Harmonikublaðið - 01.12.2014, Page 17
Urdráttur úr skýrslu stjórnar H.F.Þ.
á aðalíundi þann 5. október 2014
Félagsstarfið var líflegt og gott yfir
tímabilið frá síðasta aðalfundi þó
alltaf megi gera gott betra. Félagar
eru nú 104 - þrír gengu úr félaginu
- fjórir gengu í félagið en tveir
létust á árinu. Heiðursfélagar eru
fimm og sjötugir á árinu fengu
afmælisgjafir. Félagsfundir voru
fjórir auk aðalfúndar, stjómarfúndir
sex, sex dreifibréf til félagsmanna
voru póstlögð, dansæfingar voru
fimm, símtöl og tölvupóstur mikið
notaður.
Tekið var til í geymslu félagsins á
Breiðumýri. Eldri fundargerða-
bækur voru settar í geymslu á Safna-
húsinu Húsavík. Diskar með sögu
félagsins voru gefnir til Hvamms,
Skógarbrekku og til samveru aldr-
aðra í Mörk á Kópaskeri. Allir leik-
skólar á svæði félagsins frá Grenivík
til Þórshafnar fengu disk S.I.H.U.
með barnalögum og dönsum að gjöf
frá félaginu og ýmsir harmoniku-
leikarar spiluðu í leikskólum. Að
venju heimsóttu harmonikuleikarar
Hvamm, Skógarbrekku og samveru
aldraðra í Þingeyjarsveit og glöddu
með harmonikutónlist.
Stjóm H.F.Þ. F.v. Asrún AlfreSsdóttir, GuSný Gestsdóttir, Þórhildur SigurSardóttir for-
maSur, Jón Helgi Jóhannsson, SigurSur Leóssson
Árshátíð var haldin á Breiðumýri
og var Ólína Arnkelsdóttir veislu-
stjóri. Kveðandi kom með dag-
skráratriði, sýndur var dans og
Jóhannes í Rauðuskriðu fór með
gamanmál svo eitthvað sé nefnt.
Dansað var fram eftir nóttu við
undirleik okkar ágætu harmoniku-
leikara o.fl.
Á landsmóti SIHU á laugum fengu
þrír félagar HFÞ viðurkenningar
fýrir störf í félaginu, Inga Hauks-
dóttir, Sigurður Friðriksson og Jóel
Friðbjarnarson. I tilefni af Iands-
mótinu keypti félagið hátíðafána og
nokkrir félagar keyptu skyrtur og
bindi með merki félagsins.
Aðalfundur S.I.H.U. var haldinn
að Hótel Örk í Hveragerði 27. sept-
ember 2014. Þórhildur Sigurðar-
dóttir og Sigurður Ólafsson mættu
fráHFÞ
Góður félagi Guðný Buch var jarð-
sungin frá Húsavíkurkirkju 30.
ágúst sl. Hún var heiðursfélagi í
Harmonikufélagi Þingeyinga, ætíð
traustur og skemmtilegur félagi,
tilbúin að vinna félaginu sem hún
gat. Við vildum heiðra minningu
hennar og í samráði við Jón Ólason
son hennar, var hátíðafáninn okkar
á stöng í kirkjunni við athöfnina og
við stóðum heiðursvörð utan við
kirkjuna þegar kistan var borin úr
kirkju. Blessuð sé minning hennar.
Athugasemd rítstjóra. Hér hefur
verið drepið á það helsta úr starfi
HFÞ síðasta starfsár. Margs úr starfi
félagsins, hefur áður verið minnst
hér í blaðinu, enda Þingeyingar í
fararbroddi þeirra sem senda efni í
blaðið. Mættu önnur félög taka þá
til fýrirmyndar og senda fréttir.
Þórhildur Sigurðardóttir!FH
HERAÐSPRENT
Miðvangi 1, 700 Egilsstaðir
Sími 471 1449 I www.heradsprent.is
print@heradsprent.is
Cleðileg jól og forsælt komandi ór.
Verið velkomin í viðskipti.
17