Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Page 17

Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Page 17
Fréttir / Fimmtudagur 17. maí 2007 17 Krakkanir í Fiskiðjunni með tónleika í Bæjarleikhúsinu: Vilja sýna fólki hvað þau eru að gera VIÐTflL Guðbjörg Sigurgeirsdóttir gudbjorg @ eyjafrettir. is Ungt tónlistarfólk stendur fyrir tón- leikum í Bæjarleikhúsinu á föstu- daginn og á laugardag verður opið hús í Fiskiðjunni og starfsemin þar kynnt. Hljómsveitimar sem koma fram á föstudag eru Turn over, Parallel delusions, Occasional hap- piness, Primera, Bogus, Tranzlokal og Elizabeth. Tónlistargestir fá disk að gjöf „Við skipuleggjum tónleikana fyrst og fremst til að sýna fólki hvaða starfsemi á sér stað í Fiskiðjunni,“ segir Viktor Smári en hann, ásamt Fannari og Andra em fyrstur af stórum hópi fólks, til að mæta á Fréttir í viðtal um tónleikana og starfsemina í Fiskiðjunni. „Við viljum fá foreldra og ættingja til að sjá hvað við erum að gera,“ segir Fannar og Andri bætir því við að hugmyndir fólks um það sem fari fram í Fiskiðjunni, byggi margar hverjar á misskilningi. „Við emm að gera disk með hljómsveitunum í Fiskiðjunni og þeir sem borga sig inn á tónleikana fá disk að gjöf en það kostar 500 krónur inn á tónleikana," segir Andri og það er alveg ljós að aðgangseyri á tónleikana er stillt í hóf. Daginn eftir tónleikana verður opið hús í Fiskiðjunni milli klukkan 15.00 og 16.00 og öllum velkomið að koma og allar hljómsveitir, sem hafa aðstöðu í Fiskiðjunni, verða á staðnum. „Það er kominn tími til að kynna starfið sem er í gangi,“ segir Viktor Smári og þeir félagar eru sammála um starfsemin sé mjög mikilvæg fyrir ungt fólk í Vestmannaeyjum." Textarnir fja.lla um sam- félagið En hvemig tónlist er það sem hljómsveitirnar eru að leika? Þetta er alls kyns tónlist og fer r fl n | 1 j. " ■ i M ifjj Kfi 1 pi flu^ MYNDARLEGUR hópur Það eru alltaf fleiri og fleiri að koma inn í þetta, 2002 kom fyrsta hljómsveitin inn og það eru ábyggilega 14 hljómsveitir núna, segja þau. allan skalann, allt frá poppi upp í þungarokk," segir Fannar og það kemur fram í spjallinu að textamir, sem hljómsveitimar flytja, eru bæði á ensku og íslensku en þó aðallega á ensku. Þegar tónlistarfólkið, fleiri hafa nú bæst í hópinn, er spurt hvers vegna textarnir séu aðallega á ensku þá segjast þau aðallega hlusta á tónlist á ensku og það hafi áhrif. „Maður slær líka frekar í gegn og það er auðvitað draumur- inn,“ segir ungur maður sem nýlega hefur bæst í hópinn. Um hvað fjalla textamir? „Textamir fjalla mikið um sam- félagið," segir Fannar og annar tekur við og segir textana fjalla um það sem þeim dettur í hug hverju sinni. „Hraðann í samfélaginu, vit- leysuna, sum lög em sögur sem spinnast á staðnum, sumar skáldaðar aðrar sannar." Þegar krakkamir eru spurðir hvort þeir haft stundað tónlistarnám eða séu sjálfmenntaðir í tónlistinni segjast þau aðallega vera sjálf- menntuð í bransanum. „Já, það er ekki verra, að hafa verið í tónlistar- skólanum og þeir sem hafa verið í námi miðla því gjarnan til hinna,“ segir Viktor Smári. Leiðinlegar sögur í gangi „Ég vil taka það fram að það er ekkert dóp hjá okkur í Fiskiðjunni. Það eru ýmsar leiðinlegar sögur á kreiki," segir Fannar og krakkamir taka undir það og benda á að það séu eftirlitsaðilar með húsinu. „Þeir eru þarna nánast á hverjum degi,“ segir Andri en hópnum er mikið í mun að koma þessu á framfæri og segja þeir margar leiðinlegar sögur í gangi.