Reykjavík


Reykjavík - 05.04.2014, Blaðsíða 4

Reykjavík - 05.04.2014, Blaðsíða 4
4 5. apríl 2014REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Skilvirkar samgöngur Í mikilvægum borgum í fjölmörgum löndum, sér í lagi höfuðborgum, eru reknar samgöngumiðstöðvar sem tryggja að fólk nái þangað hratt og örugglega af ýmsum ástæðum. Nægir að nefna erindi vegna stjórnsýslu, við- skipta, heilsu fólksog menningarstarfa. Járnbrautarstöðvar gegna mikilvægu hlutverki og mikið land fer undir marg- spora brautarlagnir þvert um borgirnar, miðbæ jafnt sem úthverfi. Algengt er að flugvellir komi líka til sögu, djúpt inni í sumum borganna eða í jaðri þeirra. Líta má til Eystrasaltslandanna: Þau eru öll minni en Ísland og þar búa 1,2 til 3 milljónir manna, fæstir í Eistlandi, flestir í Litháen. Í þremur höfuðborg- unum eru flugvellir, raunar alþjóða- flugvellir, og járnbrautarstöðvar. Í höfuðborgum þar sem næsti flug- völlur er í 20 til 50 km fjarlægð hvílir þungt aukaálag á járnbrautarkerfinu. Hvergi er þó að finna sérlagðar lestar- leiðir inn og út úr borgum sem eru af stærðargráðunni 100 til 200 þúsund manns (nema þar sem þær eru hluti af heildstæðu þjóðarneti). Ekki heldur í samfélögum sem telja alls 200 til 300 þúsund manns. Til þess eru kerfin og reksturinn allt of dýr. Erfitt er að reikna ferðatíma fólks til fjár eða meta umhverfisáhrif af sam- göngum sem tengjast miðborgum. Líka er flókið að vega sömu atriði á móti samgöngumynstri sem gerir hvorki ráð fyrir nálægum flugvelli né miðlægri járnbrautarstöð. Þegar rætt er um staðsetningu samgöngumiðstöðvar í Reykjavík eða um staðsetningu borgarflugvallar eða hraðlest á Reykjanesskaga (með jarðgöngum á höfuðborgarsvæðinu) er hjakkað í sama fari árum saman. Landleysi og dreifð borgarinnar, ásamt verðmæti byggingarlands í Vatnsmýri og styttri ferðatíma ætlaðra íbúa þar, er alfa og omega eins hóps. Aðrir ætla að leysa vandann með hraðlest og Keflavíkurflugvelli. Enn aðrir leita með logandi ljósi að dýrum eða vandnot- uðum flugvallarstæðum og enn aðrir leggja til að breyta eigi að nokkru legu núverandi flugbrauta, stytta þær og endurskoða um leið varaflugvelli landsins. Ofan í sama farið stökkva svo sumir borgarfulltrúanna og telja að þeim sé falin siðferðileg skylda til að sjá um niðurlagningu Reykjavíkurflug- vallar (en ekki endurgerð hans einhvers staðar). Samkvæmt skipulagslögum, sem ekki gera ráð fyrir að ríkisstjórn geti tekið fram fyrir hendur sveitarfé- laga í stærstu þjóðþrifamálum, hefur meirihluti sérhvers kjörtímabils vissu- lega úrslitavald um samgöngur við höf- uðborgina. Það er samt sem áður ekki skynsamlegt verklag. Inn í þetta undarlega landslag um- ræðu og stjórnmála þarf bætt verklag og einfalda hugmyndafræði. Grunn- skylda jafnt borgarfulltrúa sem ríkis- valdins er að tryggja að beinu og stutt- aralegu samgöngurnar við Reykjavík séu til staðar og ekki dýrari en svo að þær sé hægt að reka og almenningur geti ekki aðeins nýtt þær, heldur líka borgað fyrir þær sanngjarna upphæð. Enn fremur að þær séu með eins litlu, neikvæðu umhverfisspori og unnt er miðað við tækni og stærð samfélagsins. Dreifð Reykjavíkur er staðreynd sem varð til á árunum 1964 til 2008 og þeim mistökum verður ekki bjargað með því að svipta borgina hlutverki sínu sem einn helsti miðpunktur viðráðanlegra samgangna í landinu. „Líta þessir aðilar í Grindavík á þetta fólk sem hefur byggt upp þessi fyr-irtæki sem einhverja þræla í vinnubúðum sem þeir geta tekið með sér á þann stað sem þeir kjósa hverju sinni?