Harmonikublaðið - 01.09.2014, Síða 6

Harmonikublaðið - 01.09.2014, Síða 6
Nú er lag á Varmalandi 2014 Yngsta danshljómsveitsumarsins. f.v. HelgiE. Kristjánsson, EmilJohansen, Olivia, Emma, Eggert Kristinsson Hin árlega sumarhátið Nú er lag fór fram að Varmalandi um versl- unarmannahelgina. Að venju, höfðu stjórn og skemmtinefnd FHURhafið undirbúning hátíðar- innar, þegar á útmánuðum. Fólst hann helst í því að semja um aðstöðuna að Varmaiandi og ganga frá öllu sem að þeim þáttum laut og svo að sjálfsögðu að finna eitt- hvert atriði, sem við gætum kynnt sem „aðalnúmer“ hátíðarinnar. I umræðum um hvað við gætum boðið upp á sagði Friðjón, for- maður skemmtinefndar, frá því að hann hefði tengsl við norska harmonikuleikarann Emil Johan- sen og að hann væri ásamt fjöl- skyldu sinni tilbúinn til þess að koma til Islands og að koma fram á Varmalandi og leika þar bæði á tónleikum, sem og einnig að leika fyrir dansi á dansleikjum hátíðar- innar. Ákveðið var að ganga til samninga við Emil og varð að ráði að Emil og Linda kona hans kæmu til landsins og yrðu með okkur á „Nú er lag“ um verslunarmanna- helgina. Emil lék síðan, ásamt börnum sínum, þeim Oliviu 13 ára, Emmu 10 ára og Emil 5 ára, bæði á tónleikum og á dansleikjum og er óhætt að segja að þau hafi „komið, séð og sigrað“ með leik sínum. Að aflokinni helginni nutu Emil og fjölskylda síðan leiðsagnar Frið- jóns og Guðnýjar konu hans á ferð um Snæfellsnes og víðar og dvöldu síðan nokkra daga í Reykjavík áður en þau héldu til síns heima. Hátíðin fór að öllu leyti vel fram og var vel mætt á bæði tónleika og dansleiki. Það sem helst olli okkur sem að henni stóðum áhyggjum á lokadögum undirbúningsins, var veðrið, eða öllu heldur veðurút- litið. Það má geta þess, að undir miðja vikuna fyrir verslunar- mannahelgina leit helst út fyrir að hátíðargestir yrðu að koma með einhver fleytitæki til þess að kom- ast um á hjólhýsasvæðinu. Slíkur og þvílíkur var vatnsaginn. Allt bjargaðist þetta þó og þegar hátíðin hófst mátti segja að þokkalega fært væri orðið flestum farartækjum um svæðið. En þó ekki meira en svo. Fyrstir á svið á föstudagskvöldið voru Vindbelgirnir. Ekki alveg upprunalega útgáfan, því í stað Hilmars Hjartarsonar var kominn Flemming Viðar Valmundsson og má telja það verulega yngingu. I kjölfar þeirra kom Skagamaðurinn Eðvarð Árnason og Dalamaðurinn Sveinn Sigurjónsson sem lauk föstudeginum. Laugardagurinn hófst með tónleikum. Norsku gestirnir stigu á svið og léku listir sínar. Tónleikarnir voru hin besta skemmtun. Ymist lék allur hópur- inn eða Emil Johansen einn. Allur var flutningur þeirra vandaður og metnaðarfullur. Uppskáru þau verðskuldað lófaklapp að launum. Það voru þeir EG félagar Einar Guðmundsson og Gunnar Kvaran sem settu laugardagsballið í gang. Var strax sýnilegt að vel yrði mætt, enda veðurblíða og allar aðstæður hinar bestu. Það var hljómsveit Emils Johansen sem tók við af þeim. Yngsta hljómsveit sumarsins. Hún var frábær, enda meðalaldur- inn 20 ár. Formaðurinn Páll S. Elíasson var næstur á svið ásamt Þórleifi Finnsyni og luku þeir félagar ballinu á kristilegum tíma. Flateyingurinn og skipstjórinn Ingvar Hólmgeirsson hóf leikinn á sunnudag og hljómsveit Emils Johansen tók síðan við. Það var síðan Nikkólínumaðurinn Guð- bjartur Björgvinsson, sem lauk hátíðinni, þegar mánudagurinn var nýhafmn. Ekki má skilja svo við þessa samantekt án þess að minn- ast á hina fjölmörgu undirleikara, sem hjálpa til við að halda takt- inum. Þar eru gamalreyndir í bransanum Helgi E. Kristjánsson og Hreinn Vilhjálmsson. Góðvinur okkar Númi Adólfsson er enn- fremur aufúsugestur á Varmalandi. Þá eru ótaldir trommararnir, Egg- ert Kristinsson, sem stofnaði Hljóma og Þórir Magnússon, trommuleikari FHUR frá upphafi. Síðasti viðburður sumarsins sem félagið tók þátt í var svo Menn- ingar,,nótt“. Þar léku harmoniku- leikarar á þess vegum á Skólavörðu- stíg og var það dagskrá upp á þrjár klst. Þeir sem þarna komu fram voru: Sigurður Alfonsson, Reynir Jónas- son, Gunnar Kvaran, Haukur Ingibergsson, Ingvar Hólmgeirs- son, Flemming Viðar Valmunds- son og Hilmar Hjartarson allir á harmoniku og einnig lék með þeim Helgi E. Kristjánsson á gítar. Geta má þess, að Atlantsolía bar allan kostnað af viðburðinum, setti upp aðstöðu fyrir spilara og greiddi FHUR nokkra upphæð fyrir tón- listarflutninginn. Spilarar tóku ekkert fyrir sitt framlag. Þetta samstarf FHUR og Atlants- olíu á sér nú orðið nokkurra ára sögu og er það von mín að fram- hald verði þar á næstu ár. Ogþau dösnuSu öllþama í dynjandi galsa 6 Ómissandi þdttur á harmonikumótum er útispilil

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.