Harmonikublaðið - 01.09.2014, Qupperneq 3

Harmonikublaðið - 01.09.2014, Qupperneq 3
Harmonikublaðið ISSN 1670-200X Ábyrgðarmaðiir: Friðjón Hallgrímsson Espigerði 2 108 Keykjavík Sími 696 6422, frídjonoggudnj@internet.is Prentvinnsla: Héraðsprent, Egilsstöðum, ivunv. heradsprent. is Netfang: prínt@heradsprent.is Forsíða: Þau sem voru heiðruð á Landsmótinu. Frá vinstrí: Gunnar Kvaran formaður SIHU, Baldur Geirmundsson, Hreinn Halldórsson, Aðalsteinn Isfjórð, Jónas Þór Jóhannsson, Kristján Þórðarson, Hörður Krístinsson, Filippía Sigurjónsdóttir, sem tók við viðurkenningu Guðmanns Jóhannssonar, Sigurður Fríðriksson, Jóel Fríðbjarnarson, Inga Hauksdóttir, Karítas Pálsdóttir, sem tók við viðurketmingu Guðmundar Ingvarssonar og Friðjón Hallgrímsson. Mjnd: Sigurður Harðarson. Meðal efnis: - Dalamenn og Húnvetningar dansa saman - Ásta Soffía í Salnum - Nú er lag á Varmalandi 2014 - Harmonikufélag Héraðsbúa 30 ára - Tólfta landsmótið á Laugum - Lag blaðsins - Minningartónleikar um Gretti Björnsson Auglýsingaverð: Baksíða 1/1 síða kr. 25.500 1 /2 síða kr. 16.500 Innsíður 1/1 síða kr. 20.500 1/2 síða kr. 12.500 1/4 siða kr. 7.500 1/8 síða kr. 5.000 Smáauglýsingar kr. 3.000 Skilafrestur efnis fyrir næsta blað er 25. nóvember 2014. Stjórn S.Í.H.U. nöfn, netföng, heimilisföng og símanúmer: Formaður: Gunnar Kvaran alí7@mi.is Álfalandi 7, 108 Reykjavík. S: 568-3670/824-7610 Ritstjóraspjall Nú eru milli þrjátíu og fjörutíu ár síðan fyrstu harmonikufélögin voru stofnuð. Stofnenda- hópurinn var að stórum hluta harmoniku- unnnendur upp á gamla mátann, sem litu á hljóðfærið fyrst og fremst sem hljóðfæri gleð- innar og þeir sem á það léku voru gleðigjafar. Meðal harmonikunnenda þess tíma, var þó einnig fólk sem taldi að hægt væri að lyfta hljóðfærinu á hærri stall, með aukinni kennslu og þekkingu. Eitt af því sem skorti á þessum tíma voru sérmenntaðir kennarar. Það hafði í raun ósköp lítil breyting orðið síðan Bragi Hlíðberg lærði hjá fiðluleikaranum upp úr 1930. Stofnun Sambands íslenskra harmoniku- unnenda má hildaust telja með merkilegri atburðum í sögu harmonikutónlistar á land- inu. Það var sá vettvangur sem lagði línur varðandi margt, er sneri að þróun þessarar tónlistar á Islandi. Fyrstu skrefm voru tekin af varkárni og óvissu, en smám saman fór að verða til verklag sem hafði sér markmið. Það má ekki gleymast að innan tónlistar- skólanna var ekki mikill áhugi á þessu og jafnvel fordómafull andstaða. Risaskref var tekið þegar, eftir áralanga baráttu, námskrá fékkst samþykkt. Þar með var orðinn til sá grunnur, sem hægt var að byggja á frekara starf. Síðan hefúr þróunin legið upp á við. Það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir kennara að berjast við fordóma innan skólanna. Hinu má hins vegar ekki líta fram hjá að engir kennarar voru til staðar með akademíska menntun í harmon- ikukennslu. Nú er orðin breyting þar á. I dag eru þeir German Khlopin í Keflavík og Arni Sigurbjarnarson á Húsavík