Reykjavík - 11.01.2014, Side 10
10 11. janúar 2014REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Norrænt popp og plötusnúðar:
Nýr vettvangur fyrir tónlistarfólk
og tónlistarpekúlanta
Nordic Playlist er nýr vett-vangur á vegum Nordic Music Export (NOMEX)
þar sem ný tónlist frá fimm Norður-
löndum er kynnt. Í hverri viku verða
tvö lög með tónlist frá Danmörku,
Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð
valin saman á tíu laga lista sem birtur
verður á síðunni endurgjaldslaust fyrir
hlustendur. Verkefnið var sett á lagg-
irnar með það fyrir augum að styrkja
norrænt tónlistarlíf og auðvelda tón-
listaráhugafólki að komast í tengsl við
nýtt efni. Listunum má streyma bæði
af síðu Nordic Playlist (nordicplaylist.
com) og af tónlistarveitum samstarfs-
aðilanna Spotify, Deezer og WiMP.
Fyrsti listinn er samsettur af ritstjóra
Nordic Playlist, Francine Gorman, og
verða þeir framvegis valdir af tónlist-
armönnum og öðru fagfólki úr tónlist-
ariðnaðinum.
Plötusnúðar njóta sín
Á síðunni er sérstakur hluti tileinkaður
plötusnúðum. Þar fá norrænir skífu-
þeytar að setja saman og hljóðblanda
lagalista að eigin vali sem streymt er
af síðunni. Danski plötusnúðurinn
Kasper Bjørke er fyrstur til leiks, en
hann hefur getið sér gott orð innan
raftónlistarheimsins og er í hópi virt-
ustu plötusnúða á Norðulöndunum.
Anna Hildur Hildibrandsdóttir fram-
kvæmdastjóri Nordic Music Export
segir Bjørke hafa sýnt verkefninu
áhuga frá því síðastliðið haust. „Hug-
myndin um að hafa plötusnúð fæddist
hjá vefhönnuðinum okkar, Slobodan,
og vegna þess hve áhugasamur Kaper
hafði verið settum við okkur í sam-
band við hann til þess að útfæra hug-
myndina nánar.“ Á lagalista Bjørke má
einna helst finna nýlega danstónlist,
einkum tónlist sem hann leikur mkið
á klúbbum um þessar mundir. Plötu-
snúður vikunnar velur svo þann næsta
til þess að taka við keflinu og valdi
Bjørke hinn íslenska DJ Sexy Lazer
(Jón Atli Helgason) til þess að leggja
fram sína lagablöndu.
Ekki aðeins streymi
Auk þess að streyma vikulegum
lagalistum frá tónlistarpekúlöntum
og plötusnúðum verður einnig lögð
áhersla á að fjalla um tónlist og þá
einkum að vekja athygli á ungu og
áhugaverðu tónlistarfólki. Sem dæmi
má nefna að í hverri viku verður lag
með nýjum og spennandi tónlistar-
mönnum eða hljómsveitum kynnt
sérstaklega auk þess sem listar yfir
vinsælustu tónlistina í hverju landi
fyrir sig verða kynntir.
25 ÁR
Heimsent:
1.590 kr. + 900 kr. heimsendingargjald
· Nautakjöt í kungpaósósu
· Kjúklingur í sataysósu
· Djúpsteiktar rækjur með
súrsætri sósu
· Núðlur með grænmeti
Söngskólinn í Reykjavík
Í byrjun janúar verða inntökupróf í örfá skólapláss sem losna:
13. janúar byrja 7 vikna söngnámskeið:
SÖNGNÁMSKEIÐ
• Unglingadeild yngri 11-13 ára
• Unglingadeild eldri 14 -15 ára
• Almenn tónlistardeild Grunn-/ Mið-/ Framhaldsnám
• Háskóladeild Einsöngs-/ Söngkennaranám
• fyrir áhugafólk á öllum aldri
• kennt utan venjulegs vinnutíma
• raddbeiting / túlkun / tónfræði
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans
að Snorrabraut 54, sími 552-7366 kl. 10–16 alla virka daga• www.songskolinn.is
SÖNGNÁM
menningin
Helga Þórey
Jónsdóttir
Ekki missa af ...
...leikritinu Stóru börnin – ást til
sölu sem sýnt verður í Tjarnarbíói í
kvöld. Sýningin hefur fengið mikla
athygli og jákvæða dóma, en þar er
tekist á við spurningar um ástina
og gildi hennar. Í verkinu er sagt frá
miðaldra smið, Kristjáni, sem kemur
í hús Mömmu í leit að ást sem hann er
tilbúinn til að borga fyrir. Móðurást.
Mamma elskar hann og annast fyrir
ákveðna upphæð, eins og önnur stór
börn. Lab loki sýnir verkið í leikstjórn
Rúnars Guðbrandssonar. Lilja Sig-
urðardóttir skrifaði verkið. Sýningin
í kvöld er sú síðasta sem hefur verið
auglýst.
...sýningunni Dagar undrabarns-
ins eru á enda í gallerí Þoku, Lauga-
vegi 25. Þar greina myndlistarkonan
Rakel McMahon og ljóðskáldið Berg-
þóra Snæbjörnsdóttir samfélagið út
frá sjónarhóli einstaklingsins, einveru
innan þess og fáránleika. Þær skoða
einnig flökt milli einkalífs og gægju-
þarfar, hrifningar og blætis, minnis
og fortíðarþrár. Sýningin stendur
frá klukkan 16:00 til 18:00 og hefst
á gjörningi.
...kvikmyndinni Hross í oss í
leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
Myndin er hefur hlotið mikið lof
gagnrýnenda og hefur unnið til
verðlauna, meðal annars á Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Tokyo. Hross
í oss er sýnd í Bíó Paradís klukkan
átta í kvöld.
...tónleikum gítarleikarans Hilm-
ars Jenssonar í tónlistar- og menn-
ingarhúsinu Mengi að Óðinsgötu 2.
Hann hefur útskrifaðist frá tónlistar-
skóla FÍH árið 1987 og lauk BM gráðu
frá Berklee College of Music. Hilmar
hefur leikið með tríói sínu TYFT í
35 löndum og hefur hljóðritað með
fjölda tónlistarmanna um heim allan.
anna Hildur Hildibrandsdóttir
Kasper Bjørke