Fréttir - Eyjafréttir - 20.03.2008, Síða 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 6. mars 2008
Landeyjahöfn í eigu ríkisins
-Samkomulag við Rangárþing Eystra um sameiginlegt forræði hélt ekki
-BÆJARSTJÓRN lagði áherslu á að lykilatriði varðandi Landeyjahöfn væri að ráðandi hlutur væri í hönd-
um Eyjamanna.
Eins og greint var frá í síðasta
tölublaði Frétta verður ekki gert ráð
fyrir því að Vestmannaeyjabær og
Rangárþing Eystra muni hafa
sameiginlegt forræði yfir Landeyja-
höfn. Þess í stað verður höfnin í
eigu ríkisins og var framvarp þess
efnis lagt fyrir fund ríkisstjómar á
þriðjudag.
Málið var rætt á bæjarstjómar
fundi sl. fimmtudag og einnig á
fundi framkvæmda- og hafnarráðs
en ráðið lýsir yfir fullum vilja
Vestmannaeyjahafnar að annast
rekstur Landeyjahafnar. Ráðið vill
gera samkomulag við samgöngu-
ráðuneytið í beinum tengslum við
fyrirhugaða lagasetningu um að
Landeyjahöfn verði í eigu ríkisins
og er formanni ráðsins falið að
koma þessari samþykkt á framfæri.
Strandaði á framtíðarsýn
hafnarinnar
Gunnlaugur Grettisson, forseti
bæjarstjómar, segir að málið hafi
ekki strandað á eignarhlut milli
sveitarfélaganna á fyrirhugaðri
höfn. „Ég vil reyndar taka það fram
að ég tók ekki þátt í sjálfum
samningaviðræðunum en fylgdist
auðvitað vel með þeim eins og aðrir
bæjarfulltrúar. Málið strandaði á
því hvemig menn sáu þróun hafnar-
innar til framtíðar. Vilji
Vestmannaeyjabæjar er skýr. Land-
eyjahöfn er fyrst og fremst sam-
göngubót við Vestmannaeyjar, allt
annað er algjört aukaatriði í málinu
og fólk verður að muna og skilja
það.“
En er ekki sjálfsagt að nýta mann-
virkið undir frekari atvinnustarfsemi
en einungis undir ferjusiglingar?
„Nei, það er langt í frá sjálfsagt í
mínum huga. Það verður líka að
hafa það í huga að ef það væri ekki
byggð í Eyjum, þá væri ekki verið
að ráðast í hafnargerð í Bakkafjöru.
Og ég veit það fyrir víst að þessi
framkvæmd er það stór að sveitar-
félag eins og Vestmannaeyjar eða
Rangárþing Eystra gæti aldrei ráðið
við það eitt að búa til þessa höfn
þrátt fyrir rúmlega helmings þátt-
töku ríkisins.“
Breytir ekki forgangsröðun
um framtíðarsamgöngur
Gunnlaugur segir að þrautalending-
in verði sú að Landeyjahöfn verði í
eigu ríkisins. „Höfnin mun þá heyra
undir samgönguráðherra og ráðu-
neyti hans. Eftir því sem ég hef
næst komist þá er ráðherra á sömu
línu og við, hann lítur á höfnina sem
samgöngubót við Vestmannaeyjar
númer 1, 2 og 3. Hins vegar er það
afar slæmt fyrir okkur að vera ekki
með forræðið yfir höfninni, ég neita
því ekki. Mér finnst ekki ólíkleg að
samgönguráðuneytið fái e-r til að
reka höfnina í sínu umboði. Þar
kemur Vestmannaeyjahöfn sterk inn
enda gríðarleg reynsla þar í rekstri
hafnarmannvirkja," sagði Gunn-
laugur um bókun framkvæmda- og
hafnarráðs.
Bæjarstjóm lagði áherslu á að
lykilatriði varðandi Landeyjahöfn
væri að ráðandi hlutur væri í hönd-
um Eyjamanna. Koma þessar mála-
lyktir um eignarhaldið til með að
breyta einhverju í forgangsröðun
bæjarstjórnar um framtíðarsam-
göngur við Vestmannaeyjar?
