Harmonikublaðið - 01.09.2014, Síða 2

Harmonikublaðið - 01.09.2014, Síða 2
Ávarp formanns Ágæti harmonikuunnandi Þetta sumar sem senn er á enda, hefur verið okkur sem búum á suðvesturhorninu blautt og lítið sést til sólar. Það hefur þó ekki aftrað því að harmonikuunnendur frá þessu svæði hafa lagt land undir fót og notið sólar á öðrum stöðum á landinu þar sem hennar hefur notið við. Landsmótsár er alltaf tilhlökkunarefni og bíða menn óþreyjufullir eftir að komast á landsmót. Félögin halda þó sínu striki og halda sín harmonikumót og var engin breyting á því þetta sumarið. Harmonikufélag Selfoss hélt fyrsta mótið í byrjun júní og var það haldið í Básnum í Olfusi og var þetta hin besta skemmtun. Nikkólína og Harmonikuunn- endur í Húnavatnssýslum voru með sína hátíð að Laugarbakka í Miðfirði um miðjan júní og er það í þriðja skiptið sem þessi félög sameina krafta sína og gangast fyrir harmonikuhátíð. Eg átti ekki tök á að mæta á þessa hátíð en ég hef haft spurnir af því að þetta hafi verið skemmtilegt mót og góð stemming ríkjandi. I Húnaveri var árleg hátíð Félags harmoniku- unnenda í Skagafirði um Jónsmessuna og var sú hátíð glæsileg í alla staði. Síðan var komið að sjálfu landsmótinu, sem að þessu sinni var haldið að Laugum í Reykja- dal. Það voru Harmonikufélag Þingeyinga og Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð sem stóðu að þessu móti fyrir hönd SIHU. Þetta landsmót var hið glæsilegasta og mjög vel að öllu staðið. Glæsileg umgjörð um mótið og dagskrá var til fyrirmyndar og er víst að þeir sem að mótinu stóðu hafa lagt mikið á sig til að gera þetta mót sem best. Dagskrá mótsins var mjög fjölbreytt. Tónleikar alla dagana, þar sem harmonikusveitir aðildarfélaga SÍHU mættu til leiks og spiluðu. Einnig komu fram einleikarar frá hinum ýmsu félögum. Gaman var að fylgjast með unga fólkinu sem sýndi enn og aftur hvað harmonikutónlistinni hefur farið mikið fram síðustu árin. Gestur lands- mótsins að þessu sinni var Hávard Svendsrud frá Noregi og voru tónleikar hans frábærir. Hann lék einnig fyrir dansi og var gerður góður rómur að hans danstónlist. Þess ber að geta að þetta er í annað sinn sem Hávard kemur til landsins, en hann var gestur Félags harmonikuunnenda í Reykjavík á harmoniku- hátíð er haldin var í Árnesi 2010. Ég vil þakka þeim félögum er stóðu að Iands- mótinu fyrir gott starf og var allur undirbún- ingur og framkvæmd þeim til mikils sóma. Á þessu landsmóti voru tíu aðilum veittar við- urkenningar fyrir vel unnin störf í þágu harmonikunnar og einnig voru Baldur Geir- mundsson frá Harmonikufélagi Vestfjarða og Aðalsteinn Isfjörð frá Harmonikufélagi Þingeyinga gerðir að heiðursfélögum sam- bandsins. Þó svo að veðrið hafi ekki verið landsmóts- gestum hagstætt var ekki annað að sjá en að allir skemmtu sér vel og fyrir bragðið var íþróttahúsið að Laugum þétt skipað allan tímann, meðan á tónleikunum stóð og eins á dansleikjunum. Ekki er enn ákveðið hvar landsmót SIHU verður haldið 2017 en vonandi skýrist það fljótt og þá verður það tilkynnt öllum for- mönnum aðildarfélaganna. Útileguhátíð Vestlendinga var að venju haldin í Fannahlíð helgina eftir landsmótið og var hún að vanda ágætlega sótt og boðið upp á tónleika og dansleiki. Breiðumýrarhátíðin fór fram síðustu helgina í júlí og var hún vel sótt eins og alltaf. Veður- guðirnir voru mótshöldurum mjög hagstæðir og var góð stemming á þessu móti eins og alltaf. Félag harmonikuunnenda í Reykjavík var síðan með hátíð að Varmalandi um verslunarmanna- helgina og fór þessi hátíð vel fram í alla staði. Fjöbreytt dagskrá og gestur mótsins ekki af verri endanum, en það var Emil Johansen og mætti hann með fjölskylduna með sér og var gaman að heyra Emil og börn hans spila á tónleikunum í Varmalandi. Fyrir stjórn sambandsins er landsmótsár svo- lítið sérstakt fyrir þær sakir, að það er í raun ekkert verkefni annað en landsmót sem stjórnin þarf að vinna að. Þó skal tekið fram að leikskólaverkefnið var í fúllum gangi fram á vor og gekk það ótrúlega vel. Leikskóla- diskurinn hefúr vakið athygli og þetta framtak fengið ótrúlega jákvæð viðbrögð meðal Ieik- skóla landsins. Guðrún Guðjónsdóttir og Elísabet. H. Einarsdóttir hafa stjórnað þessu verkefni af stakri prýði. Sjónvarpsstöðin INN bauð sambandinu að vera með harmonikuþætti í sjónvarpinu og hefur undirritaður unnið að gerð þessara þátta og hafa nú þegar verið teknir upp fjórir þættir. Hugmyndin er að vera með einn þátt í mánuði í vetur. Þetta telur stjórn sambandsins vera eina þá bestu kynningu á harmonikunni sem hægt er að fá og vonandi eru allir harmonikuunnendur ánægðir með þá þætti sem sýndir hafa verið til þessa. Fram- undan er aðalfundur sambandsins, en hann verður haldinn í boði Harmonikufélags Selfoss dagana 26. - 28. september. Það er von stjórnar að aðalfúndurinn verði vel sóttur og að við fáum formenn og fulltrúa frá öllum aðildarfélögum sambandsins. Að lokum óska ég þess að komandi vetrarstarf aðildarfélaganna verði fjölbreytt og skemmti- legt. Gunnar Kvaran, formaður Harmonikusafn Ásgeirs S. Sigurðssonar býður öldruðum harmonikum farsælt ævikvöld á Byggðasafni Vestfjarða. Sími: 456 3485 pg 844 0172. Netfang: assigu@internet.is Veffang: www.nedsti.is 2

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.