Harmonikublaðið - 01.12.2014, Side 16

Harmonikublaðið - 01.12.2014, Side 16
Runólfur 3prki Armrsor íapríl 2013 fór fram keppnin um Harmonikumeistarann í sal Tón- listarskóla Garðabœjar. Meðal keppenda þar var Runólfur Bjarki Arnarson, einn afmörgum efnilegum harmonikuleikurum landsins. Ritstjóri fór á stúfana til aðforvitnast um hvar hann vari staddur í náminu. Við mœltum okkur mót á heimili hans við Digranesheiðina í Kópavogi, þar sem hann býr ásamt móður sinni. Þar er notalegt andrúmsloft með útsýni yfir Fífuhvamminn. Hvar er Runólfur Bjarki fæddur? „Ég er fæddur í Reykjavík 14. janúar 1998, sonur Ásdísar Hildar Runólfsdóttur tónlistar- kennara og Arnar Karlssonar. Við mamma bjuggum í Reykjavík fyrstu árin, en þegar ég var fjögurra ára fluttum við til Sauðárkróks þar sem hún var tónlistarskólakennari.“ Hvar byrjaði Runólfúr að læra á hljóðfæri? „Ég byrjaði í forskóla að læra á blokkflautu. Þeir sem ekki höfðu áhuga á einhverju sérstöku hljóðfæri fengu blokkflautu. Ári síðar í október 2005 fórum við mamma á tónleika í Salnum í Kópavogi. Þar voru Rússarnir íTerem kvartett- inum að leika. Ég heillaðist algjörlega. Eftir það var harmonikan í fyrsta sæti.“ Ásdís móðir er Runólfs er víóluleikari, sem kennir við Tónlistarskóla Kópavogs. Hún hefur leikið með mörgum tónlistarhópum. Það eru fleiri tónlistarmenn í ætdnni t.d. er Runólfur Þórðarson afi viðmælandans, efna- verkfræðingur og forstjóri áburðarverksmið- junnar í Gufunesi mikill áhugamaður um tónlist, ágætur píanóleikari, auk þess að „eiga einhver tonn af plötum“, eins og afabarnið orðaði það. Þá var Runólfur Þórðarson for- maður skólanefndar Tónlistarskóla Kópavogs og áhrifamaður í tónlistarlífi Kópavogs í áratugi. Runólfur leikur á þverflautu í Sinfóníuhljóm- sveit unga fólksins undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar, þess mikla hugsjónamanns. „Það er mjög gaman að leika á þverflautuna þar“. Hversu mikið æfir Runólfúr? „Ég reyni núna að æfa fimm tíma á viku. Þetta breyttist dálítið þegar ég kom í Menntaskólann í Hamrahlíð. Áður hafði ég meiri tíma til æfinga. Þetta er náttúrulega bara spurning um forgangsröðun. Fyrst er það skólinn, svo harm- onikan og síðast þverflautan. Svo einfalt er það. Ef ég er tæpur á tíma tekur þessi röð við.“ Runólfur hefur haft óvenju marga tónlistar- kennara um ævina. „Ég byrjaði hjá Tatu Kant- omaa. Svo fór hann og Yuri Fjodorov tók við. Það fór á sömu leið og þá var komið Vadim bróður hans. Helga Kristbjörg tók við af honum, 16 en núna er ég búinn að vera tvö ár hjá German Khlopin. Það hefur ekki auðveldað neitt að skipta svona oft um kennara. Maður er rétt að verða búinn að tileinka sér einhver atriði, þegar nýr kennari kemur með nýjar áherslur. En þetta er ákveðin áskorun á sinn hátt.“ Hver er hljóðfærasaga Runólfs Bjarka? „Ég byrjaði á 72 bassa Pigini nikku, sem var í eigu Tónlistarskólans í Kópavogi, en Tatu Kanto- maa lét kaupa harmonikur í skólann þegar hann kenndi þar. Síðar eignaðist ég Fisitalia nikku, sem ég lék á þar til síðastliðið sumar, þegar við keyptum rússneskan Jupiter, sem Ásta Soffía var að selja. Þetta er frábært hljóðfæri, sem stenst allar kröfúr." mikið til af fallegri tónlist, sem hægt er að leika á harmoniku." Hvað tekur við í framtíðinni? „Ég ætla að klára menntaskólann og stefni á að ljúka burtfararprófi frá tónlistarskólanum innan tveggja ára, svo hugsa ég málið. Það er ekkert ákveðið, en ég er raungreinamaður ef út í það er farið. Þetta kemur bara í ljós.“ Það er Bach sem hljómar þegar ég kveð þennan unga og efnilega tónlistarmann, sem er einn af þeim sem vonandi halda merki harmonikunnar á lofti í framtíðinni. FH Hver er staða harmonikunnar í dag? „Mér finnst meiri umfjöllun um harmonikuna núna, heldur en þegar ég var að byrja. Harm- onikan er líka nú orðið notuð mjög víða í alls konar tónlist.“ Á meðan viðtalinu stóð voru tveir kettir að sniglast í kringum okkur í stofunni. Þetta eru heimiliskettirnir, þeir Leó og Bína. Runólfur fullyrðir að þeir noti æfmgarnar hjá honum til að slaka á. I það minnsta kom Bína sér fyrir í hægindastól og bærði ekki á sér þegar Runólfur gaf rit- stjóranum sýnishorn af tónum í nýju nikkunni. Leo stóð hins vegar músavaktina á útidyra- tröppunum. Hvað er Runólfúr að spila? „Maður er náttúrulega að spila Piazzolla ásamt einhverjum öðrum sígildum stykkjum, eins og Szardas og svo er Bach sínum stað. Trú- lega eru harmon- ikuverk ekki stór hluti af sígildu tónlistinni, en það er svo

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.