Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Qupperneq 9
Fréttir / Fimmtudagur 17. maí 2007
9
ATLI Gíslason, þingmaðurkampakátur með meðframbjóðendum sínum, Aldísi Gunnarsdóttur og Jórunni
Einarsdóttur.
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna:
Þakklátur fyrir góðan stuðning
Atli Gíslason þingmaður Vinstri
hreyfingarinnar Græns framboðs
sagðist vilja byrja á því að lýsa yfir
þakklæti til íbúa Suðurkjördæmis
hvort sem er í Eyjum eða annars
staðar.
„Allir tóku mér ótrúlega vel, bæði
stuðningsmenn og kjósendur ann-
arra flokka og ég mun búa að því
alla ævi. Ég er ánægður með ár-
angur Vinstri grænna í kjördæminu
og að málefni flokksins eigi sér
talsmann í kjördæminu. Ég hlakka
til að takast á við verkefni sem
framundan eru og tel mig vera
þingmann allra íbúa Suðurkjör-
dæmis hvar í flokki sem þeir
standa."
Ásta Þorleifsdóttir, frambjóðandi
✓
Islandshreyfingarinnar:
Skoðanakannanir óhag-
stæðar litlum framboðum
Ásta Þorleifsdóttir, frambjóðandi
íslandshreyfingarinnar, sagði að
þau málefni sem hreyfíngin stóð
fyrir hafi átt góðan hljómgrunn en
hins vegar hafi skoðanakannanir
gríðarleg áhrif á lítil framboð.
„Það er erfítt að mæla svona
framboð og ákveðinn lærdómur af
þessu. Ég þekki kjördæmið mjög
vel og það er alveg með ólíkindum
hvað Vestmannaeyjar hafa setið
eftir. Vestmannaeyjar eiga mikla
möguleika þvf þar liggur mikil
þekking hvað varðar sjósókn,
haffræði og veðurfar. Þar ætti að
setja upp vettvang hafrannsókna og
efla ferðaþjónustu. Öllu máli skiptir
hvernig stutt er við nýsköpun og
fyrirtæki og það þarf fyrst og
fremst vilja til þess. Sama á við um
samgöngumál og ótrúlegt að ekki
skuli hafa verið meira að gert
undanfarin ár.“
ÁSTA: Það er erfitt að mæla
svona framboð og ákveðinn
lærdómur af þessu.
Bjarni Harðarson þingmaður
Framsóknar:
Spennandi tímar
framundan
Bjami Harðarson, þingmaður, sagðist fyrst og
fremst gríðarlega þakklátur fyrir stuðninginn.
„Flokkurinn tapaði miklu á landsvísu en hér í
Suðurkjördæmi var tapið einna minnst. Nú eru
spennandi tímar framundan og ég hlakka til að
takast á við að vera fulltrúi Eyjamanna og annarra
fbúa í þessu skemmtilega kjördæmi.“
BJARNI, þingmaður Framsóknar, fagnar
góðum árangri á kosninganóttina ásamt odd-
vitanum, Guðna Ágústssyni..
Brúðkaupssýning um helgina:
Ekki bara ætluð tilvonandi brúðhjónum
Fyrirtæki í Vestmannaeyjum og Reykjavík hafa tekið
höndum saman og bjóða upp á brúðkaupssýningu á
laugardaginn. Sýningin verður í Blómastofu
Vestmannaeyja við Vestmannabraut 37 milli klukkan
13.30 og 16.00 en fyrirtæki sem standa að sýningunni
eru Blómastofa Vestmannaeyja, Snyrtihofið, Ozio,
Steingrímur gullsmiður, Tvö hjörtu og Decorette.
Valur Heiðar Sævarsson, framkvæmdastjóri
Blómastofunnar, sér um allan undirbúning og segir
algengt að slíkar sýningar séu í Reykjavík og því
tilvalið að vera með svipaða uppákomu í
Vestmannaeyjum.