“ spurði Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona Vinstri grænna á Alþingi. Spurningin er skiljanleg en tilefnið var sú fyrirvaralausa ákvörðun útgerðar- félagsins Vísis í Grindavík að segja upp öllu starfsfólki á Þingeyri, Djúpavogi og Húsavík. Fimmtíu á hverjum stað, segir í fréttatilkynningu fyrirtækisins. „Markmiðið með ofangreindum hugmyndum er að styrkja fyrirtækið, gera það samkeppnishæfara og tryggja sem best að starfsfólk Vísis og fjölskyldur þeirra geti treyst á fyrirtækið til langframa sem öruggan og traustan vinnu- stað,“ segir í yfirlýsingu Vísis. Spyrja má hvort þetta sé trúverðugt. Vísir hefur rekið starfsemi á þessum stöðum árum saman. Fólk sem þarna hefur starfað hefur margt hvert búið þarna lengi, komið sér fyrir, keypt sér hús. Börnin hafa verið í skóla í litlu bæjunum og útsvarið sem fólkið hefur borgað, hefur farið í að greiða fyrir innviðina og þjónustuna í heimabænum. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir 150 fjölskyldur í þremur litlum bæjum úti á landi. Enda þótt Vísir vilji flytja fólk suður til Grindavíkur og bjóða fólkinu áframhaldandi vinnu þar, þá má spyrja hvort það sé í alvörunni raunhæft. Enda þótt fasteignaverð í Grindavík sé langt í frá á pari við það sem tíðkast í 101 Skuggahverfi, þá má ætla að húsnæðið kosti meira en á Djúpavogi. Svo má horfa til þess að maki þess sem nú missir vinnuna er ef til vill í vinnu annars staðar í plássinu. Börnin eru í skóla. Allir hafa fest rætur. Og í litlum bæ munar um hverja manneskju. Það er gríðarlegt högg fyrir samfélag að fimmtíu störf séu þurrkuð út á einu bretti. Ekki verður séð að Páll J. Pálsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem sjálfur á fimm prósenta hlut í Vísi hafi séð ástæðu til að leggja orð í belg í þessu máli, ekki einu sinni á Facebook. Það nýjasta sem þar er að finna er mynd af honum á skíðum í útlöndum. Vísir er eitt þeirra íslensku fyrirtækja sem nýta okkar sameiginlegu auðlind. Fyrirtækið hefur fengið yfir fjögur prósent af heildarkvótanum við landið í sinn hlut. Og ekki aðeins það, heldur einnig fengið byggðakvóta á þeim stöðum þar sem það hefur haft starfsemi. Þessu fylgir mikil samfélagsleg ábyrgð. Ekki verður séð að stjórnendur og eigendur Vísis standi undir þessari ábyrgð. Ingimar Karl Helgason Leiðari Samfélagsleg ábyrgð Reykjavík vikublað 13. Tbl. 5. áRganguR 2014 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is, Veffang: fotspor.is, Ritstjóri: Ingimar Karl Helgason, sími: 659-3442 netfang: ingimarkarlhelgason@gmail.com, Blaðamaður: Atli Þór Fanndal. Netfang: atli@ thorfanndal.com. Menningarblaðamaður: Hildur Björgvinsdóttir. Netfang: hildurbjorgvins@gmail.com. Matarblaðamaður: Svavar Halldórsson. Sími. 869-4940. Netfang. svavar@islenskurmatur.is, Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 50.000 eintök. dreifing: Fríblaðinu er dreiFt í 50.000 e intökum í allar íbúðir í reykjavík. UMHVERFISVOTTUÐ PRENTUN Lært af reynslunni Stjórnarformaður óskabarns þjóðar- innar, Richard Winston Mark d’Abo, segir að horft sé til þess að Eimskipa- félagið muni ráðast í stærri yfirtökur. Haft var eftir honum í fjölmiðlum í vikunni að markaðurinn umbuni félögum sem vaxi og skili auknum hagnaði. Þetta hljómar ekki ósvipað og formúlan sem fylgt var fyrir Hrun. Félagið óx og óx með yfirtökum um allan heim en síðan kom hrunið og í framhaldinu var haldið upp á aldaraf- mæli félags með mun yngri kennitölu. Meiri reynsla Nú stendur til að hjálpa b a n k a - mönnum að hækka kaupið sitt, en í nýju frumvarpi segir að greiða megi bónusa sem geta numið heilum árslaunum. Í Rannsóknarskýrslu Alþingis er bent á að hrun fjármála- kerfisins megi að hluta til rekja til upp- byggingar kaupauka- og hvatakerfa innan fjármálafyrirtækjanna sem