Reykjavík


Reykjavík - 11.01.2014, Qupperneq 12

Reykjavík - 11.01.2014, Qupperneq 12
Ögurvík býður sjómönnum, starfsmönnum sínum, sem og öllum landsmönnum, gleðilegt ár. Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-16 AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM 70% Allt a ð ÚTSALA Valencia sett 3+1+1 verð 140.900 áður 4 69.900 Písa-Rín Sófasett 3+1 verð 169.900 áður 286.800 Rúm 153x200 frá 99.000 verð áður 218.900 Bast stólar 9.900 verð áður 24.900 Heilsukoddar 2.900 verð áður 6.900 Hillur 15.900 stærð: 80x206x42 Púðar og fjarstýringavasar verð frá 2.900 nokkrir litir Sjónvarpsskápar 33.500 verð áður 47.900 Skenkur 235x80x52 frá 77.000 verð áður 221.900 Tungusófar frá 125.930 kr Hornsófar frá 143.900 kr Sófasett frá 140.900 kr 12 11. janúar 2014REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Áróður fyrir eigendur? Blaðamaður gætir fyrst og síðast hagsmuna lesenda. Þetta þykja okkur almenn sannindi og er í siðareglum Blaðamannafélags Íslands. Blaða- og fréttamenn hafa nefnilega það hlutverk að upplýsa almenning. Leiðar- ahöfundur Morgunblaðsins virðist hins vegar hafa aðrar hugmyndir um þetta. Fjölmiðill hafi eingöngu skyldur við eiganda sinn. Það stenst ekki. Staðlaus fullyrðing Upplýsandi klausa birtist í leiðara Mbl. 3. janúar: „Fréttablaðið hefur að vísu engar skyldur við neinn nema eiganda sinn, því blaðið er borið til þeirra sem vilja ekki fá það, sem hinna. Ríkisútvarpið hefur á hinn bóginn margvíslegar skyldur, sem m. a. eru ákvarðaðar með lögum […].“ Hér birtist sýn ritstjóra Mbl. á fjöl- miðlarekstur. Rétt eins og fullyrt er – ranglega – að Fréttablaðið hafi aðeins skyldur við eiganda – ekki almenning, þá liggur í orðunum að hið sama geti átt – eða eigi – við um Mbl. Dreifing skiptir ekki máli hér. Ekki bara blaðamenn Siðareglan sem vitnað var til í upphafi á ekki bara við um blaðamenn. Sama á við fjölmiðlafyrirtæki. Fjölmiðlarnir eru upplýsingaveitur sem fólk reiðir sig á og í lýðræðissamfélagi skiptir auðvitað máli að það sem sett er fram hafi upplýsingagildi fyrir fólk – ekki áróðursgildi fyrir eigandann. Þetta er frumskylda fjölmiðils, óháð rekstrarformi eða eignarhaldi. Og þótt það sé ekki höfuðatriði, þá er þetta líka í lögum: „Fjölmiðlaveita skal í starfi sínu halda í heiðri lýðræðislegar grund- vallarreglur […],“ segir í 26. grein fjölmiðlalaga. Þannig er skylda allra fjölmiðla í lýðræðisríki við almenning. Auðvitað er þetta ekki alltaf einfalt. Bæði hefur eignarhald áhrif á áherslu fjölmiðla og rekstrarformið ekki síður. Þannig hefur verið sýnt frá á dæmi þess, bæði hér og erlendis, að fjöl- miðlum hafi verið beitt grimmt í þágu eigenda eða hugmyndafræði þeirra. Það kemur nokkurn veginn niður á sama stað. Einnig hafa verið færð rök fyrir því (t. d. Edwin Baker í bókinni Advertis- ing and a Democratic Press, 1994) að fjölmiðlar sem eingöngu hafa tekjur af auglýsingum lúti boðvaldi auglýsenda þegar upp er staðið. Ekki er það nú gott. Skyldan er