„Sr Guðmundur Örn Jónsson heldur tölu um brúð-
kaup og brúðkaupssiði um klukkan 14.00 og því ættu
allir að vera mættir tímanlega í verslunina til okkar,“
sagði Valur þegar hann var spurður út í sýninguna.
„Tvö hjörtu, brúðkjólaleiga, sýnir brúðarkjóla og að
sjálfsögðu verður brúður í fullum skrúða frá þeim.
Snyrtihofið og Ozio hárgreiðslustofa kynna nýjustu
tísku hvað varðar hár og förðun og Blómastofa
Vestmannaeyja sýnir brúðarvendi og nýjustu tísku í
skreytingum og því sem tilheyrir brúðkaupum. Auk
þess verður Steingrímur gullsmiður með brúðar-
skartið, þannig að það veður mikið
um að vera. Þá mun Decorette
verða með kynningu á kristal og
postulíni, kaffistell, matarstell og
fleira. Auðvitað verða síðan hin
ýmsu verðtilboð á brúðkaupsvöru
og sumarvöru.“
Valur segir tilganginn með
sýningunni fyrst og fremst vera að
kynna fyrir Vestmannaeyingum
það sem er í boði og hafa skemmti-
lega uppákomu í leiðinni.
„Vonandi sjáum við sem flesta
bæjarbúa því sýningin er ekki
bara ætluð tilvonandi brúðhjónum
heldur öllum sem hafa gaman af
því sem er að gerast í bænum, því
fleira sem er í gangi því meira
gaman. Það verður kaffi á könn-
unni og brúðarterta til að smakka
á,“ sagði Valur og ítrekaði að allir
væru velkomnir.
Lögrcglan:
Tvö slys
Tvö slys voru tilkynnt til
lögregíunnar í vikunni sem
leið. I öðru tilvikinu varð
stúlka fyrir bifreið á
Heiðarvegi að kvöldi 9. maí sl.
Betur fór en á horfðist og eru áverkar hennar
minni háttar.
I hinu tilvikinu var um að ræða vinnuslys
um borð í Kap VE á föstudaginn. Maður féll
niður í lest og er talið að fallið hafi verið 6 til
8 metrar. Maðurinn var fluttur til Reykjavíkur
með sjúkraflugi.
Stjornmal:
Verður sjúkraflugvél áfram í Eyjum?
Hjörtur Kristjánsson, yfirlæknir og Gústaf
Gústafsson, sjúkraflutningamaður sendu
öllum framboðum í síðustu viku opið bréf.
Þar lýstu þeir lýstu yfir áhyggjum sínum
vegna sjúkraflugvélar. Töldu þeir sig hafa
fregnir af því að sjúkraflugvél verði ekki í
yestmannaeyjum í framtíðinni.
Á borgarafundi um samgöngumál, sem Fréttir
og Vaktin stóðu fyrir, var álit allra framboða
að sjúkraflugvél eigi að vera staðsett hér.
I framhaldi af þessu sagði bæjarstjóri það
ófrávíkjanlegu kröfu sveitarfélagsins, að í
Vestmannaeyjum verði á öllum tímum stað-
sett sjúkraflugvél.
Þessu hefði verið komið á framfæri við Siv
Friðleifsdóttur, heilbrigðisráðherra, sem hefði
fullvissað hann um að fullt samráð yrði áfram
haft við bæjarstjóm Vestmannaeyja vegna
sjúkraflugs í Eyjum.
Hracinbúðir:
Kaffisala og sýning
Viljum minna
á hina árvissu
kaffisölu og
handavinnu-
sýningu á
Hraunbúðum
sunnudaginn
20. maí kl 14. Á hverju ári sjá starfsmenn
Hraunbúða og aðstandendur heimilisfólks um
þennan skemmtilega dag. Allur ágóði af
kaffisölu rennur til kaupa á tækjum o.fl. til að
létta heimilsfólki lífið.
Fréttatilkynning.