Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Blaðsíða 19
Fréttir / Fimmtudagur 17. maí 2007
19
ll. deild karla: ÍBV - Þór 1:1 (0:1)
Verðum að vinna heimaleikina
segir Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV
„Lykillinn að því að komast upp úr
þessari deild er að vinna heimaleik-
ina. Við vorum einfaldlega lélegir í
fyrri hálfleik en svo kom smá neisti
í seinni hálfleik og við sköpuðum
okkur fullt af fæmm. Við hefðum
auðvitað átt að klára þennan leik, þú
færð ekkert betri færi en þetta, það
er bara ekki hægt og þetta undir-
strikar þörf okkar fyrir góðan
framherja. Reyndar voru færin í dag
þess eðlis að við hefðum ekki þurft
góðan framherja en það er bara ekki
öllum geftð að skora mörk,“ sagði
Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV,
eftir jafntefli gegn Þór frá Akureyri
á sunnudaginn.
Eyjamenn jöfnuðu metin sjö mín-
útum fyrir leikslok en fram að því
hafði leikmönnum tekist að klúðra
hverju dauðafærinu á fætur öðru,
sérstaklega í síðari hálfleik.
Eyjamenn léku hins vegar illa í fyrri
hálfleik en af hverju?
„Það er ekki gott að segja. Maður
óttaðist þetta, þegar lið koma hingað
sem við höfum ekki spilað gegn í
nokkur ár, að þá sé erfitt að rífa liðið
upp. Svo var hugsanlega eitthvað
stress í mannskapnum, fyrsti
leikurinn og sumir að spila sinn
fyrsta leik fyrir ÍBV.“
Gæti dugaö að vinna heima-
leikina
Næsti leikur er svo gegn Reyni
Sandgerði á morgun. Heimir segir
ekkert annað en sigur koma til
greina. „Það segir sig sjálft, við
þurfum að minnsta kosti að vinna
alla okkar heimaleiki og úrslitin
gegn Þór þýða að við verðum að ná
í þessi tvö stig annars staðar. Það
gæti dugað okkur að vinna heima-
leikina ef við ætlum upp og ég neita
því ekki að úrslitin í dag eru bara
áfall."
Þórsarar komust yfir í fyrri hálfleik
með mjög vafasömu marki en Hrafn
Davíðsson, markvörður IBV, full-
yrðir að boltinn hafi aldrei farið inn
fyrir marklínuna og undir það taka
áhorfendur sem stóðu þar nálægt.
Það var lfka athyglisvert að fylgjast
með leikmönnum Þórsara sem virt-
ust hissa á dómnum en fögnuðu
Þór Vilhjálmsson, formaður
ÍBV ásamt Svanfríði og
Kristínu.
Svanfríður og
Kristín fengu
silfurmerkið
Á ársþingi Iþróttabandalags
Vestmannaeyja síðastliðið mánu-
dagskvöld, voru tvær valkyrjur
úr Fimleikafélaginu Rán
heiðraðar með því að veita þeim
silfurmerki IBV, en það voru þær
Kristín Ásmundsdóttir og
Svanfríður Jóhannsdóttir. Báðar
eiga þær langan feril í starfi fim-
leikafélagsins og hafa verið þar
burðarásar. Kristín er í dag
formaður félagsins og Svanfríður
yfirþjálfari.
FYRIRLIÐINN jafnar metin. Bjarni Hólm Aðalsteinsson fagnar hér jöfnunarmarki ÍBV sem hann skoraði
úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Andra Ólafssyni. Með honum er hinn bráðefnilegi
Þórarinn Ingi Vilhjálmsson sem kom inn á sem varamaður.
eðlilega þegar þeir náðu áttum.
Þurfum að fara á skotæfingu
En eins og áður sagði voru
Eyjamenn lánlausir upp við mark
Þórsara í síðari hálfleik. Fyrirliðinn
Bjarni Hólm Aðalsteinsson, sem
færði sig í fremstu víglínu í seinni
hálfleik fékk m.a. tvö úrvalsfæri
áður en hann skoraði jöfnunarmark-
ið úr vítaspyrnu.
„Fyrri hálfleikur hjá okkur var
ömurlegur, við gerðum ekki það
sem við áttum að gera og þetta var
ekkert líkt okkur að spila svona. Við
ætluðum að spila okkar bolta, senda
í lappimar og koma fyrirgjöfum
fyrir markið en við gerðum allt
annað en það. Það vantaði líka kraft
og dugnað. En í seinni hálfleik
fómm við að berjast og gera þetta
sem ein heild.og það sáu það allir að
við hefðum átt að vinna þetta lið.
Við fengum einhver fimm eða sex
dauðafæri en við eigum við þetta
vandamál að stríða að geta ekki
klárað færin. Sjálfur fékk ég tvö
mjög góð færi og það var ömurlegt
að nýtaþau ekki. Eg held að Heimir
þurfi bara að setja okkur á skotæf-
ingu.“
En eitt stig er betra en ekkert?
„Já og ég segi nú bara sem betur fer
náðum við að jafna metin. Þetta var
bara lélegt hjá okkur og í rauninni
ekkert meira um það að segja. Við
eigum nóg inni og ég get lofað því
að þetta verður komið í lag fyrir
næsta leik,“ sagði fyrirliðinn að
lokum.
Lið ÍBV (4-5-1); Hrafn Davíðsson,
Arnór Ólafsson, Bjarni Hólm
Aðalsteinsson, Páll Hjarðar, Anton
Bjamason, Ingi Rafn Ingibergsson,
Pétur Runólfsson, Yngvi Borgþórs-
son (Jonah D. Long, 46.), Bjarni
Rúnar Einarsson (Þórarinn Ingi
Valdimarsson, 57.), Stefán Hauks-
son (Andrew Mwesigwa, 57.),
Andri Ólafsson.