skýr Fjölmiðar eru sannarlega tæki til að hafa áhrif á viðhorf almennings. Hægt er að beita fjölmiðli sem öflugu áróð- ursvopni. En enda þótt eigendur geti hafa beitt fjölmiðlum í eigin þágu, eða þeir orðið deigir undir valdi auglýsandans, þá er skyldan samt skýr: Hún er við lesendur, hlustendur og áhorfendur – engan annan. Var þetta „sorpblaðamennska“? Birting 365 miðla á myndskeiði sem sýnir þegar flugvél Mýflugs hrapaði í fyrrasumar, hefur vakið miklar umræður. Fréttastofa 365 hefur flutt fréttir af málinu í tengslum við bráðabirgðaskýrslu um slysið sem kom út í byrjun október. Tveir menn fórust í slysinu, en þetta mun vera í fyrsta sinn sem myndir af slysi eru birtar í íslenskum fjölmiðlum með þessum hætti. Umræðan hefur bæði snúist um réttmæti þess að myndir af þessu tagi séu birtar, um mörk almannahags- muna og nærgætni við aðstandendur en varpar einnig ljósi á algengan vanda í íslenskri fjölmiðlun, þögnina. Sorgin tvöfalt þyngri Hildur Eir Bolladóttir, prestur á Akur- eyri, segist vera hlynnt umfjölluninni um slysið, en hefði viljað sleppa því að birta myndbandið, þar sem flugvélin sést skella á jörðinni. „Mín reynsla af því að fylgja syrgj- endum eftir sem hafa orðið vitni að banaslysi ástvinar og hreinlega séð hann deyja er að sorgin er heldur þyngri og jafnvel tvöfalt þyngri en ef viðkomandi hefur ekki orðið vitni að hörmungunum og aðeins fengið réttar og skilmerkilegar upplýsingar um at- burðinn. Það er munur þarna á og þess vegna dreg ég í efa réttmæti þess að myndskeiðið sé birt.“ Leifur Hallgrímsson, fram- kvæmdastjóri Mýflugs, kallar um- fjöllun 365 miðla hins vegar „sorp- blaðamennsku“ í samtali við Akureyri vikublað. Leituðu víða fanga Atli Þór Fanndal blaðamaður, er á öðru máli. „Myndbirtingin er liður í mjög ítar- legri fréttaskýringu sem er líkleg til að vera upphafi af fjölda frétta og mikilla skrifa. Á fréttaskýringunni má sjá að henni er líklega ætlað að koma losi á málið svo þeim fjölda spurninga sem enn er ósvarað verði örugglega svarað.“ Vísar út fyrir slysið Þorbjörn Þórðarson, fréttamaður 365, hefur sagt að margir hafi neitað að tjá sig um málið, við vinnslu fréttanna, jafnvel ekki skilgreina sérfræðihugtök. Ekki er óalgengt að erfitt sé að nálgast upplýsingar. Atli Þór Fanndal segir að frétta- skýring 365 miðla varpi ljósi á þennan vanda. Harmsaga fámennis, hags- muna og meðvirkni Björn Þorláksson, ritstjóri Akureyrar vikublaðs, tekur í svipaðan streng. „Þessi klúbbaþöggun nær yfir margt hér á landi. Verkfræðingar sem ekki stimpla fyrirhuguð virkjanaáform fá enga vinnu í þeim geira. Endurskoð- endur sem ekki stimpla vafasamar færslur eiga erfitt uppdráttar. Milljón önnur dæmi, háð tengslum, venslum, tækifærum, lífsafkomu. Harmsaga fámennis, hagsmuna og meðvirkni er ægilegt mein hér á landi.“ fjöLmiðLar Ingimar Karl Helgason Hildur Eir Bolladóttir. atli Þór Fanndal Skjámynd úr myndbandinu sem 365 miðlar birtu.

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.