar perlur sem hópurinn hafði gaman af að spila en áhugi var á því að leggja rækt við ný lög sem hugsanlega yrði á kostnað gömiu iag- anna. Þannig varð til sú hugmynd að taka þau upp til varðveislu. Öll lögin voru í útsetningu Karls Jónatanssonar og sum eftir hann og þar sem búið var að ákveða að halda tónleika honum til heiðurs níræðum þann 22. febrúar 2014 varð til áætluð útgáfudagsetning. Diskurinn heitir „Vigdísarfært Sway mér þá“. Vigdísarfært er skírskotun til orðatiltækis sem Kari Jónatans- son notaði þegar lög nemenda voru orðin nógu iipur til að þola opinberan flutning í tíð Vigdísar forseta. „Sway mér þá“ vísar til lagsins „Sway“ í snilldarútsetningu Karls, sem er einkennisiag sveitarinnar. Fyrstu eintökin voru afhent Karli og Vigdísi forseta á afmælistónleikunum og þeim fýlgt úr hlaði með þeim orðum að disk- urinn væri tileinkaður Karli Jónatanssyni með bestu þökkum fýrir góða leiðsögn og hvatningu. F. h. Combó Smdrans, Ólafur Briem Orvar Kristjánsson minning Örvar Kristjánsson harmonikuleikarinn góð- kunni lést í Reykjavík 7. apríl sl. Hann var fæddur í Reykjavík 8. apríl 1937. Örvar ólst upp á Hornafirði, en þaðan var hann einmitt ættaður. Á sjöunda ári fór hann að reyna við harmoniku og það tók hann ekki langan tfma að ná tökum á hijóðfærinu og aðeins fjórtán ára lék hann fýrir dansi á Höfn. Þar með var mörkuð sú braut sem hann hélt sig á lengst af. Hann bjó yfir ríkum tónlistar- hæfileikum og var tónlist veigamikil hliðarbú- grein til að byrja með. Ekki leið þó á löngu þar til hún tók yfir og síðust 25 árin starfaði hann ekki við annað. Hann var bifvélavirki að mennt og með meistarabréf í faginu. Um tónlistarmenntun var ekki að ræða, en allt lá þetta einhvern veginn í augum uppi fýrir Örvari. Hann var ótrúlega næmur dansspilari 20 og fljótur að átta sig á hvað þurfti til að drífa upp fjörið. Hann skreytti síðan með eigin söng, en slíkt var ekki daglegt brauð hjá harmonikuleikurum. Örvar var einn af bestu merkisberum harmonikunnar. Hljóðfærið hans var hljóðfæri gleðinnar, ætlað til að skemmta og honum fannst full ástæða til að létta fóiki lundina. Hann gaf út á annan tug hljómplatna, sem allar voru vel þegnar af harmonikuunnendum og dönsurum. Örvar var ágætis lagasmiður og hefði trúlega mátt flíka því meira. Einn er sá þáttur sem ekki má gleymast þegar minnst á á Örvar Kristjánsson. Það er háttvísin og glettnin, sem honum var í blóð borin. Síðustu tvo áratugina hafði Örvar vetursetu á Kanaríeyjum, þar sem hann gladdi ferðamenn með sínum fallega harmonikuleik. Þeir skipta þúsundum Islendingarnir, sem nutu hæfileika hans á Klörubar og víðar á ensku ströndinni. Á sumrum kom hann svo til gamla landsins, fór um og skemmti fólki, en það var alla tíð hans sérgrein. Harmonikugeirinn á Islandi er góðum manni fátækari eftir lát Örvars Krist- jánssonar. Harmonikublaðið sendir samúðar- kveðjur til fjölskyldunnar. Friðjón Hallgrímsson

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.