Harmonikublaðið - 01.12.2014, Qupperneq 6
Það var Harmonikufélag Selfoss
sem stóð að fyrsta móti sumarsins
sem fór fram í blíðskapar veðri eins
og sést á meðfylgjandi myndum.
Þetta var hefðbundin útileguhátíð
með skemmtilegu fólki, harmo-
nikuspili úti á túni, skemmti-
sögum, kaffidrykkju og auðvitað
fjörið þegar Þórður Þorsteinsson
(Doddi rafvirki) og Birgir Hart-
manns stigu á svið og hófu leik.
Þeir fengu svo að kasta mæðinni
þegar hljómsveit Selfyssinganna
leysti þá af hólmi. Geir Guðlaugs-
son á Kjaranstöðum fór á svið með
Dodda og Reynir Jónasson var
Reynir ogBragi slógu ekki slöku viöfrekar en jyrri daginn. Myndir: GuSmundur Theodórs-
son
Seljyssingar taka lagið jýrir gesti jrá Bandaríkjunum, í blíSunni undir Ingóljsjjalli.
F.v. GuSmundur Theodórsson, ÞórSur Þorsteinsson, Helgi E. Kristjánsson, Birgir Hart-
mannsson, SigurSur GuSjónsson.
var grillað í blíðunni. Aðstæður eru
ágætar á svæðinu til útilegu og gott
hús til afnota. Allan föstudaginn
var fólk að tínast að og koma sér
fyrir. Eins og alltaf á fyrsta harm-
onikumóti sumarsins urðu fagn-
aðarfundir hjá mörgum, sem jafn-
vel höfðu ekki hist síðan í fyrra.
Strax á föstudagskvöldið byrjaði
tekinn til kostanna. Sveinn Sigur-
jónsson átti síðan síðasta hlutann
á föstudagskvöldinu. Ágætis þátt-
taka var í dansinum og gestir
almennt ánægðir með það sem var
fram borið. Laugardagurinn heils-
aði með sól og blíðu. Það var mikið
spilað og spjallað í blíðunni. Þegar
fór að nálgast kvöldverð kom Sig-
rún, dóttir Óla Th og Gyðu, sem
er fararstjóri, með stóran hóp
erlendra ferðamanna í heimsókn
til að leyfa þeim að upplifa stemm-
inguna á íslensku harmonikumóti.
Spilamennska var í gangi á mörgum
stöðum á svæðinu og var mikið
myndað og greinilegt að þetta
höfðu Bandaríkjamennirnir ekki
séð né heyrt áður. Um kvöldið
hófst sami leikurinn. Hljómsveit
heimamanna hóf leikinn og nú
hafði fjölgað verulega í húsinu.
Vindbelgirnir Friðjón og Hilmar
leystu heimamenn af og síðan tók
Garðar Olgeirsson við. Laugar-
dagsdansleiknum lauk síðan með
því að heimamenn léku út dansinn
og hafði þá sáralítið fækkað í
salnum, þó vel væri liðið á nótt.
Dansleikirnir tókust að flestra mati
vel enda margir snillingar á svæð-
inu. Samkvæmt upplýsingum frá
mótshöldurum verður framhald á
mótshaldinu. Mótsstaðurinn,
Básinn, undir vesturhlíðum Ing-
ólfsfjalls er notalegur staður með
ágætis aðstöðu. Björn bóndi í
Efstalandi gekk í það fyrir þrjátíu
árum að breyta fjósi og hlöðu í
veitingastað. Þar hafa gestir aðgang
meðan á mótinu stendur. Þá er
aðeins tíu mínutna akstur í Hvera-
gerði eða til Selfoss.
Harmonikufélag Selfoss
Guðmundur Theodórsson / FH
Kristján Þór Hansen
f. 10. júlí 1950 - d. 30. september 2014
Kristján Þór gekk snemma til liðs við Félag
harmonikuunnenda í Skagafirði og lék á
trommur. Fyrir 11 árum tók hann einnig
að sér að gegna störfum gjaldkera félagsins
og voru þar með allar fjárreiður félagsins í
öruggum höndum og í röð og reglu. Krist-
ján Þór var skemmtilegur og góður félagi,
rólegur og afslappaður, með húmorinn í
góðu lagi og alltaf tilbúinn að spila eða
vinna hvaðeina sem gera þurfti fyrir sitt
félag. Ótal ferðir fór hann á eigin bíl með
hljóðfæri og fylgihluti á hvern þann stað
þar sem spila átti og var fljótur að stilla upp
græjunum.
Eftirlifandi eiginkona Kristjáns Þórs er
Sigurbjörg Egilsdóttir. Þeim eru hér færðar
alúðar þakkir fyrir mikil og góð störf í þágu
Félags harmonikuunnenda í Skagafirði.
Blessuð sé minning Kristjáns Þórs Hansen
FHSfélagar
6