Harmonikublaðið - 01.12.2014, Page 3

Harmonikublaðið - 01.12.2014, Page 3
í fréttum var þetta helst Harmonikublaðið ISSN 1670-200X Ábyrgðarmaður: Friðjón Hallgrímsson Espigerði 2 108 ReyJgavík Sími 696 6422, fridjonoggudnj@internet. is Prentvinnsla: Héraðsprent, Egilsstöðum, umw. heradsprent. is Netfang: print@heradsprent.is Forsíða: I syngjandi sveiflu í Fannahlíð Meðal efnis: - Harmonikugleði í Lindarbæ í Skagafirði - Heimildarmynd um Harmonikufélag Þingeyinga - Félag harmonikuunnenda í Skagafirði - Sólarmegin í Básnum 6. - 8. júní 2014 - Minning íCristján Þór Hansen - Aðalfundur SÍHU 2014 - Vinkonuvalsinn - Minning Sigurður Hallmarsson - Dansskórnir pússaðir í Reykjavík - Yndisferð SÍHU tdl Ítalíu - Viðtalið - Runólfúr Bjarki Arnarson - Urdrátmr úr skýrslu stjórnar HFÞ - Vísur úr Ítalíuferð SÍHU -1 þá gömlu góðu - Frostpinnar að vestan - Lag blaðsins - Mánudagur Auglýíimgaverð: Baksíða 1/1 síða kr. 25.500 1/2 síða kr. 16.500 ínnsíður 1/1 síða kr. 20.500 1 /2 síða kr. 12.500 1/4 síða kr. 7.500 1/8 síða kr. 5.000 Smáauglýsingar kr. 3.000 Skilafrestur efnis fyrir næsta blað er 25. apríl 2015. Y~t f ~ \ Stjórn S.I.H.U. nöfn, netföng, heimilisföng og símanúmer: Formaður: Gunnar Kvaran alf7@mi.is Álfalandi 7, 108 Reykjavík. S: 568-3670 / 824-7610 Varaformaður: Elísabet Halldóra Einarsdóttir elisabete@heima.is Suðurhúsum 6, 112 Reykjavík S: 587-3179/864-8539 Ritari: Sigrún B. Halldórsdóttir sigrunogvilli@gmail.com Breiðabólstað, 371 Búðardalur. S: 434-1207/861-5998 Gjaldkeri: Sigurður Eymundsson sigeym@talnet.is Suðurlandsbraut 60, 108 Reykjavík S: 471-1333 / 893-3639 Meðstjórnandi: Frosti Gunnarsson hansdottir@simnet.is Vallargötu 3, 420 Súðavík. S: 456-4928 /895-1119 Varamaður: Pétur Bjarnason peturbjarna@internet.is Geitlandi 8, 108 Reykjavík S: 456 4684 / 892-0855 Varamaður: Filippía Sigurjónsdóttir 8208834@internet.is Hólatúni 16, öOOAkureyri S: 462-5534/820-8834 Nú er eitt landsmótsárið að líða með öllum sínum minningum. Það var lengi hefð að þegar einu landsmóti lauk var tilkynnt um hvar það næsta yrði haldið. Þetta brást á Hellu, en menn þurftu þó ekki lengi að bíða, því á næsta aðalfundi SIHU, haustið 2011, var til- kynnt að næst yrði það Þingeyjarsýslan. Þetta gekk eftir. Þingeyingar og Eyfirðingar tóku verkið að sér og leystu það með glæsibrag í júlí síðastliðnum. Nú er komin ný staða. Enn hefur ekki verið tilkynnt um landsmót 2017, sem allir hafa þó áhuga á að verði haldið. Hvaða staðir koma til greina? Hverjir hafa aldrei haldið landsmót? Dalamenn, Húnvetn- ingar, Skagfirðingar, Selfýssingar og Harmo- nikufélag Reykjavíkur. Hvað er nú til ráða. Hvaða félög hafa styrk til að takast á við verk- efnið? Nikkólína er lítið félag og fámennt. Trúlega væri Laugar í Sælingsdal eini staður- inn, ef til þess kæmi. Ekki veit undirritaður hvort hann dygði, en trúlega stæði það tæpt. Þar er ekki mikil gisting og ekki stórt svæði fyrir hjól- og fellihýsi. Hvað með Húnavatns- sýslur? Miðað við undanfarin ár er ekki að sjá að þeir hafi mannskap í svo stórt verkefni. Skagfirðingar eru heldur ekki fjölmennir, þó landsmót á Sauðárkróki gæti verið skemmti- legur kostur. Svipað er upp á teningnum á Það kom fram í máli formanns Harmo- nikuunnenda Vesturlands síðastliðið sumar að Fannahlíðarmótið 