Fréttir - Eyjafréttir - 12.06.2008, Page 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 12. júní 2008
Myndlist, tónlist, Skvísusund
og Megas á goslokahátíð
ÞAU leggja hönd á plóg, Ósvaldur Guðjónsson, tónlistarmaður, Páley Borgþórsdóttir formaður bæjarráðs,
Þórarinn Ólason tónlistarmaður, Karl Björnsson tónlistarmaður, Helga Björk Ólafsdóttir formaður
goslokanefndar, Sæþór Vídó tónlistarmaður, Kristín Jóhannsdóttir mcnningarfulltrúi bæjarins og Egill
Egilsson, starfsmaður Vestmannaeyjabæjar.
Goslokanefnd efndi til blaða-
mannafundar á fimmtudaginn þar
sem farið var yfir það helsta sem í
boði verður þegar þess verður
minnst að þann 3. júlí nk. eru 35 ár
frá lokum Heimaeyjargossins.
Hátíðin stendur frá miðvikudegi
til sunnudags. Hæst ber skrúðgangu
á Skansinum og að sjálfsögðu
fjörið í Skvísusundi sem í hugum
margra er það sem hæst ber á
hverri goslokahátíð. Þá verða
kræmar að litlum skemmtihúsum
þar sem fólk kemur saman, nýtur
og tekur þátt í tónlist sem þar er í
boði. Fram kom á fundinum að
búist er við mörgum til Eyja um
goslokahelgina.
Sú venja hefur skapast að þegar
goslokin standa á hálfum eða
heilum tug er þeirra minnst með
myndarlegri hætti en annars. Má
rekja þetta til 25 ára afmælisins
sem verður flestum sem þá voru
staddir í Eyjum ógleymanlegt. Þá
varð Skansfjaran aðalvettvangurinn
og komu fram atriði sem orðið
hafa fastir liðir í dagskrá gosloka-
hátíðar.
Ekki var hátíðin síður glæsileg
fyrir fimm árum en þá var höfnin
miðpunkturinn m.a. með tónleikum
undir Löngu, komu víkingaskipsins
Islendings og eftirminnileg er
skrúðganga frá höfninni upp á
Stakkó.
Dagskrá goslokahátíðar, sem
kynnl var á fimmtudaginn er um
margt athyglisverð en hvort hún
stenst samjöfnuð við hátíðirnar
1998 og 2003 á eftir að koma í Ijós.
Hefst á fimmtudegi
I goslokanefnd eru Helga Björk
Ólafsdóttir, formaður, Páley Borg-
þórsdóttir og Páll Scheving en
Kristín Jóhannsdóttir, kynningar-
og menningarfulltrúi er starfsmaður
nefndarinnar. Páley og Kristín
mættu á blaðamannafundinn ásamt
tónlistarfólki sem kemur við sögu á
hátíðinni sem formlega verður sett
fimmtudaginn 3. júlí með ávörpum
bæjarstjóra og formanns gosloka-
nefndar af svölum Ráðhússins..
Við það tækifæri verða öskufalls-
súlur Mara, Marinós Sigursteins-
sonar, pípara, afhjúpaðar.
Fyrir bæjarráði þann 27. maí lá fyrir
ósk frá sýslumanni vegna tækifæris-
leyfis HBB fyrir sjómannadansleik í
Höllinnni. Ekki var samstaða hjá
meirihluta og minnihluta um
afgreiðsluna. Fulltrúi minnihlutans
sagði tækifærisleyfi ekki eiga við í
þessu tilviki. Meirihlutinn tók undir
þær ábendingar en sagði hins vegar
það vera hlutverk bæjarráðs að veita
umsögn um skipulag og afgreiðslu-
tíma og á þeim forsendum veitti
meirihluti bæjarráðs jákvæða um-
sögn. Á bæjarstjórnarfundi kom
fram áætlun um að minnka hljóð-
mengun niður fyrir tilskilin mörk.
Páll Scheving Ingvarsson, fulltrúi
minnihlutans í bæjarráði, lét bóka að
því miður yrði hann að veita þessu
máli neikvæða umsögn. „Ástæðan
er einföld. I 17. gr. laga um tæki-
færisleyfi segir: „Sækja þarf um
leyfi fyrir einstakar skemmtanir og
Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur og
Fimleikafélagið verður með
dansatriði.
Klukkan sjö verður boðið upp á
göngu um söguslóðir. Klukkan níu
verða meistari Megas og Senu-
þjófarnir í Höllinni sem þetta árið
er einn af stóru viðburðunum. Um
kvöldið ætlar Simmi á Kaffi Kró að
þjófstarta með Eyjakvöldi.
Klukkan hálf fjögur á föstudeg-
inum verður safnast saman á
Stakkó þar sem böm af leikskólum
bæjarins syngja tvö til þrjú lög og
öll börn fá blöðrur. Þaðan verður
skrúðganga á Skansinn þar sem
Leikfélagið og Fimleikafélagið Rán
verða með ýmsar uppákomur í
göngunni.