með þá menntun sem krafist er á háskóla- stigi. Nýfarnir eru eftir nokkur ár hér á landi rússnesku tvíburarnir Vadim og Yuri Fjodorov og Finninn Tatu Kant- omaa. Þá er ótalinn Hrólfur Vagnsson, sem kenndi fyrir vestan í þrjú ár en hvarf síðan til Þýskalands. Lengra er síðan Emil Adólfsson flutti til Þýskalands. Það eru hins vegar þrír nemendur í harmonikuleik í Danmörku og einn í Noregi. I fyllingu tímans munu þeir vonandi koma heim og auðga tónlistarlífið. Þetta mun taka tíma og minnumst þess, að fáir njóta eldanna, sem fyrstir kveikja þá. Varaformaður: Elísabet Halldóra Einarsdóttir elisabete@heima.is Suðurhúsum 6, 112 Reykjavík S: 587-3179 / 864-8539 Ritari: Sigrún B. Halldórsdóttir sigrunogvilli@gmail.com Breiðabólstað, 371 Búðardalur. S: 434-1207/861-5998 Gjaldkeri: Sigurður Eymundsson sigeym@talnet.is Suðurlandsbraut 60, 108 Reykjavík S: 471-1333 / 893-3639 Meðstjórnandi: Frosti Gunnarsson hansdottir@simnet.is Vallargötu 3, 420 Súðavík. S: 456-4928 /895-1119 Varamaður: Aðalsteinn Isfjörð unnas@simnet.is Forsæti lOb, 550 Sauðárkrókur S: 464-1541 /894-1541 Varamaður: Filippía Sigurjónsdóttir 8208834@internet.is Hólatúni 16, 600 Akureyri S: 462-5534/820-8834 f fréttum var þetta helst Á landsmótinu á Laugum bættust tveir við heiðursfélagaskrá Sambands íslenskra harm- onikunnenda. Þetta eru þeir Baldur Geir- mundsson og Aðalsteinn Isfjörð. Áður höfðu hlotið þessa nafnbót, þeir Bragi Hlíðberg, Karl Jónatansson og Reynir Jónasson. Eins og á undanförnum landsmótum var öll tónlistin á Laugum tekin upp, með það í huga að gefa fólki kost á að eignast hana á hljóm- diskum. Fyrirtækið Tókatækni áTókastöðum á Fljótsdalshéraði, sér um útgáfúna og er stefnt að þvi að allt verði tilbúið í sölu í nóvember. 21 harmonikuunnandi mun taka þátt í Italíu- ferðinni sem farin verður í haust á vegum SÍHU. Lagt verður af stað 11. september og flogið til Rómar. Síðan verður dvalið nokkra daga í Castelfidardo og að endingu legið í leti í Rimini við Adriahafið. Heim mun hópurinn koma 21. september. Miðað við þátttakenda- listann getur þetta aðeins orðið skemmtileg ferð. Um þessar mundir eru fjórir ungir harmon- ikuleikarar í sérnámi erlendis, Jón Þorsteinn Reynisson, Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir ogJónasÁsgeir Ásgeirsson eru í Kaupmanna- höfn og Ásta Soffía Þorgeirsdóttir í Oslo. Aðalfúndur SÍHU verður haldinn í Hvera- gerði dagana 26.-27. september nk. Það er Harmonikufélag Selfoss, sem býður til fund- arins og er þetta í annað skipti sem þeir bjóða til aðalfúndar SÍHU, en þeir buðu til aðal- fundar, sem þá hét haustfundur SIHU 1998 að Flúðum. Trúlega má reikna með að lagðar verði fram bráðabirgðatölur varðandi fjárhags- lega útkomu á Landsmótinu. Otvarpsstöðin ÍNN og SIHU hafa í samstafi gert fjóra harmonikuþætti. Það er Gunnar Kvaran formaður SIHU, sem á heiðurinn af þessum þáttum, sem fyrirhugaðir eru eitthvað fram eftir haustinu. 3

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.