Reykjavík - 05.01.2013, Síða 4
4 5. janúar 2013
www.reykjavikblad.is
Við erum á Facebook
ÚTSALA
kjóll /sv. undirkjóll
fylgir
áður 16.990
nú 9.990
4 litir
Saltfiskur er
mikilvægur hluti
af matarmenningu
íslensku þjóðarinnar
frumkvöðlafyrirtæki ársins - fiskvinnsla frá árinu
Frábær gjöf handa Íslendingum út um allan heim!
Ekta saltfiskur tilbúinn til útvötnunar.
Tímarnir breytast en saltfiskurinn frá
Ekta ski, þessi gamli góði með
íslenskum kartöum og smjöri, stendur
alltaf fyrir sínu.
Sérútvatnaði saltfiskurinn er sérstaklega
hentugur í seiðandi saltfiskrétti.
Fæst um allt land. Hafðu samband!
466 1016
www.ektafiskur.is
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
...á þínum vegum!
568 5000
Seltjarnarnes
Bygging hjúkrunar
heimilis frestast
Fyrirhuguð bygging hjúkr-unarheimilis frestast eftir að skipulags- og mannvirkjanefnd
Seltjarnarness ályktaði að tillaga
að hjúkrunarheimilinu falli ekki
að byggðamynstri og götumynd
svæðisins, vestan við Seltjarnes-
kirkju. Í fundargerð nefndarinnar
kemur fram að á fundi fjárhags- og
launanefndar bæjarins hafi komið
fram athugasemdir frá sóknarnefnd
kirkjunnar og arkitekti hennar
við áform um staðsetningu hjúkr-
unarheimilis frá árinu 2009.
Skipulags- og mannvirkjanefnd
ályktaði að óbreytt tillaga Arkís falli
ekki að byggðamynstri og götumynd
svæðisins og hún skyggi á ásýnd kirkj-
unnar. Breytt þjónustuleið sé þó til
bóta. Nefndin segir að skoða mætti
tilfærslu og minnkun til að mæta
athugasemd skipulagsnefndar ásamt
athugasemdum arkitekts kirkjunnar
og sóknarnefndarinnar.
Stríðið við hálkuna
Væntanlega hefur ekki farið framhjá vegfarendum að glerhálka er víða á gang-
stígum og fleiri stöðum. Starfsmenn
Reykjavíkurborgar hafa í vikunni
farið um alla borg með salt og sand.
Meðal annars hafa verið nýttar nýju
dráttarvélarnar sem keyptar voru
ekki síst vegna svona verkefna.
Þeir sem vilja sanda hjá sér eða
salta geta fengið slíkt á hverfastöðvum
borgarinnar við Njarðargötu, Flóka-
götu, Stórhöfða eða Jafnasel.
Reykjavíkurborg tekur á móti
ábendingum um hvað megi betur
vinna í þessum efnum á vefnum
www.reykjavik.is/borgarland eða í
síma 411 1111.
Borgin hirðir jóla
trén ekki heldur í ár
Jólunum lýkur á morgun og þá eru jólatrén tekin niður, en rétt er að benda fólki á að Reykjavíkurborg
hirðir ekki trén í ár, frekar en hún
hefur gert undanfarin ár.
Borgaryfirvöld hvetja hins vegar
til þess að fólk fari með þau í endur-
vinnslustöðvar Sorpu, þaðan sem þau
fara í endurvinnslu. Eða að koma
þeim á þrettándabrennur á morgun.
Fyrir þá sem ekki hafa tök á að
koma trjánum frá sér má benda á
að sum íþróttafélög sjá um að hirða
jólatré gegn gjaldi.
Samstarf í
Heiðmörk
Reykjavíkurborg, Skógræktar-félag Reykjavíkur og Orku-veita Reykjavíkur hafa gert
samning um rekstur og þjónustu í
Heiðmörk.
Sameiginlegt markmið allra
þriggja er að standa vörð um neyslu-
vatnsauðlindina í Heiðmörk, efla og
bæta útivistarsvæði Reykvíkinga og
gera það eftirsóknarverðara til úti-
vistar að því er fram kemur í upplýs-
ingum frá Reykjavíkurborg.
Samingurinn er til tíu ára og sam-
kvæmt honum greiða borgin og OR
Skógræktarfélaginu endurgjald fyrir
þá þjónustu sem veitt er. Á þessu ári
nemur greiðslan nærri 40 milljónum
króna og greiðir Reykjavíkurborg
33 milljónir tæpar og OR nærri sjö
milljónir.
Hreinsað eftir áramótin
Leifar af áramótaskoteldum eru sjáanlegar víða um borgina og hvetja borgaryfirvöld fólk
til að safna þeim saman og skila til
Sorpu. Starfsmenn borgarinnar hafa
í vikunni hreinsað slíkt rusla víða
um borgina, meðal annars við Hall-
grímskirkju þar sem alla jafna miklu
er skotið upp.
Á heimasíðu Reykjavíkurborgar er
bent á að púður sé aðeins tíundi hluti
þyngdar skotelda, hitt sé pappi og leir
og að sá pappi henti ekki til endur-
vinnslu. Þá er fólki bent á að kanna
hvort skoteldar sem fara í tunnurnar
séu ekki örugglega sprungnir, því illa
getur farið þegar þeir fara í pressu
sorpbílanna. Ósprungnum flugeldum
á að skila í spilliefnamóttöku.
Fyrirhugað hjúkrunarheimili þykir skyggja á kirkjuna á Seltjarnarnesi.
Þessi listaverk voru unnin úr Óslóar-
trénu í fyrra.
Samingurinn um Heiðmörk undir-
ritaður.