40 ára afmæli vatnsleiðslu
Klukkan fjögur minnist Hitaveita
Suðurnesja þess að á þessu ári er
40 ára afmæli vatnsleiðslunnar til
Vestmannaeyja. Opnuð verður veg-
leg sýning á myndum og gripum
sem tengjast komu hennar og gos-
brunnur verður settur af stað.
Gert er ráð fyrir að tuðrufarar,
Kraftur í kringum ísland, komi til
hafnar um klukkan hálf fimm.
Sama dag verður boðið upp á
göngu á Heimaklett, klukkan fjögur
verður opnun á myndlistarsýningu
Gísla Jónassonar í Akóges og
atburði sem fram fara utan veitinga-
og gististaða í atvinnuskyni og em
til þess fallnir að valda ónæði, svo
sem vegna hávaða og kalla á eftirlit
og/eða löggæslu. Hér undir geta
fallið t.d. útihátíðir, útitónleikar,
skóladansleikir og tjaldsamkomur."
Ekki er nokkur leið að koma auga
á að tækifærisleyfi geti lagalega átt
við þegar skemmtistaðurinn Höllin
er annars vegar. Það eina sem rétt er
að gera er að benda eigendum og
rekstraraðilum á að framkvæma
nauðsynlegar lagfæringar á þessu
húsnæði, þannig að það öðlist öll
tilskilin leyfi sem reksturinn kallar
á,“ sagði Páll í bókun sinni.
Meirihluti bæjarráðs tók undir
ábendingar minnihlutans um að það
sé ótækt að húsnæðið byggi sína
starfsemi á tækifærisleyfum sökum
þess að það standist ekki kröfur
heilbrigðiseftirlitsins. „Hins vegar
klukkan sex á sýningu Freyju
Önundar í Vélasal. Klukkan átta
opna Ási Friðriks, Gerður og
Henson sýningu í Kiwnis.
Volcano Open, opið golfmót sem
Golfklúbburinn stendur fyrir, hefst
þennan dag. Klukkan níu verða
tónleikar í Höllinni, Eyjalagaþema
með blandaðri dagskrá sem Obbi
og Kalli hafa veg og vanda af.
Klukkan ellefu verður svo upp-
hitun í Skvísusundi sem sennilega á
að standa fram á morgun.
Laugardagurinn býður upp á
göngu á Heimaklett og gönguferð
með Arnari Sigurmundsyni um
miðbæinn, sem hann kallar Húsin í
bænum.
Klukkan hálf eitt hefst Fjöl-
skylduhátíð og Sparisjóðsdagur í
boði Sparisjóðsins þar sem margt
verður í boði sem einkum er ætlað
unga fólkinu. Þar verða leiktæki,
ýmsir skemmtikraftar og slegið
verður upp grillveislu.
Stórleikur verður í fótboltanum
þegar meistaraflokkur ÍBV karla
mætir KS Leiftri á Hásteinsvelli.
Klukkan hálf fimm verður form-
leg opnun á Eldheimum, sem er
helgað goshlutanum í safnaflóru
bæjarins. Þar verður tískusýning á
fatnaði fatahönnuða frá Eyjum.
Um tónlistina sér hljómsveitin
Tríkot.
Einn skemmtilegasti hluti
er það hlutverk bæjarráðs að veita
umsögn um skipulag og afgreiðslu-
tíma og á þeim forsendum veitir
meirihluti bæjarráðs jákvæða um-
sögn,“ sagði í bókun meirihlutans.
Málið var tekið til umræðu og
staðfestingar og þá barst svohljóð-
andi bókun frá meirihluta bæjar-
stjórnar: „Bæjarráð veitir ekki
skemmtanaleyfi heldur sýslumaður
og er bæjarráð einungis umsagnar-
aðili í slíkum málum meðal annarra
aðila. I lögum um skemmtanahald er
skýrt kveðið á um hlutverk
sveitarstjómar og í 10. gr. laganna
segir að sveitarstjórnir skuli stað-
festa að afgreiðslutími og staðsetn-
ing staðar séu innan þeirra marka
sem reglur og skipulag sveitar-
félagsins segja til um. Bæjarráð
skiptir sér ekki af þeim lagaheim-
ildum sem sýslumaður hefur til að
veita skemmtanaleyfi enda er sú
goslokahátíðar eru frásagnir úr gos-
inu sem að þessu sinni er stjómað
af Grími Gíslasyni. Hist verður í
Vélasalnum og hefst dagskráin
klukkan átta.