2014 yrði það síðasta. Þetta hefur nú breyst, því áætlað er að halda harmonikumót í Fannahlíð næsta sumar. I veðurblíðunni síðasta sumar var fjölmenni í Fannahlíð. Harmonikumót Selfyssinga sem haldið var í fyrsta skipti í Básnum í fyrra og tókst svo ágætlega er komið til að vera. Samkvæmt traustum heimildum ætla Selfyssingar að standa fyrir móti næsta sumar. Harmonikuþættirnir á INN hafa gert mikla lukku. Þykir formaður SIHU Gunnar Kvaran hafa staðið sig með miklu sóma. Þarna hefúr verið um notalegt spjall að ræða auk þess að gestir hafa tekið Iagið. Er ástæða til að ætla að framhald verði á þessu. Eins og kunnugt var ekki tilkynnt á lands- mótinu á Laugum hvar næsta landsmót yrði. Einhverjar þreifingar munu hafa farið fram síðan, en ekkert verið ákveðið í þeim efnum. Eins og kemur fram á öðrum stað i blaðinu hefur Harmonikufélag Þingeyinga látið gera myndband, þar sem minnst er eldri atburða og félaga. Þetta er að sjálfsögðu mjög for- vitnilegt og ómetanleg heimild um starf harmonikufélaga landsins. Ekki er vafi á að sambærilegt efni er til í fleiri félögum. í framhaldi af því má minnast á tvö mynd- bönd sem eru á You tube vefnum. Það var Hörður Jóhannsson, sem rak dekkja- og smurverkstæði í Borgarnesi í áratugi, sem myndaði og sonur hans Rikharður Mýrdal kokkur í Borgarnesi sá um að gera þetta aðgengilegt á netinu. Annað myndbandið er frá dansleik í Logalandi á síðasta vetrardag 1982 og það síðara frá tónleikum Jon Fauks- tad á sama stað. Von er á mörgum fleiri mynd- böndum í framtíðinni. Þarna má sjá helstu harmonikuleikara Vesturlands, með hugsjóna- manninn Aðalstein Símonarson í fararbroddi. Sláið inn „Harmonikkudansleikur í Loga- landi“ og þú ert kominn á ball í Logalandi. Stjórn SIHU vinnur að því að endurvekja æfingabúðir fyrir unga fólkið að Reykjum í Hrútafirði. Vonandi heppnast þetta, því eng- inn vafi er á því, að æfingabúðir sem þessar geta og hafa skilað árangri. Kominn er út diskur þar sem öll tónlisdn frá landmótinu á Laugum er tekin saman á 5 diskum. Þetta er ómissandi skemmtiefni og heimild, þar sem öllu er haldið til haga, nema veðrinu. Aðildarfélögin er hvött til að selja diskana til sinna félagsmanna. Auk þess sem hver og einn getur pantað, eins og fram kemur í auglýsingu í blaðinu. Selfossi. Það verður að líta til Reykvík- inga. Reykjavfkur- félögin eru fjöl- menn og ættu jafnvel að geta leyst þetta í sameiningu. En hvar ætti það mót að vera? Reykjavík er strax út úr myndinni. Það sannaðist á Ungmennafélagi Islands í Kópavogi um árið. Það eru ekki margir staðir í nágrenni Reykjavíkur sem koma til greina. Eini staðurinn sem kemur upp í hugann og minnir að mörgu leyti á Laugar, er Laugarvatn. Þar gætu verið aðstæður til að taka á móti fjölda fólks, sem kallaði á mismunandi aðstæður til dvalar á staðnum. Vegalengdin frá Reykjavík að Laugarvatni er 77 kílómetrar, meðan 62 kílómetrar eru á milli Akureyrar og Lauga. Einnig gæti verið athugandi að skoða Selfoss í samstarfi við heimamenn. En nú þarf að bregðast fljótt við, því tvö ár eru trúlega lágmarks tími til að undirbúa lands- mót. Það eina sem vantar í þessa upptalningu eru Egilsstaðir og Isafjörður. Um Rangæinga og Suðurnesjamenn þarf ekki að fjölyrða. 3

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.