Reykjavík


Reykjavík - 05.04.2014, Blaðsíða 5

Reykjavík - 05.04.2014, Blaðsíða 5
Hótel Selfoss – 4 stjörnur á Suðurlandi Mikil endurnýjun hefur átt sér stað á Hótel Selfossi síðustu mánuði og segir Jónas Yngvi Ásgrímsson, markaðs- stjóri hótelsins að nýjir eigendur hafi hleypt nýju lífi í hótelið. Hann segir að framundan séu ótal skemmtileg verkefni og í samstarfi við ferða- þjónustuaðila á Suðurlandi vilja þau kynna það góða sem er í gangi hér í kring. Hótel Selfoss hefur sannarlega mikið uppá að bjóða og til að mynda hefur glæsilegt útsýni yfir Ölfusá slegið í gegn hjá gestum hótelsins og gert matarupplifunina einstaka. Eins er hótelið tilvalið fyrir árshátíðir og ráðstefnur þar sem það hefur að geyma stóra og góða sali. Nú er hótelið að fara af stað með skemmtilegt tilboð í samvinnu við nokkra golfvelli á Suðurlandi, þar sem gestum hótelsins býðst að spila golf og skella sér í spa að deginum loknum. Hótelið býður upp á fyrsta flokks spa þar sem ljúft er að slaka á, og endur- nærast á líkama og sál. Það er gaman að segja frá því að eftir 8 ára hlé verður loks dansleikur á Hótel Selfossi þar sem Greifarnir og Siggi Hlö munu ríða á vaðið og skemmta gestum og gangandi. Dansleikirnir verða nú með reglulegra bili nú en þeir hafa verið síðustu ár. Um páskana munu þeir Valgeir Guð- jónsson og Jón Ólafs spila á hótelinu fyrir matargesti, en hægt að sjá meira um það á síðu hótelsins. 55. apríl 2014 REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Golf og Spa áHótel Selfossi! Í apríl og maí verður Hótel Selfoss með sérstakt Golf eða Spa tilboð. Fjórir golfvellir eru í boði í nágrenni við hótelið. Eftir hringinn er tilvalið að skella sér í Riverside Spa og slaka á eftir góðan dag í fallegu umhverfi. Hægt er að velja Golf eða Spa með eða án þriggja rétta kvöldverðar. Nánari upplýsingar á www.hotelselfoss.is / info@hotelselfoss.is / S: 480-2500 Hótel Selfoss - allt sem þú óskar þér!

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.