Harmonikublaðið - 01.09.2014, Qupperneq 15
nýbýlið Ytra-Bjarg með konu sinni
Guðnýju Friðriksdóttur og var
systur sinni ætíð stoð og stytta.
Hann var um árabil organisti á
Staðarbakka og Melstað og dætur
hans eftir að hann hætti því starfi.
Björn, faðir Grettis, var einnig
organisti í Efra-Núpskirkju og aðrir
synir hans tónlistarmenn.Tónleik-
arnir voru vel sóttir, enda glæsileg,
fjölbreytt og þétt skipuð dagskrá
sem stóð í þrjá tíma. Kvenfélagið
Björk sá um veitingar. Eftirtaldir
fjölskyldumeðlimir og hjálparhellur
komu fram: Katrín Halldórsdóttir
og Albert Guðmann Jónsson,
Bergþóra Ægisdóttir, Geir Jón
Grettisson sonur Grettis Björns-
sonar, Helga Rún Jóhannsdóttir,
Magnús Björn Jóhannsson, Ingi-
björg Friðriksdóttir, Þorvaldur
Pálsson, Einar Friðgeir Björnsson,
Sigurður Helgi Oddsson, Elinborg
Sigurgeirsdóttir og Guðmundur
Jóhannesson. Einnig kom fram
hljómsveit skipuð hálfbræðrum
Grettis, Marinó Björnssyni á gítar,
Árna Björnssyni á bassa og Sigurði
Ingva Björnssyni söngvara, með
þeim spiluðu Axel Sigurgeirsson á
trommur og Ragnar Levy foður-
bróður Grettis á harmoniku. Hall-
dór Pálsson ræddi um aðkomu Páls
Axelssonar að Hvítasunnusöfnuð-
inum. Hilmar Hjartarson sagði frá
samstarfi þeirra Grettis og Sigurður
Alfonsson ræddi mögulega útgáfú
á verkum Grettis. Einnig komu
fram nokkrir frábærir gestir til að
heiðra minningu Grettis Björns-
sonar og systkina hans. „Búfræð-
ingarnir11 Guðmundur Samúelsson
og Grétar Geirsson léku þrjú lög,
þ.á.m. Klettafiallapolka eftir Gretti
Björnsson. Reynir Jónasson lék tvö
lög, annað var K&rlighedsvals sem
hann tileinkaði Önnu Axelsdóttur
sem söng lengi í kirkjukór Nes-
kirkju og svo lék Bragi Hlíðberg
Minningu eftir Oliver Guðmunds-
son. Bragi og Reynir eru heiðurs-
félagar SÍHU. Tónleikunum lauk
svo með að ættarkórinn steig á svið
og söng þrjú lög.Þessir minningar-
tónleikar voru öllum til sóma er að
þeim stóðu og þar komu fram.
Hafið bestu þakkir fýrir.
Samantekt SH
Ljósmyndir: Rcynir Eliesersson
Fannahlíð 2014
Fannahlíðarhátíðin var haldin
dagana 11. og 12. júlí 2014.
Veðurguðirnir voru okkur afar vin-
veittir í þetta sinn, sem svo oft
áður. Margir húsbílar og nokkur
tjöld voru komin á svæðið síðari
hluta fostudags og nutu gestir sín
í blíðunni við spilamennsku, grill
og söng, en dansskemmtun hófst
síðan klukkan níu um kvöldið.
Samkvæmt hefðinni hófúm við
HUV félagarnir, undirritaður,
Geir Guðlaugsson og Jón Heiðar
spilamennskuna. Þá var komið að
Selfyssingunum Þórði Þorsteins og
Birgi Hartmanns. Þar næst komu
Vindbelgirnir, Friðjón og Hilmar,
en Sveinn Sigurjóns og Jón Heiðar
luku föstudagsballinu rúmlega eitt
um nóttina. Dansgólfið var þétt-
skipað allan tímann og virtist fólk
una sér hið besta.
Um miðjan dag á laugardag voru
hljómleikar, þar sem við „forn-
gripirnir" í H.U.V.hófúm Ieik, en
síðan tók við hinn kornungi Davíð
Harðarson og skilaði sínu hlutverki
með prýði. Að lokum léku þau
saman á þverflautu og gítar, Sig-
ríður Hjördís Indriðadóttir og
Helgi E. Kristjánsson og sýndu
ótrúlega færni með þeim flutningi.
Helgi kom síðan flestum á óvart
þegar hann brá sér út af sviðinu en
birtist síðan aftur með hnappa-
harmoniku í fanginu og hóf að
leika á hana, með Sirrí á þver-
flautuna. Var gerður mjög góður
rómur að þessum atriðum. Tók nú
við hefðbundin bið, sem nýttist
ágætlega til spilamennsku og
undirbúnings fyrir kvöldverð.
Klukkan níu um kvöldið hófst
síðan dansinn að nýju og stóð allt
til langt gengin í tvö. Við HUV
menn byrjuðum en Sveinn Sigur-
jónsson tók síðan við. Þórleifúr
Finnsson átti ekki í vandræðum að
taka við af honum. Ballinu lauk
síðan með því að þeir Hilmar og
Friðjón léku, en ekkert fararsnið
Tjútta, tjútta, tjútta, je, je, je
Fléttumar skiptust og síðpilsin sviptust
'♦♦***»Í
Lctt afingi bliðunni undir Akrafialli
var á fólki klukkan eitt og var þvi
haldið áfram stutta stund. Ekki má
gleyma meðleikurum harmoniku-
leikaranna, þeim Helga Kristjáns-
syni. Sigríði Hjördísi Indriðadóttur
og Þóri Magnússyni. öllu þessu
fólki þökkum við veitta aðstoð og
ómælda skemmtun og vonumst til
að allir hafi unað sér vel og komið
heilir heim.
Með harmoniku kveðju,
Gestur Friðjónsson
Ljósm: Sigurður Harðarson
15