Reykjavík


Reykjavík - 05.04.2014, Blaðsíða 14

Reykjavík - 05.04.2014, Blaðsíða 14
14 5. apríl 2014REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Færri bílar gætu sparað samfélaginu 8 milljarða á ári Verði spornað við fjölgun bíla, samfara fólksfjölgun á höfuðborgarsvæð- inu, og áhersla lögð á fjölbreyttari samgöngur en einkabíla, mætti spara samfélaginu allt að 195 milljarða króna á tímabilinu 2015-2040. Þetta kemur fram í spá um þróun byggðar- og samgangna á höfðborgarsvæðinu, í tengslum við nýtt svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins. Unnið er að nýju svæðisskipulagi fyrir höfuðborgarsvæðið til ársins 2014 á vettvangi Sambands sveitarfélaga. Drög að skipulagi fyrir svæðið eru nú í kynningu en hugmyndin er að sveitarfélögin á svæðinu leggi fram sameiginlega áætlun um náið sam- starf í skipulagsmálum og um vöxt á höfuðborgarsvæðinu næstu áratugi. „Sýn Höfuðborgarsvæðisins 2040 er sú að svæðið sé eitt búsetusvæði, einn atvinnu- og húsnæðismarkaður með sameiginleg grunnkerfi, útivistarsvæði, auðlindir og náttúru,“ segir meðal annars um framtakið á vef Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Mikil fólksfjölgun Áætlað er að íbúum höfuðborgar- svæðisins geti fjölgað um 70 þúsund fram til ársins 2040. Samgöngur eru meðal þess sem sérstaklega er fjallað um í skipulaginu, en spurt er: „Hvernig munu 275 þúsund íbúar og gestir þeirra ferðast á hverjum degi um höfuð- borgarsvæðið?“ Gert er ráð fyrir því í núgildandi svæðisskipulagi að bílaumferð muni aukast langt umfram fjölgun íbúa. Í þeim plönum er lögð áhersla á að auka afkastagetu gatnakerfisins; að ráðist verði í umfangsmiklar fjárfestingar í umferðarkerfinu til að taka við allri umferð, án þess að umferðartafir auk- ist. Neikvæð reynsla erlendis Hins vegar hefur reynsla af slíkri stefnu ekki þótt jákvæð. Í flestum borgarsam- félögum af svipaðri stærð hafi sú stefna verið tekin að efla aðra ferðamáta en einkabílinn; að íbúum fjölgi án þess að bílaumferð aukist. Fram kemur í samantekt sem birt er á vef Samtaka sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu að þróun bílaumferðar í 85 borgum í Bandaríkjunum, yfir 20 ára tímabil, hafi sýnt að meðaltafir í umferð á annatíma hafi tvöfaldast, enda þótt umtalsvert hefði verið fjár- fest í gatnakerfinu. Hvergi hafi tekist að auka afkastagetu gatnakerfisins nægilega hratt til að mæta aukinni bílaumferð. Meiri tími í umferðinni Í samantektinni segir að umferðarspár bendi til þess að erfitt verði að uppfylla ferðaþarfir fólks með góðu móti, ein- göngu með því að bæta við umferðar- mannvirkjun. Vaxi höfuðborgarsvæðið út á við að mestu og val fólks á far- kostum óbreytt miðað við núverandi stöðu, muni bílaumferð aukast langt umfram íbúafjölgun. Þá myndi sá tími sem hver og einn eyðir að jafnaði í um- ferðinni aukast um fjórðung. Þá myndu tafir í umferðinni aukast verulega, enda þótt miklu fé hefði verið varið í um- ferðarmannvirki. Þéttari byggð Þar segir einnig að verði vöxturinn á höfuðborgarsvæðinu inn á við, byggð þéttist, auk þess sem fé verði bundið í góðu kerfi almenningssamgangna, verði staðan árið 2040 töluvert öðru- vísi. Þá er miðað við að val fólks á ferða- máta verði í takt við það sem tíðkast í norrænum borgum af sambærilegri stærð; enda þótt margir fari áfram um á einkabílnum. Spár gefi til kynna að við slíkar aðstæður verði minna um tafir í umferðinni. Samfélagið sparar Í yfirliti á vef Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu segir að þegar borið sé saman við óbreytta samgöngu- stefnu, geti verulegar fjárhæðir sparast fyrir samfélagið í heild. Þannig skipti máli að byggð á höfuðborgarsvæðinu verði þétt og aðrir samgöngumátar en einkabíllinn verði efldir. Þetta sé og í samræmi við stefnu annarra borga. Sýndar eru þrjár sviðsmyndir. Sú fyrsta gengur út á óbreyttan vöxt bíla- umferðar samfara íbúafjölgun, þannig muni fjöldi bílferða t.a.m. aukast um 45 prósent, samfara íbúafjölgun. Tvær til viðbótar ganga út frá því að bílaumferð aukist minna en svo. Mikill samfélags- legur ábati Fjölgi bílferðum um 17 prósent þá er gert ráð fyrir því að samfélagslegur ábati muni nema á bilinu 95-115 milljarða króna, fram til ársins 2040 en tvær til viðbótar ganga út frá því að vöxtur bílaumferðar verði minni; minna verði varið í stór samgöngu- mannvirki og frekari áhersla verði lögð á almenningssamgöngur. Þá sýnir þriðja svipmyndin að ef bíl- ferðum fjölgar aðeins um tvö prósent, að þá verðir samfélagslegur á bilinu 175-195 milljarðar króna á árabilinu 2015-2040. Í þessum sviðsmyndum er ekki gert ráð fyrir heilsufarskostnaði og kostnaði við bílastæði. Átak í almenningssamgöngum Ríkið hefur samið við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um að efla almenningssamgöngur. Verja á tíu milljörðum króna til verk- efnisins á einum áratug, fram til ársins 2022. Á móti er hugmyndin að fresta stórum vegaframkvæmdum á höfuð- borgarsvæðinu. Stórar framkvæmdir í umræðunni Kröfur um stórar vegaframkvæmdir hafa samt sem áður verið í um- ræðunni. Þannig hefur Sundabraut komið aftur inn í umræðuna undan- farið, og nefna má að formaður íbúa- samtakanna Betra Breiðholt undrast að mislæg gatnamót á mótum Bú- staðavegar og Reykjanesbrautar hafi verið tekin úr af skipulagi, eins og lesa má í grein hér í blaðinu. Þá er fyrirhugað að í ár hefjist framkvæmdir við Arnarnesveg, sem á að liggja frá Garðabæ, í gegnum Kópavog og yfir í Breiðholt; en umhverfisáhrif fram- kvæmdarinnar voru metin árið 2006. Getið er um framkvæmdina í sam- gönguáætlun til næstu fjögurra ára sem innanríkisráðherra lagði fram á Alþingi í upphafi vikunnar. Einkarekið Apótek Lágt lyfjaverð - góð þjónusta www.eignaumsjon.is S. 585 4800, Suðurlandbraut 30. Aðalfundur framundan? Heildarlausn í rekstri húsfélaga. Heildarlausn í rekstri húsfélaga. SkipuLagSmáL Hraðbraut gegnum höfuðborgarsvæðið. Verði fjölgun bíla óheft samhliða fólksfjölgun mun fólk eyða miklu meiri tíma í umferðinni en nú, en ólíklegt er að það dragi úr umferðartöfum þótt milljörðum verði varið í ný umferð- armannvirki. leið a gengur út frá því að bílum fjölgi í takt við fjölgun íbúa m.v. núverandi stöðu. leiðir B og C gera ráð fyrir að bílum fjölgi hlutfallslega minna.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.