Harmonikublaðið - 01.09.2014, Page 5
Ásta Soffía í Salnum
Ein af vonarstjörnum íslenska harmoniku-
vorsins, Ásta Soffía Þorgeirsdóttir hélt sína
Diploma tónleika í Salnum í Kópavogi, sunnu-
daginn 11. maí sl. Það var ágætlega til fimdið
að nota gamla lokadaginn til verksins.
A efnisskránni voru verk eftir Bach, Scarlatti,
Solotarjov, Manuel de Falla, Astor Piazzola og
Semionov. Fyrsti kennari Ástu Soffíu, sem er
fædd 1995, varÁrni Sigurbjarnarson tónlistar-
skólastjóri á Húsavík, en þar eru æskustöðvar
hennar.
Hún flutti til Reykjavíkur árið 2011 og hóf nám
við Tónlistarskóla FÍH en flutti sig síðan í
Listaháskóla Islands. Kennari hennar frá því
hún kom til Reykjavíkur hefur verið Rússinn
German Khlopin.
Tónleikarnir í Salnum hófúst á Svítu nr. 2 BWV
813, eftir Johann Sebasdan Bach. Tæknilega
snúið, fallegt verk. Ásta Soffía leysti þetta af
öryggi og næmni. Þá var komið Sónötu nr. 2
eftir Zolotarjov, Rússann, sem lifði aðeins 33
ár oglést 1975, en samdi á stuttri ævi ódauðleg
verk fyrir harmonikuna. Þessi sónata er vel þekkt
innan harmonikugeirans. Mjög erfitt tæknilega
og ekki á færi neinna spýtukarla að leika það.
Þessu skilaði Ásta Soffía af glæsibrag, með
frábærri túlkun til viðbótar. Eftir hlé var komið
að Sónötu í A-dúr K114, eftir Scarlatti. Það
stóð ekki í Ástu Soffíu að skila sónötunni til
áheyrenda á eftirminnilegan hátt. Næstur á
skránni var Shostakovich. Ásta Soffía lék Pre-
lúdíu og fúgu nr. 5. í D-dúr opus 87. Ekta
rússneskt sem tók í eyrun og alla skynjara. Þetta
lék Ásta Soffía glæsilega. Þá steig á svið Steiney
Sigurðardóttir átján ára sellóleikari, sem lék með
Ástu Sofifíu í tveimur verkum. Þær stöllur hófu
Steiney Sigurðardóttir ogÁsta Soffia Þorgeirsdóttir í Salnum. Ljósm: Sigurður Harðarson
fræga Tanti Anni
Prima, sem jöfnum
höndum gengur
undir nafninu Ave Maria. Oft hefur maður
heyrt þetta fallega flutt á harmoniku, en þegar
sellóið bættist við varð einhver stökkbreyting á
verkinu. Flutningurinn verður lengi í minnum
hafður. Salurinn hætti nánast að anda, slík varð
einbeitingin. Það glitruðu víða tár á hvörmum
meðan á flutningnum stóð. Þessum frábæru
tónleikunum lauk með Búlgaskri þjóðlagasvítu
effir Semionov. Stórskemmtilegt Balkan verk
þar sem villt tempó hefúr völdin. Ekki var laust
við að hægt væri að greina þreytumerki, enda
dagskráin orðin löng og strembin. Það var vel
við hæfi að hrista vel upp í áheyrendum með
búlgörskum hringdansi (Hora), enda tókst það.
Ásta Soffía heillaði alla með glæsilegum harm-
onikuleik og fágaðri framkomu. Þá varð Steiney
ekki til að skemma fyrir, nema síður væri.
Það fer ekki milli mála að tónlistarhæfileikar
Astu Soffíu eru meiri en gengur og gerist. Hún
mun í sumar fara til framhaldsnáms í Noregi
og er mikilla afreka að vænta frá þessum glæsi-
lega fulltrúa harmonikunnar. Þá er rík ástæða
til að óska Germani Khlopin kennara hennar
sérstaklega til hamingju með árangurinn.
Kærar þakkir fyrir frábært harmonikukvöld.
FriSjón Hallgrímsson
r : á
Heiðursfélagar SÍHU eru:
Aðalsteinn Isfjörð, Baldur Geir-
mundsson, Bragi Hlíðberg, Karl
Jónatansson og Reynir Jónasson.
leikinn á spænskri
þjóðlagasvítu eftir
Manuel de Falla.
Þessar tvær glæsilegu
tónlistarkonur fóru á
kostum í þessari
stórkostlegu tón-
smíð, sem féll vel í
kramið hjá þeim
80-90 tónleika-
gestum, sem Salinn
sóttu. Þær fylgdu
þessu eftir með einu
fallegasta tónverki
Astor Piazzolla. Hinu
Jón Espólín Kristjánsson
f. 5. febrúar 1923 - d. 20. júní 2014
Þann 20. júní síðastliðinn lést á Blönduósi
Jón Espólín Kristjánsson frá Köldukinn í
Torfalækjarhreppi. Hann var fæddur 5.
febrúar 1923. Jón var einn af stofnendum
Félags harmonikuunnenda í Húnavatns-
sýslum 1981 og einnig einn eigenda
Ósbæjar, húss harmonikuunnenda á
Blönduósi. Hann var taktfastur og góður
harmonikuleikari, ósérhlífinn og góður
félagi ávallt tilbúinn að spila og vinna fyrir
sitt félag meðan heilsa leyfði. Eftirlifandi
eiginkona Jóns er Margrét Ásgerður Björns-
dóttir. Jón og Margrét fluttu til Blönduóss
árið 1990. Þeim eru hér færðar alúðarþakkir
fyrir mikil og góð störf í þágu Félags
harmonikuunnenda í Húnavatnssýslum.
Blessuð sé minning Jóns E.Kristjánssonar.
H.U.H. félagar
5