Ónotaðir varamenn: Kolbeinn
Amarson (m), Egill Jóhannsson.
Mark ÍBV: Bjarni Hólm Aðal-
steinsson (84. vsp).
Áhorfendur: 400.
Staðan
Reynir S. 1
Grindavík 1
Fjarðabyggð I
KA 1
Leiknir R. 1
Njarðvík 1
Þór 1
ÍBV 1
VíkingurÓ. 1
Stjaman 1
Þróttur I
Fjölnir 1
10 0 3:0 3
1 0 0 3:1 3
1 0 0 2:0 3
10 0 1:0 3
0 1 0 2:2 1
0 1 0 2:2 1
0 1 0 1:1 1
0 1 0 1:1 1
001 0:1 0
0 0 1 1:3 0
0 0 1 0:2 0
0 0 1 0:3 0
1
Handbolti:
Einar tekur við Fram
og tekur Pövlu Nevarilovu með sér
PAVLA Nevarilova lék einstaklega vel með ÍBV í vetur og skoraði 112
mörk í 23 leikjum. Hún fylgir þjálfara sínum til Fram.
Einar Jónsson, sem
þjálfaði kvennalið
IBV í handbolta í
vetur, hefur ákveðið
að taka við liði Fram.
Þetta staðfesti Einar í
samtali við Fréttir í
gær. „Þetta var bara að gerast núna
í hádeginu, við vorum að skrifa
undir.“
Einar er hins vegar ekki að öllu
leyti sáttur við að yfirgefa ÍBV þar
sem honum sýnist að ekki verði teflt
fram liði næsta vetur. „Eg sagði það
alltaf að minn fyrsti kostur væri að
vera áfram hjá ÍBV og ég var búinn
að ýta öllu öðru til hliðar. En eftir
að hafa rætt við þá aðila sem ætluðu
að taka kvennahandboltann að sér
þá sé ég mér ekki annað fært en að
skipta um lið. Mér sýnist að það sé
ekki vilji hjá félaginu til að halda úti
meistaraflokki kvenna næsta vetur,"
sagði Einar.
Og hans fyrsta verk eftir að hafa
tekið við nýju stöðunni var að fá í
Safamýrina línumanninn sterka,
Pövlu Nevarilovu, sem lék svo vel
með ÍBV í vetur. „Ég var sérstak-
lega ánægður með að hún skyldi
koma til mín. Stjarnan var búin að
bjóða henni samning en ég er mjög
ánægður með að fá hana enda einn
sterkasti línumaður deildarinnar í
vetur.“
Iþróttir
Trausti með
fyrsta markið
KFS lék opnun-
arleik Islands-
mótsins í knatt-
spyrnu sumarið
2007 þegar liðið
sótti Ymi heim en
leikur liðanna fór
fram í Kópavogi. Hjalti
Kristjánsson, þjálfari liðsins
hefur látið hafa það eftir sér að
stefnan sé sett á að komast upp í
2. deild og sumarið fer svo sann-
arlega vel af stað hjá KFS því
Eyjamenn höfðu betur, unnu 1:3.
Það var fyrirliði KFS, Trausti
Hjaltason, sem opnaði
Islandsmótið með fyrsta marki
sumarsins en það gerði hann
strax á sjöundu mínútu úr
vítaspyrnu en varnarmanni Ýmis
var vísað af velli fyrir brotið.
Anton Rafn Jónsson bætti svo
við öðru marki KFS en undir lok
fyrri hálfleiks var öðrum úr liði
heimamanna vísað af velli og
Eyjamenn því tveimur fleiri.
En þrátt fyrir það náðu Ýmis-
menn að minnka muninn í
upphafi síðari hálfleiks en síðasta
orðið átti Wesley Albert Clark,
sem innsiglaði sigur KFS.
„Takk fyrir peyjar, fyrir mjög
skynsamlegan leik og þraut-
seigju, þið unnuð mjög öflugt B-
lið HK úti í kvöld á klókindum,"
sagði Hjalti á heimasíðu KFS.
Næsti leikur liðsins er svo á
sunnudaginn þegar Eyjamenn
taka á móti Hamri frá
Hveragerði.
Óskar Freyr
nýr formaður
Óskar Freyr Brynjarsson hefur
ákveðið að taka að sér starf for-
manns handknattleiksdeildar.
Óskar, sem áður hefur starfað
sem formaður IBV-íþróttafélags,
kemur til með að stýra starfinu í
vetur en á heimasíðu ÍBV er sagt
frá því að greint verði frá því
hverjir muni starfa með Óskari í
ráðinu, í vikunni.
Auk þess er greint frá því að
eitt fyrsta verk nýs ráðs er að
taka ákvörðun um framhaldið í
kvennaboltanum en eins og sagt
er frá annars staðar á íþrótta-
síðunni eru Einar Jónsson og
Pavla Nevarilova farin í Fram.
Kvennaliðið í
næstu umferð
bikarsins
Enn er líf í kvennaknattspyrnunni
í Eyjum því meistaraflokkur
kvenna er skráður til leiks í
bikarkeppninni. Liðið er þegar
komið áfram úr fyrstu umferðinni
en andstæðingur IBV dró lið sitt
úr keppni. I annarri umferð
mætir ÍBV annað hvort GRV eða
Aftureldingu og fer leikurinn
fram á Hásteinsvelli 12. júní.
Framundan
Fimmtudagur 17. maí
6. flokkur karla, ABCD spilar á
Stjörnuvellinum í Faxaflóa-
mótinu.
Föstudagur 18. maí
Kl. 19.00 ÍBV-Reynir S. I.deild
karla.
Sunnudagur 20. maí
Kl. 16.00 KFS-Hamar 3. deild
karla.