Harmonikublaðið - 01.09.2014, Síða 10

Harmonikublaðið - 01.09.2014, Síða 10
Tólfta landsmótið á Laugum Tólfta landsmót SIHU var haldið að Laugum í Reykjadal dagana þriðja til sjötta júlí í sumar. Þrátt fyrir afleita veðurspá var slæðingur af fólki mættur á miðvikudeginum og undi sér í þing- eyskri blíðu við harmonikuleik og spjall. Fimmtu- dagurinn rann upp og hafði nú heldur skipt um því komið var kalsaveður og hitastigið fallið um helming. Ekki virtist þetta hafa mikil áhrif á aðsóknina, því allan flmmtudaginn hópaðist fólk að Laugum og kom sér fyrir. Klukkan sjö um kvöldið setti Filippía Sigurjónsdóttir formaður FHUE mótið. Upphaflega hugmyndin var að Þórhildur Sigurðardóttir formaður Þingeyinga tæki þátt í setningunni, en hún forfallaðist um morguninn. Mótið hófst með Ieik stórsveitar Félags harmonikunnenda við Eyjafjörð, sem lék hið fallega mótslag „Þegar stjörnurnar blika“, eftir Sigurð K. Leósson, undir stjórn Roar Kvam. Það var síðan vel við hæfi að hefja mótið á laga- syrpu eftir Fikka á Halldórsstöðum, þann mikla lagasmið Þingeyinga, en það var einmitt hann sem lék inn landsmótið á Laugum 1990. Það var hljómsveitarblanda frá Eyfirðingum og Þingey- ingum sem skilaði þessu með ágætum. Til stóð að Skagfirðingar væru næstir á dagskrá, en á síðustu stundu gengu þeir úr skaftinu. Þá var leitað til Sigurðar Hallmarssonar. Þessi aldni 10 heiðursmaður og lífskúnstner lét ekki ganga á eftir sér og gladdi gesti með sínum leik. Að því loknu stigu gestgjafarnir frá landsmótinu á Hellu 2011, Rangæingar á svið. Það kom síðan í hlut Suðurnesjamanna að ljúka þessum fyrsta hluta tónleikanna. Að því loknu var svo dansað frá tíu til eitt og var þátttaka góð í dansinum þetta fyrsta kvöld. Föstudagurinn heilsaði á svipuðum nótum hvað veðrið snerti. Fyrstir á svið, eftir að lands- mótslagið hafði verið leikið, var tónleikasveit Nikkólínu og í kjölfar hennar komu síðan Hér- aðsbúar. Allt var þetta á kunnuglegum nótum frá fyrri landsmótum. Þá var komið að fulltrúa Þingeyinga. Að þessu sinni var það einn af yngri þátttakendum mótsins, Asta Soffía Þorgeirs- dóttir. Þetta var án efa ein af stóru stundum helgarinnar. Glæsilegur tónlistarmaður með frábæra dagskrá, ekki Ianga, en góða. Hún kynnti lögin sjálf, afskaplega skemmtilega og hreif alla með sér er á hlýddu. I kjölfar Ástu Soffíu komu síðan Vestfirðingar, sem léku af sama fjöri og loðað hefur við þá á landsmótum. Að þessu loknu var komið að heiðrun félaga. Þetta atriði var sérstaklega ánægjulegt, en þarna voru tveir heiðursmenn, Baldur Geirmundsson og Aðalsteinn Isfjörð, gerðir að heiðursfélögum SIHU. Þar með eru heiðursfélagarnir orðnir fimm. Að auki fengu tíu harmonikuunnendur viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Frá FHUR var Friðjón Hallgrímsson, þrír Þingeyingar voru í hópnum, þau Inga Hauksdóttir, Jóel Frið- bjarnarson og Sigurður Friðriksson, einnig voru þrír Eyfirðingar, Guðmann Jóhannsson, Hörður Kristinsson og Kristján Þórðarson kallaðir til, Héraðsbúarnir Hreinn Halldórsson og Jónas Þór Jóhannsson og að lokum Þingeyingurinn í Harmonikufélagi Vestfjarða, Guðmundur Ingv- arsson. Að þessu loknu hófust tónleikar að nýju og nú stigu á svið meðlimir í Léttsveit Harmon- ikufélags Reykjavíkur, sem síðar var fylgt eftir af Smáranum. Var þetta allt með mjög ljúfum blæ. Þar með lauk föstudagstónleikunum og gestir hófu að undirbúa kvöldverð og mættu síðan gal- vaskir á dansleik. Var hann töluvert fjölmennari en deginum áður. Laugardagurinn hófst á sama hátt og föstudag- urinn. Landsmótslagið var leikið í upphafi og nú hafði heldur fjölgað í hópnum. Þá tók við hljóm- sveit Félags harmonikuunnenda við Eyjafjörð. Fór ekki á milli mála að æfingar höfðu verið vel stundaðar í vetur. Nú var komið að óvæntri uppákomu. Fjögur ung systkini frá Bakkafirði voru kölluð á svið. Léku þau við góðar undir- tektir, þó ekki kæmu þau fram fyrir hönd harmonikufélags. Eitt þeirra, Njáll Halldórsson var í úrslitum Nótunnar í mars 2014, lék þar verk úr Pétri Gaut eftir Grieg á harmoniku, mjög efnilegur spilari. Þetta rifjaði upp fyrir ritstjóra, þegar fullyrt var við hann, að á Sléttunni lærðu allir strákar á harmoniku en stelpurnar á gítar. I beinu framhaldi af þessu kom síðan Arni Sigur- bjarnarson tónlistarskólastjóri á Húsavík ásamt nokkrum nemendum sínum og sama gerði Knútur Emil tónlistarkennari í Hafralækjarskóla. Var forvitnilegt að sjá þessa ungu nemendur sem svo miklar vonir er bundnar við. Glæsilegur hópur sem við eigum vonandi eftir að heyra meira frá í framtíðinni. Að þessu loknu var komið að hinni mögnuðu hljómsveit Hafralækjarskóla, Wasichana Marimba, með sín skemmtilegu og sérstöku hljóðfæri. Hún lék undir stjórn Guðna Bragasonar, sem á heiðurinn af þessu merkilega tónlistarstarfi. Var þetta vel þegin tilbreyting frá harmonikutónlistinni, mikið líf og fjör, þó ein- hverjum hafi þótt þessi hluti í lengra lagi. Tveir af heiðurfélögunum SIHU, þeir Bragi Hlíðberg og Reynir Jónasson glöddu einnig áheyrendur með stuttu innslagi. Nú var komið að aldursforsetunum á mótinu. Hljómsveit elsta félags landsins, Félags harmo- nikuunnenda í Reykjavík steig á svið og lék næstu mínúturnar. Mátti vel heyra að æfingar í vetur höfðu verið vel sóttar. Að því loknu má segja að annar af hápunktum mótsins hafi tekið við. Harmonikukvintett Reykjavíkur lék næsta hálf- tímann af þeirri spilagleði sem einkennir hann. Stórkostlegur flutningur glæsilegs tónlistarfólks. Kvintettinn var reyndar að leika á Þjóðlagahá- tíðinni á Siglufirði, en skaust yfir að Laugum til Elsta félagiS. Félag harmonikuunnenda l Reykjavík Nikkólína var að sjálfiögðu matt til leiks

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.