Harmonikublaðið - 01.12.2014, Side 18

Harmonikublaðið - 01.12.2014, Side 18
I Róm skoðuðum við fræga staði, ss. Péturskirkjuna, Óskabrunninn og Spönsku tröppurnar en gosbrunnarnir voru í viðgerð og vatnslausir með öllu. Hins vegar tókst mér að ná ágætum blómamyndum í hótelgarðinum og auð- vitað var spilað og dansað á sólpallinum þar, á hverju kvöldi. I Róm voru blómstrandi runnar og rykugar fornminjar, kunnar dans bæði og vín daður og grín og bilaðir óskabrunnar. Á leið til Castelfidardo var dásamlegt útsýni en til skemmtunar hvatti Elsa okkur til að flytja eitthvað í hljóðnemann í rútunni. Þar fannst mér erfitt að halda jafnvægi, vegna þess að ég varð að standa og taka í einhverja græju til að setja farar- stjórasætið niður og datt ég í síðustu ferðinni. Það er óráð, að ætla í stólinn eftir þó nokkur staup og basla við bannsett tólin fyrir bílstjóra, að lokum ég kraup. I Castelfidardo átti að finna harmon- ikusafn og verksmiðju, hvar menn keyptu ólar á harmonikur. Seint gekk að finna þessa staði, en markað fundu konurnar auðvitað. Eilífðar gangan enda tók, undir steikjandi sól. Konurnar fúndu blúndubrók en bændurnir keyptu ól. Ég ætlaði að kaupa á mig fót en ekkert virtist passa. Kannske það eigi að klippa göt fyrir kjötmikla barma og rassa. Elsa og Reynir stjórnuðu hópnum af stakri þolinmæði og hældu okkur fyrir hvað við værum falleg og skemmtileg, en nefndu ekki staðreyndir, eins og t.d. skor- dýrabit á fótum. Henni finnst við svo falleg á litinn fölrauð og glansaði svitinn. baugarnir bláu og barmarnir háu en flottust þó flóa bitin. Á Rimini var heitt, enda sólarströnd með sundlaug og öllu, sem ég lagði þó aldrei í að prófa. Það var ferlega heitt þegar fór ég á stjá því fjaraði afl mitt og styrkur. Best var að hvíla sig, bakkanum á og bokkan var tæmd fýrir myrkur. Frá Rimini fórum við til San Marino, en þar eru brekkur brattar og komst ég ekki í hann krappari, í ferðinni. Allir vita hvað ellin er þung. Eftir er hroðaleg brekka. Ég lofa að verða aftur ung ef ég fæ bjór að drekka. Auðvitað var spilað og sungið á Rimini og bað Elsa mig að yrkja út frá hendingu sem er svona: „Góðu lögin gleymast ei, er glóir vín á skál“ og reyndi ég nokkrar útgáfur, við mismunandi tilefni. Það fyrsta var að einhver hafði sagt að við værum svo saklausir Islendingar, þarna á Ítalíu. Við erum saklaus íslensk grey en ekki tregt um mál. Góðu lögin gleymast ei er glóir vín á skál. Annað var að sumum þótti of mikið af pasta á matseðlinum á hótelinu og einn úr hópnum skilaði diski sínum af því honum fannst fiskurinn ekki nýr og fékk vín í sárabætur, svo ekki skyggði þetta á gleðina. Þó ýmsir pasta eti spart það ekki er vandamál. Góðu lögin gleymast vart er glóir vín á skál. Þó einhver hafni úldnum fisk er ekki heldur mál. Fyrir einn, ó-ednn disk má oftar segja; SKÁL! Karlar höfðu orð á að kvenfólkið væri alltaf að versla og sögðust bíðaábarnum. Þó inn í búð við örkum beint sem elskum skart og prjál. Góðu lögin gleymast seint er glóir vín á skál. Breiða veginn velja þeir þó víst sé brautin hál. Góðu lögin gleðja meir er glóir vín á skál. Og harmonikan hefur óm sem heillar hverja sál. Og góðu lögin glaðan hljóm er glóir vín á skál. Síðasta kvöldið var spilað úti á götu, eða kannske ekki síðasta, því hótelstjórinn vildi ólmur fá okkur aftur. Góðu lögin gleðja sál á götu, fram á nótt. Kætumst öll og klingjum skál og komum aftur..........á sama tíma að ári. Á heimleið frá Italíu. Næstum voru, á heimleið heftir harmonikusnillingar. Menn vildu halda Alla eftir á Italíu, að spila þar. Með kveðju og þakklœti fyrir yndislega ferð. Hólmfriður Bjartmarsdóttir

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.