Harmonikublaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 26
Útskriftartónleikar
I lok nóvember d síðasta dri héldu tveir af
nemendum Guðmundar Samúelssonar burt-
farartónleika.
Flemming Viðar Valmundsson, sem nam við
Tónlistarskóla Grafarvogs, reið á vaðið þann
21. nóvember í Grafarvogskirkju, sem var þétt-
setin. Hann hóf leikinn á Sverðdansinum eftir
Khachaturian. Smá spenna var í byrjun, en hún
hvarf fljótlega. Næst var komið að Mozart.
Fyrsta hluta sinfóníu nr. 40, í dúett. Jónas
Asgeir Asgeirsson lék þetta vinsæla stykki með
félaga sínum. Óhætt er að segja að þeir félagar
hafí dáleitt salinn. Flutningur þeirra var glæsi-
legur, svo ekki sé meira sagt og viðtökurnar í
samræmi. Þá var komið að Fragilissimo, eftir
Spánverjann Gorka Hermosa. Mjög sérstakt og
áhugavert verk, sem hluti tónleikagesta tók þátt
í. Nokkuð sem gerist ekki á hverjum degi. Þessu
var fylgt eftir með dúett þeirra Jónasar á fyrsta
hluta sinfóníu nr. 5 eftir Ludwig van Beet-
hoven. Þetta, eitt vinsælasta verk tónbók-
menntanna, skilaði sér svo sannarlega til áheyr-
enda, sem voru sannarlega með á nótunum. Þá
var komið að bandarísku verki eftir Samuel
Barber, verki sem náði mikilli frægð í tengslum
við árásina á tvíburaturnana í New York árið
2001. Akaflega fallegt verk í flutningi Flemm-
ings. Að sjálfsögðu var Johann Sebastian Bach
á tónleikaskránni, þegar Flemming lék tokkötu
og fúgu í d-moll af miklum glæsibrag. Þetta var
síðasta verkið á tónleikaskránni, en auðvitað
vildu gestir heyra meira. Flemming lauk svo
tónleikunum með Gyðingaflugmanninum, eftir
Evgeny Derbenko, en verkið er í raun skopút-
gáfa af Býflugunni eftir Rimski Korsakoff.
Tónleikagestir þökkuðu fyrir sig með dynjandi
lófataki.
Daginn eftir eða 22. nóvember var svo komið
að Jónasi Asgeiri Ásgeirssyni, en hann nam við
Tónlistarskóla Eddu Borgar. Tónleikarnir fóru
fram í Hannesarholti við Grundarstíg, fyrir
þéttsetnum sal áheyrenda. Jónas hóf leik með
Sónötu í A-dúr eftir franska tónskáldið Etienne
Méhul. Jónas lék af mikilli yfirvegun þetta
gamla byltingarverk og náði úr sér próf-
skrekknum af öryggi. Þá var komið að verki
eftir Ukraínumanninn Victor Vlasov, Bossa
nova. Frábærlega skemmtilegt stykki, sem Jónas
skilað af glæsibrag, enda naut hann þess ber-
sýnilega að leika það. Salurinn var ein eyru og
augu. Þá var komið að einu fallegasta verki
meistara Piazzolla, Ave Maria. Þarna var ekki
komið að tómum kofanum. Jónas rúllaði í gegn
um þetta af öryggi meistarans og áheyrendur
voru sem í leiðslu. Þá var komið að Mozart.
Fyrsta kaflanum úr
sinfóníu nr. 40, eins
og fyrra kvöldið. Nú
settist Flemming hjá
vini sínum og saman
dáleiddu þeir salinn
eins og áður. Þá var
komið að einleiksverki
og nú varð fyrir valinu
hluti úr píanókonsert
nr. 23. Fallegt verk
sem Jónas skilaði frá-
bærlega. Þá var að
komið að dúett. Aftur
var það fyrsti hluti
sinfóníu nr. 5 eftir
Beethoven og flutt af
sama elegans og
kvöldið áður. Þá var
komið að Sónötu nr.
1 eftir Rússann Vlad-
islav Zolotaryov. Verk
Flemming Viöar Valmundsson
Jónas Asgeir Ásgeirsson
sem oft er leikið í dag en verkið er samið fyrir
harmoniku á tuttugustu öldinni. Stórmerkilegt
verk, sem samið var af manni sem lést aðeins
33 ára. Aðeins eitt af fjölmörgum verkum þessa
magnaða Rússa. Þetta lék Jónas af ótrúlegri
næmni. Að sjálfsögðu vildu tónleikagestir heyra
meira og að lokum, eftir uppklapp lék Jónas
hið gullfallega Ti amo Pesaro eftir Búlgarann
Vladimir Zubitsky. Þar mátti Jónas hafa sig
allan við, en leysti þrautina af glæsibrag. Áheyr-
endur klöppuðu þessum unga meistara lof í
lófa, enda tónleikarnir búnir að vera frábært
eyrnakonfekt, eins og þeir fyrri hjá Flemming
Viðari kvöldið áður.
Sérstaka athygli vöktu frábærar kynningar þess-
ara ungu tónlistarmanna. Þeir voru skóla sínum
og lærimeistara Guðmundi Samúelssyni til
mikils sóma. Guðmundur á mikið hrós skilið
fyrir framúrskarandi árangur í starfi sínu.
Fríðjón Hallgrímsson
Úr dægurlagasmiðju Þorvaldar Jónssonar
15 geisladiskar
Sumri hallar
Hrímaðar rósir
Vetrarrómantík
Tíminn flýgur hratt
Á götumarkaðnum
Á áfangastað
Vangaveltur
Staðfestingin
Kr. 2.000.-
Þorvaldur Jónsson sími 862 0487
Héraðsblik
Hugsað heim
Okkar útrás
Nýr dagur
Á heimaslóð
Á heimaslóð 2
Á fjöllum
26