„Það hefur ekki verið rætt opinber-
lega innan bæjarstjómarinnar enda
teljum við samgönguráðherra sam-
mála okkar málflutningi. En ég
neita því ekki að það breytir
talsverðu fyrir okkur að vera ekki
með forræðið yfir höfninni og það er
klárlega ekki sá kostur sem stefnt
var að. Bæjarstjórn er hins vegar
einstíga um að verja hlut Vest-
mannaeyja í þessu máli en ég tel að
höfn í Bakkafjöra sé enn næst besti
kosturinn varðandi framtíðarsam-
göngur við Vestmannaeyjar.“
2010 eða 2011?
Kristján L. Möller lét hafa eftir sér á
Alþingi á dögunum að hann von-
aðist til þess að Landeyjahöfn yrði
tilbúin í júlí 2011. Til þessa hefur
verið miðað við að höfnin yrði
tilbúin 2010, jafnvel vorið 2010 en
hvað hefur breyst? „Þetta era auð-
vitað ekki góð tíðindi ef satt reynist
en bæjarstjórn hefur ekki tekið
málið fyrir enda skilst mér að stutt
sé síðan að ráðherra lét hafa þetta
eftir sér. Ég get ekki séð að neinar
meiriháttar tafir hafi orðið á verkinu
heldur hefur það gengið áfram eins
og gert var ráð fyrir. Það era því
engar ástæður fyrir þessum hugsan-
legu töfum og í raun óþolandi að
það sé eilíft verið að flakka með
lokadagsetningu þessarar mikil-
vægu framkvæmdar fyrir okkur
Eyjafólk.
Þar að auki er auðvitað dapurt að
frétta þetta út í bæ. Bæjarstjórn er
fulltrúi stærsta hagsmunaaðilans og
við þurfum að fá að fylgjast náið
með öllum framkvæmdinni. Við
treystum áliti sérfræðinga sem
sögðu að höfnin yrði tilbúin 2010 og
á því er ekki hægt að gefa neinn
afslátt nema fyrir honum séu gild
rök,“ sagði Gunnlaugur.
Frumvarp til laga um Land-
eyjahöfn var lagt fyrir á ríkis-
stjórnarfundi á þriðjudagsmorgun
en þar er kveðið á um byggingu
hafnarinnar sem ferjuhöfn í eigu rík-
isins. í frumvarpinu er gert ráð fyrir
eignamámi lands undir höfnina og
undir grjótnám vegna hafnargarða.
Framkvæmda- og
hafnarráð:
Fjögurra
ára sam-
göngu-
áætlun
Framkvæmda- og hafnarráð fjall-
aði um fjögurra ára samgöngu-
áætlun 2009 til 2012 á fundi
sínum á föstudag en það var
framhaldsumræða frá síðasta ári.
Ólafur Kristinsson, hafnarstjóri
fór yfir drög að þeim erindum
sem liggja fyrir og varða styrk-
hæfar framkvæmdir við hafnar-
mannvirki, dýpkun og framrann-
sóknir Siglingastofnunar vegna
möguleika á stórskipaaðstöðu
norðan Eiðis.
Elliði Vignisson bæjarstjóri fór
yfir stöðu mála varðandi upp-
tökumannvirki Vestmannaeyja-
hafnar.
Ráðið samþykkti að fela
hafnarstjóra að ganga frá erindi
Vestmannaeyjahafnar
vegna endurskoðunar á
Samgönguáætlun 2009 til 2012 í
samræmi við umsóknareyðublað
sem lokið var við á fundinum.
Neyðarhafnir og skipaafdrcp
Á sama fundi fór Ólafur hafn-
arstjóri nánar yfir greinargerð
Siglingastofnunar frá febrúar sl.
og tillögur um neyðarhafnir og
skipaafdrep á Islandi sem kynntar
voru á síðasta fundi ráðsins.
