Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Blaðsíða 1
Bílaverkstæðið BrAGGINN sf. Flötum 20 __ Á -.vis
Viðgerðir og smurstöð - Réttingar og sprautun - Sími 481 3235 Sími 481 1535
34. árg. I 20. tbl. I Vestmannaeyjum 17. maí 2007 I Verð kr. 200 1 Sími 481-1300 1 Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
EYJAMENN léku sinn fyrsta leik í 1. deild karla á sunnudaginn þegar þeir gerðu 1:1 jafntefli gegn Þór á heimavelli. Mark ÍBV skoraði fyrir-
liðinn Bjarni Hólm Aðalsteinsson sem hér horfir á eftir boltanum, sem fór ekki í markið í þetta skiptið.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri VSV:
Höfum skyldur við samfélagið
-Þeim skyldum getum við hins vegar ekki gegnt nema Vinnslustöðin
gangi vel og skili hagnaði
í blaðinu í dag er ítarleg úttekt á
stöðunni í Vinnslustöðvarmálinu. Er
barist um hlutabréf í félaginu en
heimamenn verjast undir forystu
Sigurgeirs Brynjars Kristgeirssonar,
Binna, framkvæmdastjóra Vinnslu-
stöðvarinnar.
Hann segir að ekki aðeins hafi
verið boðið í hlutabréf Leifs
Ársælssonar, Gunnars Jónssonar,
Sparisjóðsins og Lífeyrissjóðs
Vestmannaeyinga auk annarra
hluthafa í VSV.
„Guðmundur Kristjánsson spurði
mig hvort ég vildi selja minn hlut og
ég veit að hann spurði líka Harald
Gíslason hvort þau systkin, hann og
Kristín Gísla, gætu hugsað sér að
selja sinn hlut. Við svöruðum báðir
að okkar hlutir væru ekki falir. Við
fengum hins vegar ekki upphring-
ingu frá Landsbankanum eins og
margir aðrir hluthafar."
Af hverju seldir þú ekki þinn hlut,
þegar gott tilboð barst, og græddir á
því mikla peninga?
„Ætli það sé ekki vegna þess að
maður er lélegur bísnessmaður fyrir
sjálfan sig,“ segir Binni og bætir
við: „Að öllu gamni slepptu, þá
getum við sem í þessu stöndum ekki
leyft okkur að hugsa fyrst og fremst
um eigin hag. Við höfum skyldum
að gegna við starfsfólk og samfélag-
ið allt í Eyjum. Þeim skyldum
getum við hins vegar ekki gegnt
nema Vinnslustöðin gangi vel og
skili hagnaði. í hlutabréfavið-
skiptum hefur enginn grætt neitt fyrr
en hann hefur selt og hlutabréf geta
reyndar bæði hækkað og ekki síður
lækkað.
Verðmæti hlutabréfa veltur annars
vegar á rekstri fyrirtækisins og hins
vegar á áhvílandi skuldum. Ef
meirihluti hluthafa kaupir minni-
hluta hluthafa út á miklu yfirverði
aukast skuldir hluthafanna og þar
með skuldir fyrirtækisins óbeint.
Enginn getur greitt þær skuldir
annar en rekstur þess fyrirtækis sem
þannig er verið að skuldsetja. Þetta
leiðir á endanum til þess að eignir
þeirra sem keyptu rýma og geta
fyrirtækis þeirra til framkvæmda af
öðmm toga minnkar verulega. Þetta
er í hnotskum staðan eins og hún
blasir við mér.“
Sjá bls. 14 og 15.
Kosningarnar:
Árni niður
um sæti
Ljóst er að Ámi Johnsen færist
niður um sæti á lista Sjálf-
stæðisflokks vegna útstrikana í
kosningunum á laugardaginn.
Ámi fer úr öðru í þriðja sæti og
færist Kjartan Ólafsson upp fyrir
hann.
I allt stikuðul953 kjósendur
Sjálfstæðisflokks í Suðurkjör-
dæmi yfir Áma, eða 21,41%. Um
350 atkvæðum munar að Björk
Guðjónsdóttir, sem er í fjórða
sæti, hefði færst upp fyrir Áma.
Þá strikuðu 205 út Áma
Mathiesen, oddvita sjálfstæðis-
manna eða 2,25% og 152 Lúðvík
Bergvinsson sem skipar annað
sætið á lista Samfylkingar, eða
2,43%. Hefur þetta engin áhrif á
stöðu þeirra á listunum.
Þá má geta þess að 60 manns,
sem kaus Sjálfstæðisflokkinn,
breytti röð á seðlinum sem hefur
engin áhrif. Það er lands-
kjörstjórn sem úthlutar þing-
sætum eftir að henni hafa borist
gögn frá yfirkjörstjórnum
kjördæmanna. Fundur var í
landskjörstjórn í gær, en engar
ákvarðanir vom teknar. Reiknað
er með að landskjörstjóm berist
skýrslur frá yfirkjörstjómum
síðar í vikunni og að nýr fundur
verði í landskjörstjórn nk.
sunnudag.
Nánar bls. 8 og 9.
Ýktar fréttir
af fæð-
ingum
Sögusagnir um að fæðingum
muni fjölga verulega á árinu eru
stórlega ýktar. Hins vegar mun
fæðingum eitthvað fjölga á árinu
að sögn Drífu Björnsdóttur, ljós-
móður. „Það voru 90 til 100
fæðingar þegar ég kom hingað
fyrst á árunum 1992-1993. í fyrra
voru 36 fæðingar og samkvæmt
skráningu verða þær eitthvað yfír
40 ef allt gengur eftir,“ sagði
Drífa.
VIÐ ERUM ÞJÓNUSTUAÐILI TOYOTA í EYJUM ne it^hamar VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI.J FLATIR 21 / S 181 1216 / GSM. 864-4616
Br b&rist
um fjarstýringuna
á þínu heirmlu
FJéLSÝN
Áskriftarsíminn er 481-1300
peps; I
peps'
0< ^ |
•• *«•'* !r,HnS **., r f
innifl*' # ■
ri_
TILB0D - S0TT
9“ pizza m/2 áleggst.
Þepsi dos
12 pizza m/2 áleggst. PnfUPTiÍP
- 1 1 I Þepsidoí. LLUcLL^Ö-'
- 1 2 1 Kepsi dos
16 pizza m/2 áleggst.
- 2 1. Þtpsi dos
föDdíIQÍp