Reykjavík - 25.10.2014, Síða 11
- JÓLAGRILLPARTÝ -
Allt borðið nýtur saman stórkostlegs hlaðborðs að hætti Sjávargrillsins.
- FJÖGRA RÉTTA JÓLASÆLKERAVEISLA -
Æðisleg hátíðarveisla sem kemur þér í jólagírinn.
- ÞRIGGJA RÉTTA JÓLAHÁDEGI -
Hádegisveisla eins og þær gerast bestar um hátíðarnar.
- JÓLIN OKKAR BYRJA 18. NÓVEMBER -
SJÁVARGRILLIÐ - SKÓLAVÖRÐUSTÍG 14 - 101 REYKJAVÍK - ICELAND - 571 1100 - INFO@SJAVARGRILLID.IS
23. des | Skötuhlaðborð
frá kl 11:00-15:00 & 17:00-22:30
24-25.des | Lokað
26. des | 17:00-23:30
31.des | 11:00-15:00 & 17:00
(borðapantanir til 21:00)
1. jan | 17:00-22:30
2. jan | 11:00-15:00 & 17:00-23:30
OPNUNARTÍMAR YFIR HÁTÍÐIRNAR
Skötuhlaðborð
milli 11:00 og 15:00 þann 23.des Pantið tímalega!
25. Október 2014
Vegna viðbragða yfirvalda hefur
reynst erfitt að sannreyna upplýsingar.
Þannig hafa vopnin verið allt frá 150
til 300 í opinberum svörum þar til
Landhelgisgæslan og Ríkislögreglu-
stjóri sendu yfirlýsingar um málið á
fimmtudagskvöld. Á fundi allsherjar- og
menntanefndar Alþingis á miðvikudag
kom þannig fram að lögreglan hafi flutt
inn milli 200 - 300 MP5 hríðskotabyssur.
Þar kom einnig fram að Hanna Birna
Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefði
haft vitneskju um innflutninginn frá því
í ágúst í fyrra.
Raðlygar
Þrír ráðherrar í ríkisstjórn máttu vita
hið sanna í málinu. Hanna Birna Krist-
jánsdóttir innanríkisráðherra og fyrr-
verandi dómsmálaráðherra fékk kynn-
ingu á kaupunum í ágúst í fyrra. Þá
kom sendinefnd á vegum Norðmanna
hingað til lands í júní í fyrra á vegum ut-
anríkisráðherra. Af því leiðir að Gunnar
Bragi Sveinsson utanríkisráðherra var í
aðstöðu til að greina frá uppruna máls-
ins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er
forsætis- og dómsmálaráðherra en sem
slíkum bar honum að greina frá hinu
sanna í málinu. Hann kaus hins vegar
að gera annað.
Landshelgisgæslan
og lögreglan
Norski herinn staðfesti á fimmtudag að
vopnin hefðu verið seld en ekki gefin.
Þetta er í andstöðu við yfirlýsngar Jóns
Bjartmarz yfirlögreglumanns hjá ríkis-
lögreglustjóra en hann sagði Eyjunni að
hann hefði sjálfur haft milligöngu um
málið. Nú hefur komið í ljós að Land-
helgisgæslan kom að kaupunum. „Land-
helgisgæslan hefur verið vopnuð frá
upphafi en að öðru leyti munum við ekki
tjá okkur um fjölda, stærð eða tegundir
vopna,“ sagði Georg Lárusson forstjóri
Landhelgisgæslunnar við Vísi í vikunni.
Í ljósi þess að Landhelgisgæslan sá um
og gerði samninga um kaup á vopn-
unum er ljóst að Georg var í aðstöðu
til að leiðrétta rangar upplýsingar yfir-
valda til almennings en gerði ekki fyrr
en eftir að norski herinn hafði upplýst
um málið. Opinberum starfsmönnum
ber ekki aðeins að svara fyrirspurnum
heldur fara þeir með frumkvæðiskyldu
til upplýsinga og leiðbeininga. „Ítrekað
skal að ekki hafa farið fram greiðslur
vegna þessa samkomulags og gerir
Landhelgisgæslan ekki ráð fyrir að svo
verði,“ segir í yfirlýsingu frá Landhelgis-
gæslunni sem birt er eftir yfirlýsingu
norska hernaðaryfirvalda.