Hafnarstjóra var falið að senda
inn athugasemdir framkvæmda-
og hafnarráðs vegna málsins sem
lagðar voru fram á fundinum.
Snjóhreinsun og þurrdælustöð
Guðmundur Þ.B. Ólafsson,
rekstrarstjóri ÞMV gerði grein
fyrir verkefnum Þjónustumið-
stöðvar Vestmannaeyjar og út-
gjöldum vegna snjóhreinsunar á
vegum bæjarfélagsins á tímabil-
inu 1. janúar til 14. mars og lagði
fram samanburðartölur fyrir
síðustu þrjú ár.
Framkvæmda- og hafnarráð
þakkaði starfsfólki Þjónustumið-
stöðvar og öllum þeim aðilum
sem unnu við snjóhreinsun í
Vestmannaeyjum undarfarnar
vikur oft við mjög erfiðar
aðstæður.
Glófaxafjölskyldan til liðs
við Eyjatölvur
Breytingar hafa orðið á eignarhlut í Eyja-
tölvun ehf. en Glófaxafjölskylda hefur
keypt helmingshlut í fyrirtækinu á móti
Guðbirni Guðmundssyni. Jóhann Guð-
mundsson hafði áður selt sinn hlut í fyrir-
tækinu en Eyjatölvur hafa sinnt verslunar-
og tölvuþjónustu og munu gera það áfram.
Haraldur Bergvinsson kemur til með að
hefja störf hjá Eyjatölvun fljótlega en hann
er nú að vinna að lokaritgerð í sjávar-
útvegsfræði við Háskólann á Akureyri.
„Sjávarútvegsfræðingar eru að vinna við
ýmis störf og ekki nema um helmingur
þeirra vinnur við sjávarútveg,“ sagði
Haraldur þegar hann var spurður um
fyrirætlanir sínar hjá fyrirtækinu. „Við
höfðum hug á að flytja til Eyja og þá er
ekkert annað að gera en að finna sér eitt-
hvað að gera,“ sagði Haraldur.
Þegar Guðbjörn og Haraldur voru
spurðir hvort vænta mætti breytinga hjá
fyrirtækinu sögðu þeir að með nýjum
mönnum kæmu alltaf nýjar áherslur en
fyrirtækið verði rekið með svipuðu sniði.
„Það verða engar róttækar breytingar og
við aðlögum okkur að markaðnum og
fylgjumst með því sem er að gerast. Það
verða engar umbyltingar, en þetta cr
spennandi og ég vonast til að
Vestmannaeyingar taki okkur vel “ sagði
Haraldur en á miðvikudag voru
Eyjatölvur með ýmis tilboð og bæjarbúum
gafst kostur á að snúa lukkuhjóli þar sem
ýmsir vinningar voru í boði.
BERGVIN Oddsson, útgerðarmaður og fyrrum skipstjóri með Guðbirni þegar
samningurinn var handsalaður.
ÍHgefandi: Eyjasýn ehl'. 480278-0549 - Vostmannaeyjum. Bitetjóri: Ómar Oarflarsson.
Blaðamenn: Guðbjörg Sigurgeirsdóttir, Signrgeir Jónsson og Ellert Scheving. íþróttir:
Ellert Scheving.Áhyrgdarmenn: Ómar Gardarsson & (íísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetnr ritetjómar: Strandvegi 47.
Simar 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1393. Netfang/rafpóstnr frettir@eyjafrettir.is.
Veffang: http/Avww.eyjafrettir.is
FRÉ'lTUt koma út alla fimmtudaga. Blaðið cr sclt í nskrift og einnig í lausasölu á lvlctti,
Tvistínum, Toppnum, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Kninunni, ísjakanmn,
verslun 11-11 og Skýlinu i Friðarhöfn.. FRÉTTOR eru prentaðar í 3000 eintökum.
FRÉTIiR eru aðilar að Samtökum hæjar- og héraðsfréttablaðiL Eftirprentun, hljóðritun,
notkun 1 jósmynda og annað er óheimilt nema hcimilda sé getið.