fóru á hausinn með afleiðingum fyrir allt samfélagið. Sjálfsagt má finna leiðir til þess að koma í veg fyrir að menn verði græðginni að bráð. En spyrja má hvaða þjóðhagsleg nauðsyn sé fyrir því að greiða fyrir launahækkun þeirra sem hæst launin hafa fyrir í samfélaginu. Geislavirkni Deilur Ís- lendinga og Bandaríkja- manna vegna hvalveiða á sér áhugaverða hlið, því nú siglir frystiskip héðan með farm af hvalkjöti til Japans. Siglingaleiðin er áhugaverð, segir Anna Kristjáns- dóttir vélfræðingur, en skipið fari ekki um Súezskurðinn, heldur suður fyrir Afríku. „Það lítur út fyrir að farmurinn sé stórhættulegur, geisla- virkur eða eitthvað enn verra. Það er þó ekki svo. Farmurinn er hvalkjöt. Þarf virkilega að flytja hvalkjöt fleiri þúsund aukalega kílómetra til að koma því á markað í Japan? Skipið er látið sigla í gegnum hitabeltið, yfir miðbaug og suður fyrir Góðrarvonarhöfða og síðan aftur yfir miðbaug á leiðinni yfir Indlandshafið. Það er engum að treysta og þar eru spönsk og egypsk yfirvöld meðtalin. Eins gott að ekkert bili í frystikerfum skipsins á þessari sjóðheitu siglingaleið.“ Í fréttum Milljón eða þrjár Forsætisráðherrann lenti í miklum vandræðum í viðtali við Lóu Pind Al- dísardóttur í þættinum stóru málin í upphafi vikunnar. Hann var til dæmis spurður um forsendur útreikninga á millifærslu stjórnvalda, en lítið varð um svör. Þannig gat hann ekki skýrt hvers vegna fjölskylda með 22 millj- óna króna lán var í nóvember sögð fá 3 milljónir króna í „leiðréttingu“ en á blaðamannafundi í síðustu viku var kynnt að sama fjölskylda fengi ekki nema milljón. Mál manna er að fáir pizzustaðir myndu endast í brans- anum með svo örum breytingum á verðskrá. Björt fortíð „Alþingi ályktar að fela forseta Al- þingis að móta stefnu fyrir Alþingi um notkun samfélagsmiðla til að auka sýnileika Alþingis með það að leiðarljósi að auka upplýsingaflæði til borgaranna og bæta ímynd Alþingis.“ Þannig hljóðar þingsályktunartillaga þingmanna Bjartrar framtíðar sem nú er í nefnd. Málið er bara að skrif- stofa Alþingis var farin af stað nokkuð löngu áður en ályktun þessi var lögð fram. Lesa má um þetta í umsögn skrifstofustjóra Alþingis um málið, sem „er því þegar í ákveðnum farvegi“ segir þar. Auk þess sem skrifstofu- stjórinn upplýsir þingmenn um að Alþingi hafi haldið úti Twitter síðu frá 2010, en tengill á hana er á forsíðu á heimasíðu Alþingis og hefur þingið þegar birt hátt í þrjú þúsund „tíst“. Undir beltisstað Glöggir lesendur tóku eftir því að meinleg villa var í yfirfyrirsögn á forsíðu síðasta tölublaðs Reykjavíkur vikublaðs. Þar sagði að fólk væri óá- nægt með kröfur um „styttingu sam- fara“ í tengslum við kjaraviðræður framhaldsskólakennara. Þarna átti vitaskuld að standa „styttingu náms“ og biðst blaðið afsökunar á mistök- unum. héðan og þaðan … Ummæli með erindi: „Það sem sló mig þegar ég sá við-mælendalistann, var hrópandi kvenmannsleysi í þessari umfjöllun. Einhverra hluta vegna virðist þetta vera málaflokkur þar sem Ríkisútvarpinu virðist vera algjörlega ómögulegt að finna viðmælanda af kvenkyni, sem ég undra mig mjög á, vegna þess að nóg er af þeim. Konur hafa ekki síst gert sig gildandi í þessari umræðu og mér finnst þess vegna mjög skrítið ef Ríkisútvarpið okkar allra finnur ekki kven- viðmælendur í meira mæli en þessi saman- tekt ber vitni.“ - Katrín Júlí- usdóttir, í umræðum um fréttaflutning Ríkisútvarpsins af málum tengdum Evrópusambandinu á Alþingi í vikunni. Höfundur er Ari Trausti Guðmundsson Þessi mynd frá Jafnréttisstofu sýnir hlutfall karla og kvenna í ýmsum áhrifa- stöðum í samfélaginu.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.