“ Það liggur beinast við að spyrja um aðstöðuna í Fiskiðjunni og krakkarnir virðast nokkuð ánægðir með hana. „Hver einstaklingur borgar 1300 krónur á mánuði en til samanburðar þá er hver hjómsveit að borga 20.000 krónur í Reykjavík á mánuði. Það er reyndar með allt öðrum hætti en hér,“ segir Viktor Smári en hátt í þrjátíu manns á aldrinum 14 til 24 ára eru reglulega í Fiskiðjunni við ællngar. „Hver og ein hljómsveit er með sér herbergi enda liggja þarna hellings verðmæti, “ segir Fannar og hópurinn virðist sáttur við aðstöðuna og segja hana alltaf að batna. Þegar þau eru spurð nánar út í það segjast þau hafa hita og raf- magn og bærinn styðji við starf- semina. „Það vantar kóksjálfsala," segir einn úr hópnum. „Það væri draumur ef það væri sjoppa þarna og sameina þetta Féló. Þá væri starfsmaður á staðnum og betra eftirlit á staðnum," segir Viktor Smári. „Það eru alltaf fleiri og fleiri að koma inn í þetta, 2002 kom fyrsta hljómsveitin inn og það eru ábyggi- lega 14 hljómsveitir núna,“ segir Andri en tónlistarfólkið er að mestu Ieyti sátt við Fiskiðjuna eins og hún er. Þar hefur verið komið upp slökkvitækjum og reykskynjurum þó svo húsnæðið sé ekki fullnægj- andi til framtíðar. Stjórnaði Lúðrasveitinni í 20 ár Vegna mistaka birtist ólesið viðtal við Stefán Sigurjónsson, fráfarandi stjómanda Lúðrasveitar Vestmanna- eyja. Hér birtum við rétta útgáfu og er viðkomandi beðinn afskökunar á þessum mistökum: A laugardaginn voru tónleikar í sal Hvítasunnukirkjurnar þar sem lúðrasveitir Tónlistarskólans og Lúðrasveit Vestmannaeyja leiddu saman hesta sína. Utkoman var stórgóð og gaman að sjá kyn- slóðirnar sameinast í tónlistinni. Tónleikarnir voru að því leyti sögulegir að Stefán Sigurjónsson lét af störfum sem stjórnandi Lúðra- sveitar Vestmannaeyja. Arftaki hans er Jarl Sigurgeirsson, kennari við Tónlistarskólann. í samtali við Fréttir í tilefni tíma- mótanna segir Stefán að hann haft átt skemmtileg ár í Lúðrasveitinni og er sáttur nú þegar hann lætur sprotann í hendur Jarli. Stefán flutt- ist til Eyja árið 1975 og var fyrr en varði genginn til liðs við Lúðrasveit Vestmannaeyja. „Ég kem úr Sandvíkurhreppi hinum foma, nánar tiltekið frá Geirakoti, þar og á Selfossi ólst ég upp,“ segir Stefán þegar hann er spurður um upp- mnann. Það var tónlist á heimilinu. „Aft spilaði á orgel og föðurbróðir minn á harmóníku. Hann er þekktur sem Steini í Geirakoti. Sjálfur lærði ég á klarinett hjá Ásgeiri Sigurðssyni á Selfossi, bróður Jóns bassa sem nú er nýlátinn. Þegar ég var um ferm- ingu stofnuðum við velflestir strák- amir í mínum bekk, lúðrasveit og fengum Óla Þ. Guðbjartsson, skóla- stjóra, til að kaupa fyrir okkur hljóðfæri. Sveitin var vel mönnuð því fjórir af félögunum eru atvinnu- menn í tónlistinni í dag.