Óskuðu vopna
DV, sem fyrst greindi frá málinu, sagði
frá því fyrr í vikunni að Íslendingar
hefðu óskað vopna frá Norðmönnum
fyrir fjórum árum. Hins vegar segir
Kjarninn að sendinefndi Harald Sunde
hafi boðið Íslendingum vopnin. Sökum
þess hve erfitt er að fá Íslensk yfirvöld
til að svara með skýrum hætti er erfitt
að meta hvort málin tvö tengist með
beinum hætti. Líklega var boð sendi-
nefndarinnar lokahnykkur í lengra ferli.
Þannig segir Jón F. Bjartmarz, yfirlög-
regluþjónn hjá embætti ríkislögreglu-
stjóra, í samtali við Eyjuna á þriðjudag,
að hann hafi haft milligöngu um vopnin.
„Ríkislögreglustjóraembættið hafði
milligöngu um MP5 vopnin og ef vilt
hafa eitthvað nafn þá hafði ég milligöngu
um það en eins og áður sagði hefur ekki
verið tekin ákvörðun hjá einstökum
lögregluliðum hvort muni hafa vopn í
bifreiðum umfram það sem verið hefur
né hvaða vopn. Það er sérstök ákvörðun
einstakra lögreglustjóra en ekki ríkis-
lögreglustjóra.“
Þreföldun á vopnabúri
Ýmsir talsmenn yfirvalda hafa opinber-
lega haldið fram að ekki sé um stefnu-
breytingu að ræða, enda hafi lögreglan
áratugum saman haft aðgang að hríð-
skotabyssum. Dæmi um slíkan mál-
flutning eru ummæli Vilhjálms Árna-
sonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins,
sem taldi fréttaflutning fjölmiðla afar
óábyrgan og hættulegan. Spurður, á Rás
2, hvort hann óttist ekki að kaupin verði
til þess, eins og umræðan hefur verið
undanfarna tvo daga, að í stað þess að
fólk finni til öryggis þegar lögreglan er
nálægt, þá verði það óttaslegið. „Jú, út af
þessum óábyrga fréttaflutningi margra
þingmanna og DV, með að koma hér
fram og segja að lögreglan sé með eitt-
hvað aukin vopn, sé með eitthvað breytta
stefnu í þessu.“ Vert er að hafa í huga að
með kaupunum er lögreglan því sem
næst að þrefalda hríðskotabyssueign
sína, sé miðað við lægstu tölu vopna eða
150 stykki, frá því sem áður var. Þá hefur
almenningur öllum stundum heimild
til að efast um og andmæla stefnu sem
þegar er við lýði. Almenningur þarf ekki
að rökstyðja óánægju með mál af þessu
tagi með því að um stefnubreytingu sé
að ræða. Í skýrslu sem birt var Alþingi
árið 2012 má finna lista yfir vopnaeign
lögreglunar þar sem kemur fram að
embættið eigi um 60 hríðskotabyssur
sem séu flestar í vörslu embættis Ríkis-
lögreglustjóra og tvær hjá lögreglunni
á Suðurnesjum. Hér er því ljóst að um
verulega breytingu er um að ræða.
11REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Úttekt
Atli Þór Fanndal
atli@thorfanndal.com
Harald Sunde kom til Íslands sumarið
2013. Í kjölfar keyptu Íslensk yfirvöld
vopn af norska hernum.
Mynd: Torbjørn Kjosvold
Forsvarets mediesenter
Þau máttu vita hið sanna. Hanna birna kristjánsdóttir innanríkisráðherra, Gunnar bragi Sveinsson utanríkisráðherra
og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis- og dómsmálaráðherra. Pressphotos.biz.