Harmonikublaðið - 01.12.2014, Page 12

Harmonikublaðið - 01.12.2014, Page 12
hálfan tíma að keyra hvora leið. Á þeim tíma bjó ég í Hollandi og notaði þá einnig tækifærið til að fara í nokkra tíma við tónlistarskóla í Maastricht í Hollandi hjá Dom- inique Paats. I dag er ég hins vegar í harmonikunámi við Tónlistar- skólann á Akureyri hjá Ingva Vac- lav Alfreðssyni.“ Vigdís er ekki eins forfrömuð að eigin sögn. „Nú er ég þó orðin hluti af hljómsveitinni Við og við, en Hildur og aðrir meðlimir hljóm- sveitarinnar búa hins vegar allir fyrir norðan. Hildur flutti norður á Akureyri fyrir einu og 1 Þessi hljómsveit er skemmtilegur hópur af flottum og reyndum tón- listarmönnum. Það eru hrein for- réttindi fyrir mig að fá að spila með þessu fólki. Eg næ auðvitað ekki alltaf að spila með þeim, þar sem það er talsvert langt á milli okkar landfræðilega síðan Hildur settist að fyrir norðan. Eftir það er erfiðara fyrir okkur að æfa reglulega en við höfum samt fundið leiðir til þess að halda áfram þessu samspili okkar. Ég fer öðru hvoru til Akur- eyrar eða hún kemur suður og þá spilum við til dæmis saman heila helgi og skipuleggjum næstu vikur og mánuði. Svo höfum við líka spilað inn á band og sent hljóðfæla á milli okkar. Ég hef síðan haft mjög gaman af því að fara norður og spila með Hildi á harmoniku- dansleikjum sem haldnir eru í Lóni af Félagi harmonikuunnenda við Eyjafjörð." Þær vinkonurnar leggja áherslu á hve ómetanlegt það sé að hafa kynnst og spilað með skemmtilegu og lífsglöðu fólki. „Næsta ævinfyri okkar Hildar er upptakan á disknum okkar, með léttri og skemmtilegri tónlist. Tónlistar- mennirnir í Við og við spila með okkur á diskinum og hann verður tekinn upp á Akureyri,“ segir Vig- dís. Þær Hildur og Vigdís vonast til að þeim takist að koma geisladisknum sínum út fyrir sumarið. „Þá getum við fylgt honum eftir á harmo- nikumótum sumarsins,“ segja þær vinkonur glaðbeittar. Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir Sigurður Hallmarsson f. 24. nóvember 1929 - d. 23. nóvember 2014 Þann 23. nóvember sl. andaðist félagi okkar, tónlistar- og fjöllistamaðurinn Sig- urður Hallmarsson, 85 ára að aldri. Hann var fæddur 24. nóvember 1929. Sigurður var kvæntur Herdísi Kristínu Birgisdóttur leikkonu en missti hana fyrir tæpum mán- uði síðan. Þeirra mun sárt saknað. Börn þeirra eru þrjú. Sigurður var lengi kennari við Barnaskóla Húsavíkur, skólastjóri þar og fræðslustjóri um tíma. Á efri árum var hann kórstjóri hjá Sólseturskórnum, kór eldri borgara á Húsavík og fram á sinn síðasta dag. Sig- urður lét hvorki aldur eða heilsuleysi buga sig. Sigurður, eða Diddi Hall eins og hann var kallaður, var óvenju fjölhæfur maður, starfssamur og kom mörgu í verk. Hann var tónlistarmaður, leikstjóri, leiktjalda- hönnuður og sviðsleikari. Hann var félagi í Leikfélagi Húsavíkur frá 1943 og allar götur síðan. Þar léku þau Herdís saman í fjölda eftirminnilegra sýninga og leiksfyrði Diddi mörgum. Þar lék hann líka ósjaldan á nikkuna og stjórnaði söng. Diddi var líka kvikmyndaleikari um tíma. Sigurður Hallmarsson var myndlistar- maður alla æfi, jafnvígur á portrett og lands- lag, vatnsliti og olíumálverk. Margir eiga ljúfar myndir eftir hann af Húsavík, Hús- víkingum eða Kinnarfjöllunum sem voru honum kær. Hann gerði meðal annars stóra veggskreytingu í Hvalasafnið á Húsavík, af fjöllunum og blasir hún við öllum er þar koma. Hann hélt nokkrar sýningar á verkum sínum, þó hann segðist vera tregur að sýna, en hann var enn að mála þegar ég síðast frétti. En síðast og ekki síst, var hann einn af okkar allra bestu félögum og harmo- nikuleikurum í Harmonikufélagi Þingey- inga í 36 ár. Hann var stofnfélagi þar 1978 og heiðursfélagi. Sigurður var sjálfmenntaður á harmoniku. Aðspurður sagðist hann hafa byrjað fjögurra eða fimm ára og aldrei hætt. Hann spilaði á böllum, barnasamkomum, leikskólum og í skólanum, líka eftir að hann hætti kennslu. Hann spilaði á sjúkrahúsinu, við jarðarfarir og dinnermúsik í veislum og var þá skemmtikraftur um leið, því leikarinn Diddi Hall hafði alltaf eitthvað að segja. Sviðsframkoman var líka ljúf, enda var hann hógvær maður. Fólk sagði gjarna: „Hann virðist ekki hafa neitt fyrir þessu hann Diddi. Hann getur allt.“ Sigurður spilaði mikið með Harmoniku- félaginu okkar, bæði hér og á Landsmótum Sambands íslenskra harmonikuunnenda, síðast á Landsmótinu á Laugum í sumar og einnig á Breiðumýrarhátíð. Hann spilaði bæði einleik og með öðrum, stjórnaði einnig lúðrasveit og harmonikusveit. Hann gaf út disk ásamt Ingimundi Jónssyni árið 2004 og lék inn á segulbönd ásamt Reyni Jónassyni, Árna Scheving, Guð- mundi Einarssyni og Didda fiðlu, sem notuð voru við danskennslu í skólum um allt land. Hann hlaut viðurkenningu S.Í.H.U. árið 2008 fyrir ötult starf að fram- gangi harmonikunnar og sagði af því tilefni að það gleddi sig mjög hvað harmonikan nyti orðið mikillar viðurkenningar og hvað mörg börn væru farin að læra á harmoniku. Ég gæti helst trúað að ekki hafi verið margir dagar í æfi Sigurðar sem hann ekki málaði eða greip í nikku heima hjá sér, en sjálfúr sagðist hann hafa mest gaman af að spila með öðrum. Sigurður var skemmtilegur, félagslyndur maður og drífandi í öllum félagsskap, enda var hann þannig að áhug- inn smitaði út frá sér. Sjálfúr komst hann þannig að orði þegar hann var spurður hvaða verk hefði verið skemmtilegast sem hann lék í. „Skemmtilegasta verkið var alltaf það sem ég var í hverju sinni.“ Ég er sannfærð um að þetta átti við um allt sem hann tók sér fyrir hendur. Hann lagði í það lífið og sálina. Við í Harmonikufélagi Þingeyinga þökkum Sigurði Hallmarssyni ljúft samstarfog ótal ánægjustundir og sendum börnum hans og fjölskyldu, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Fyrir hönd Harmonikufélags Þingeyinga Hólmfriður Bjartmarsdóttir 12

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.