“ Frá Selfossi lá leiðin til Reykja- víkur þar sem Stefán fór í frekara tónlistarnám. „Ég fór í skósmíði til að vinna fyrir mér með náminu en endirinn var sá að ég hætti í tón- listamáminu og fór að læra skó- smíði. Hún leiddi mig svo til Vestmannaeyja því hér var enginn skósmiður eftir gos. Það var læri- meistari minn, Gísli Ferdinandsson, sem hvatti mig til að fara til Eyja og hér er ég enn.“ Stefán byrjaði strax í Lúðra- sveitinni en þú var Björn Leifsson, sem starfaði í Útvegsbankanum, stjómandi. Þegar hann hætti 1976 tók Stefán við sem stjómandi og gegndi stöðunni í eitt ár þegar Hjálmar heitinn Guðnason tók við. „Þetta var fínn hópur og gaman að kynnast þessum körlum,“ segir Stefán og telur upp heiðursmenn eins og Kjartan í Djúpadal, Sigga á Háeyri, Éinar Guðna, Magga á Grundó, Tryggva Jónasar, Sigga múr, Snorra Siglfirðing, Jón Gilsa, Hafstein Ágústsson, Hafliða á Svalbarða, Hjalla, Einar Erlends, Hugin málara og Óskar ljós- myndara. „Þetta vom skemmtilegir karlar og miklir sögumenn. Það var mikill kraftur í starfinu en það byggðist mikið á gömlum hefðum. Þetta var eins og klúbbur en þegar menn fóm að ganga í klúbba eins og Kiwanis o.fl. fór að losna um félagsstarfið hjá okkur.“ Ferðalög bæði innan lands og utan voru fastir liðir í starfinu og var litið á þau sem umbun fyrir það mikla starf sem þarl' til að halda úti heilli lúðrasveit. „Þetta hafði tíðkast alveg frá stofnun sveitarinnar og var alltaf mikið fjör. Á ýmsu gekk eins og vill verða og ekki allt hæft á prent sem gerðist þar. Ein ferð er mér sérstak- lega minnisstæð, það var þegar við fómm til írlands árið 1977. Það er ótrúlegt að það skuli vera rétt 30 ár síðan," segir Stefán og brosir við tilhugsunina. „Við fórum um allt Irland og skemmtum okkar vel. Einhvem tíma mættum við krökkum sem komu marserandi, öll spilandi á harmóníkur. Þá kallaði einn upp: „Sjáið þið harmóníkulúðrasveitina." Stefán tók aftur við tónsprotanum 1988 og segir hann að þá hafi starf- semin verið í nokkurri lægð. „Þetta átti að vera til bráðabirgða en það hefur teygst úr þessu og nú er ég að hætta eftir samtals um 20 ár. Það hefur enginn stjórnað þessari lúðra- sveit lengur, fyrir utan Oddgeir Kristjánsson sem stjómaði henni í um 27 ár. Lúðrasveitin var stofnuð 1939 og er því 68 ára en fyrsta lúðrasveitin í Vestmannaeyjum var stofnuð 1904. Þetta hefur blessast einhvern veginn með fjöldann í sveitinni en það er alltaf pláss fyrir fleiri. Ég greindist með parkinson sjúkdóm fyrir tæpum sjö árum, og finn að ég á ekki orðið gott með að standa í svona ati, eins og þarf til að halda þessu saman. Ég var búinn að biðja um það í nokkur ár að fá að hætta en nú er fundinn arftaki og fagna ég því.“ Stefán segist ekki geta verið annað en sáttur þegar hann lítur yfir þessi rúmlega 30 ár hjá Lúðrasveit Vestmannaeyja. „Þetta er hópur sem hefur staðið saman sem er nauðsyn- legt því ekki gerir maður mikið einn og svo hefur verið mjög góður mórall hjá okkur.“ Stefán segir að árlegir styrktartón- leikar séu hápunktur starfsins „Þeir hafa ekki fallið niður öll þessi ár og styrktarfélagar hafa haldið tryggð við okkur. Lúðrasveitir fullorðinna hafa átt undir högg að sækja og t.d. hafa þær lagst í dvala á Akureyri og í Hafnarfirði. Við njótum þess að eiga okkar menn á fastalandinu sem alltaf eru tilbúnir þegar við köllum,“ sagði Stefán að lokum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.