Harmonikublaðið - 01.12.2014, Síða 4

Harmonikublaðið - 01.12.2014, Síða 4
Það var um 10. ágúst að hringt var í mig. Það var Helga húsfreyja í Lindarbæ í Sæmundarhlíð, sem sagði að bóndi sinn, Sigmar, ætlaði að halda harmonikuball þann 17. ágúst frá klukkan átta til miðnættis. Ballið skyldi haldið í nýbyggðri skemmu þar á bænum, spilarar yrðu þeir Aðalsteinn Isfjörð, Jón Gíslason og Kristján Hansen. Allir vinir og velunnarar gömlu dans- anna og harmonikunnar væru velkomriir. En það verður ekkert auglýst, bara láta þetta berast. Þetta var erindi húsfreyjunnar í Lind- arbæ. Það er skemmst frá því að segja að þarna mættu rúmlega 70 manns í nýtt og glæsilegt aðstöðuhús sem þjóna á vélasafni Sigmars, því Sig- mar er ekki einungis mikill áhuga- maður um gömlu dansana og harmonikuna, heldur líka um gamlar vélar, sem hann safnar og hefur byggt mikil og góð hús yfir. Þarna er mjög góð aðstaða, ekki bara fyrir vélasafnið, heldur líka fýrir gleðskap sem þennan er hald- inn var í Lindarbæ þann 17. ágúst síðastliðinn. Þar buðu þau hjón Helga Stefánsdóttir og Sigmar Jóhannsson upp á góða músík, fóta- fjör, kaffi og kleinur, með dyggri aðstoð fjölskyldunnar. Þetta var hin besta skemmtun og ekki ástæða til að örvænta um framtíð harmonik- unnar meðan við höfum svo áhuga- sama og kraftmikla harmoniku- unnendur, sem hjónin í Lindarbæ eru. Hafi þau hjartans þakkir frá okkur, fýrir góða kvöldstund og til hamingju með nýju aðstöðuna. Sólveig Inga Það er vistlegt í vélaskemmunni. Myndir: GuSrtin Kristin Eiríksdóttir Kokkurinn var mtzttur í Lindarbœ Harmonikufélag Þingeyinga Upphafið var að framsýnir félagar fóru að huga að upptökum á ein- leik spilara 1982 til '84 og var unnið að því í samvinnu við Karl Hálfdánarson á Húsavík. Voru 8 harmonikuspilarar teknir upp og léku þeir tvö lög hver. Varð svo hlé til 1991 og var það þá Stefán Þórisson sem tók 7 spilara upp og aftur varð hlé til 1997 og þá bætt- ust nokkrir við. Um 2005 fóru þeir sem skoðuðu þetta efni að sjá skemmdir á fýrstu upptökunum. Þá var lengi búið að ræða hvað ætti 4 að gera með upptökurnar. Rétt fýrir jól 2010 datt mér og konunni minni í hug að gaman væri að fá kvikmyndagerðarmann til að skoða þetta efni. Guðmundur Bjartmars- son tók það að sér, með gerð heim- ildarmyndar í huga. Er Guðmundur lærður kvik- myndagerðarmaður og stjórn HFÞ samdi við hann um að vinna að þessu og vildi hann strax bæta við upptökum á þeim félögum sem ekki höfðu spilað áður og líka gera heimildamynd um starf félagsins. Kom fljótlega í Ijós að fýrstu upp- tökurnar voru farnar að tapa lit, en ekki hljóði og var það efni sett á sér disk og annar með nýjum upp- tökum. Þá fór af stað vinna við heimildaröflum á gömlum vídeó- spólum frá Stefáni á Hólkoti og ljósmyndum frá ýmsum félögum, einnig voru spólur frá landsmótum skoðaðar, tekin viðtöl og safnað saman allskonar efni sem Guð- mundur vann svo úr mjög skemmtilega. Fékk sá diskur nafnið Harmonikuást, þar sem okkur sem unnum að þessu fannst það koma mjög fram í viðtölum við spilarana. Tók þessi vinna nærri ár með hléum og var útkoman góð að mínu mad. Það sem gerði þessa vinnu mögulega var arfur sem félagið fékk, þegar Ásmundur Karlsson á Vaði lést arfleiddi hann HFÞ og Krabbameinsfélag Þingey- inga að öllu sínu fé. Afriti af öllu efni var komið fýrir í geymslu Safnahúss Þingeyinga og einnig á HFÞ afrit. Sigurður Ólafison

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.