Harmonikublaðið - 01.09.2014, Síða 13
Friðrik Jónsson (Fikki á Halldórsstöðum) var fæddur á Halldórsstöðum í Reykja-
dal 20. september 1915. Fikki var tónlistarmaður af Guðs náð og ekki sá eini í
ættinni. Allt sem varðaði tónlist lá opið fyrir honum. Hann hóf ungur að leika á
orgel og síðar á harmoniku og varð fljótlega, eftir nám hjá Páli Isólfssyni, organ-
isti fyrir stóran hluta Suður-Þingeyjarsýslu. Þá lék hann á dansleikjum vítt og breitt
um Norðurland áratugum saman og varð á þessum tíma hálfgerð þjóðsagna-
persóna.
Hann hóf að setja saman lög á unglingsárum og lögin hans fyrir kóra, einsöngvara
og danslög skipta tugum. Má þar m.a. nefna lög eins og „Við gengum tvö“,
„Vertu hjá mér Dísa“ og „Rósin“. Fikki var bóndi lengst af starfsævinni, en lauk
henni í Kaupfélagi Þingeyinga á Húsavík. Eiginkona Friðriks var Unnur Sigurðar-
dóttir og eignuðust þau fimm börn. Friðrik var sæmdur riddarkrossi Fálkaorðunnar
1988. Hann lést 2. nóvember 1997.
Ágætu lesendur.
Við þökkum öllum bæði gestum og hljóð-
færaleikurum, sem mættu á tónleikana í
Salnum 22. feb. sl. í tilefni 90 ára afmælis
Karls Jónatanssonar. Þið sýnduð þessum
aldna harmonikuhöfðingja mikinn sóma
með því að fylla húsið, ekki bara af fólki
heldur líka af gleði. Fyrir þetta eru Karl
og fjölskylda hans afar þakklát. Nú er
kominn út DVD diskur með tónleik-
unum úr Salnum. Form. S.I.H.U. telur
þetta vera mjög góðan heimildardisk. Karl
Jónatansson hefur gegnum tíðina útsett
fjöldann allan af íslenskum og erlendum
dægurlögum, sem margir hafa fengið að
njóta, án þess að greiða fyrir. Með sölu á
þessum diski er ákveðið að fjármagna
útgáfu á nótnahefti, en af nógu er að taka
og hvet ég alla þá sem haft hafa ánægju
af útsetningum og lögum Karls, að styrkja
þessa útgáfu með því að kaupa DVD
diskinn. Flytjendur á DVD disknum eru
margir af okkar bestu harmonikuleik-
DVD diskurinn er til sölu hjá undirritaðri
og hjá Ólafi Þ. Kristjánssyni s: 868 7848.
Með harmonikukveðju
Guðrún Guðjónsdóttir
S: 898- 4760
13