Harmonikublaðið - 01.12.2014, Qupperneq 2

Harmonikublaðið - 01.12.2014, Qupperneq 2
Ágæti harmonikuunnandi Starfsár sambandsins er yfirleitt rólegt, þegar um landsmótsár er að ræða. Þó eru alltaf ýmisleg mál sem koma upp og taka þarf á. Aðalfundur sambandsins var haldinn þetta árið að Hótel Ork í Hveragerði og bar Harmo- nikufélag Selfoss hita og þunga af þessum aðal- fundi. Fundinn sóttu formenn og fulltrúar frá nær öllum aðildarfélögum landsins og verð ég að lýsa ánægju minni með það. Fundurinn var í alla staði málefnalegur og rædd ýmis mál er brunnu á fundarmönnum. Fyrst skal nefna verkefnið Harmonikan í leikskól- anum og greindi varaformaður frá því verkefni og færði sambandinu rúmar þrjúhundruð þúsund krónur sem er nú þegar afrakstur af þessu verkefni, en geisladiskurinn var seldur til nær allra leikskóla landsins. Varaformaður Elísabet H. Einarsdóttir og Guðrún Guðjóns- dóttir hafa að mestu staðið fyrir þessu verkefni og má segja að þetta starf hafi fengið mjög góðar viðtökur hjá leikskólum landsins. Ákveðið hefur verið að panta fleiri diska til að hafa til sölu, því eftirspurnin er enn töluverð. Áhersla skal lögð á að verkefninu er síður en svo lokið, því leikskólum landsins var boðið að fá heimsóknir harmonikuleikara í septem- ber og október á þessu ári og eins verður boðið upp á harmonikuleik í leikskólunum í mars og apríl á næsta ári. Formaður landsmótsnefndar mætti með upp- gjör eftir vel heppnað landsmót og var útkoman á landsmótinu viðunandi, miðað við það mark sem veðurguðirnir settu á landsmótið. Það er engin spurning að mun fleiri hefðu sótt mótið ef veðrið hefði verið betra. Lagabreyting lá fyrir fundinum og var sam- þykkt að stjórnarmenn væru kjörnir til tveggja ára í stað þriggja, eins og verið hefúr til margra ára. Sú er ástæða að þessi lagabreyting kom fram, að erfitt hefur verið að fá fólk til stjórn- arsetu og telja flutningsmenn þessara tillögu að auðveldara væri að fá nýrt fólk til starfa, ef það þarf ekki að binda sig lengur en til tveggja ára í senn. Varamaður til nokkurra ára Aðal- steinn Isfjörð gaf ekki kost á sér áfram og í hans stað var Pétur Bjarnason kjörinn sem varamaður í stjórn sambandsins. Eg vil þakka Aðalsteini fyrir samstarfið á liðnum árum og óska honum og konu hans alls hins besta í framtíðinni. Málefni Harmonikublaðsins voru rædd og og var það mál manna að blaðið hefði aldrei verið jafn gott og glæsilegt, en það verður að viður- kennast að kostnaður við útgáfu blaðsins er í járnum og gera þarf átak í að fjölga áskrif- endum og auka við auglýsingar í blaðið. Eg vil líka þakka Birgi Hartmannssyni, þáver- andi formanni Harmonikufélags Selfoss og félögum hans fyrir allt það sem þeir lögðu á sig til að gera aðalfundinn sem glæsilegastan. Verkefni þessa starfsárs verður sem hér segir. Stefnt er á að endurvekja æfingabúðir fyrir ungmennin okkar og vonast ég til að hægt verði að vera með þær í Skólabúðunum að Reykjum í Hrútafirði og er stjórnin að horfa til mars eða aprílmánaðar. Tilkynning um þetta verður send formönnum aðildarfélaganna og eins verður haft samband við flesta tónlistar- skóla landsins. Það er von okkar að vel takist til þetta árið og að næg þátttaka náist til að halda þessar æfingabúðir. Stjórnin mun einnig halda fjáröflunardansleik fyrir sambandið og verður sá dansleikur með vorinu eða snemma næsta haust. Senn líður að jólum og vil ég senda öllum harmonikuunnendum mínar innilegustu jólakveðjur og farsældar á nýju ári. Stjórnar- mönnum í S.I.H.U. og formönnum og stjórnum aðildarfélaganna þakka ég gott sam- starf á liðnu ári. Gleðilega jólahátíð, Gunnar Kvaran, fonnaður Sagnabelgurinn Á Islandi er fjölmargt tónlistarfólk að semja lög og tónverk, sem halda munu nafni þeirra á lofti um ókomna tíð. Undirritaðan langaði að kom- ast í þennan hóp og eftir að hann eignaðist tvöfalda harmoniku á áttunda áratugnum fór þessi löngun fljótlega að verða fyrirferðarmeiri. Hann reyndi og reyndi og þar kom, að hann var kominn með lag sem hljómaði bara nokkuð vel. Hann jagaðist á því lengi vel og ekki minnk- aði ánægjan með afraksturinn. Sá tími kom að hann taldi ástæðu til að gefa fleirum kost á að njóta þessa ávaxtar. Ekki man hann lengur hver það var, en eitthvað fannst undirrituðum undirtektirnar daufar. Hann gafst þó ekki upp, en þróaði lagið áfram. Alltaf hljómaði það betra og betra. Þetta yrði líklega bara vinsælt. Síðan kom babb í bátinn. Honum fór að finnast lagið kunnuglegt, en á nýjum forsendum. Eftir mikið japl og jaml og fúður rann svo upp fyrir honum, að lagið sem hann taldi sig hafa samið, var ekki eftir hann. Allt sem hann hafði gert var að breyta Sæsavalsinum eftir Ása í Bæ í skottís. Síðan hefur hann látið aðra um að semja tónlist. Ritstjórinn 7\1 7V m Harmonikuviðgerðir Tek að mér viðgerðir á harmonikum Gunnar Kvaran sími: 824-7610 2

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.