Harmonikublaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 19
Elísabetar —limrur
Ég las fyrir hópinn úr ítölsku hjálpar-
bókinni minni ýmislegt varðandi
stefnumót
Svona var röðin þegar þeir skemmtu
okkur með harmonikuleik Alli ísf)örð;
Sigurður Eymunds og Baldur Geir-
munds
Hann er alveg eðal hann Alli
og spilar með trukki sá tralli
Hann tekur á sprett
bæði lipurt og létt
og leikur á nikkuna á balli.
Nú fer ég að gerast gróf
og gantast á ítölsku.
Vonandi stenst ég þetta próf
þó flaggi ég flaggi fölsku.
Fía kom með annan botn:
Konur eiga að kunna hóf
og klæmast á golfrönsku
Sigurður er býsna slyngur
og leikur við hvurn sinn fmgur.
Bæði í moll og dúr,
ó herra minn trúr,
enda himneskur Hornfirðingur
Ein vísa í viðbót. Framkvæmdastjórinn
Klaudian vildi fá okkur aftur á St.
Moritz hótelið að ári eða í júní og þess
vegna varð þessi vísa til.
Hér kemur hún Kaja pæja,
sem er gift þessum svaka gæja.
Hann spilar svo vel,
að bestan hann tel,
það er nú það jamm og jæja.
Allir góðir dagar taka enda,
og aftur tekur hversdagslífið við,
Á næsta ári ævintýrin lenda
á Rimini með þetta hressa lið.
L. ^XQ) Lm V*' >át