Skvísusund hefur yfirleitt verið
vettvangur þeirra eldri sem safnast
þar saman eins og á góðu ættarmóti
þegar líða tekur á kvöldið. Nú fá
krakkamir sinn skammt og verður
dagskrá helguð bömum og ung-
lingum frá klukkan níu til ellefu á
laugardagskvöldið. Þá taka hinir
eldri við, taka lagið og rifja upp
gömul kynni og em að fram á
morgun. Hljómsveitir og skemmti-
kraftar í Skvísusundi eru Eymenn,
Dans á rósum, Árni Johnsen, Lalli
& Eygló, Obbossí, Tríkot og
hljómsveitin Afrek kemur fram í
pásum.
Þakkargjörðarmessa í Landakirkju,
ganga að krossinum í gíg Eldfells
eru hefðbundin atriði á sunnudegi í
goslokum. Þar finnst gömlum og
yngri Eyjamönnum notalegt að
koma saman. Þar kemur m.a. fram
Kór eldri borgara sem sló eftir-
minnilega í gegn á sönghátíðinni í
Höllinni á sjómannadaginn.
Þar með er botninn sleginn í
dagskrá goslokahátíðar en þess má
geta að messað verður í Seljakirkju
í Reykjavík fyrir þá gömlu Vest-
mannaeyinga sem ekki eiga heiman
gengt þessa helgi.
ákvörðun á hans ábyrgð.
Eini ágreiningurinn um Höllina í
dag lýtur að hljóðmengun frá húsinu
og er hlutverk heilbrigðisnefndar að
veita umsögn um þann þátt en ekki
bæjarins. Fyrir liggur bréf frá
eigendum Hallarinnar, sem sent var
umhverfisráðuneyti 19. maí sl.
Samkvæmt bréfinu liggur fyrir
framkvæmdaáætlun sem miðar að
því að minnka hljóðmengun niður
fyrir tilskilin mörk. Áætlað er að
framkvæmdimar verði boðnar út í
þessum mánuði og ljúki í september
nk. Meirihluti bæjarstjórnar fagnar
því að unnið skuli að endurbótum á
Höllinni sem munu vonandi verða
til þess að deilum um Höllina ljúki
enda húsið mikilvægt menningar-
starfi Vestmannaeyinga."
Málið var síðan samþykkt með
fjórum atkvæðum meirihlutans en
minnihlutinn sat hjá.
Frá brettamönnum:
Þakka
fyrir sig
Ingó Olsen, einn af þeim sem
sýndu listir sínar við Friðarhöfn
á laugardegi Sjómannadags-
helgarinnar, hafði samband við
Fréttir fyrir hönd hópsins og
vildi koma á framfæri þakklæti
til allra þeirra sem aðstoðuðu þá
við gjörninginn.
„Mig langar að koma á fram-
færi þökkum frá okkur strák-
unum úr Reykjavík fyrir góða
umönnun, stuðning og skemmti-
legan tíma. Okkur langar að
þakka Sjómannadagsráði, Pizza
67, Fjólunni, foreldrum hans
Mumma fyrir húsnæðið,
Björgunarsveitinni og öllum
Eyjamönnum fyrir að stússast
með okkur í öllu og engu.
Sérstakar þakkir fá einnig
guttarnir úr Eyjum og strákarnir
hans Mumma fyrir að sýna
karakter og dugnað. Takk fyrir
okkur," segir í orðsendingunni
Afrek með
nýtt lag á
vefnum
Eyjabandið Afrek hefur sett nýtt
lag á heimasíðu hljómsveitar-
innar, www.myspace.com/afrek.
Strákamir ráðast ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur því um
er að ræða gamla slagarann Boat
on the river sem ameríska
rokkbandið Styx gerði vinsælt
snemma á níunda áratugnum.
Hljómsveitina Afrek skipa þeir
Helgi Torshamar, Sævar Helgi
Geirsson, Birkir Ingason og
Jóhann Ágúst Torshamar. Hægt
er að hlusta á lagið á síðu
hljómsveitarinnar auk þess sem
þar er að fínna lagið
Guðlaugssundið sem sveitin
gerði á síðasta ári.
Hljóðmengun í Höllinni niður
fyrir tilskilin mörk í september
Útgefandi: Eyjasýn elif. 480378-0549 - Vestmannaoyjuin. RitBtjóri: Ómar Garðarsson.
Blaðamenn: Guðbjörg Sigurgciisdóttir, Sigurgeir Jónsson og Ellert Selieving. fþróttir:
Ellert Selieving. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna; Eyjasýn/ Eyjaprent. i'estmannaeyjum. Aðsetur ritstjómar: Strandvegi 47.
Símar: 481 Citio & 481 3310. Myndriti: 481-1393. Netfangáafpóstur frettdr@cyjafivttir.is.
Veffang: http/Avww.eyjafrettir. is
FRÉfi'i'lB konia útalla fimintudaga. Bladið erselt i áskrift og einnig i lansasöluá Kletti,
Tvistinnm, Toppnum, Vöruval, Ilerjólfi, h’lughafnarversluninni, Krónunni, Isjakanum,
verslun 11-11 og Skýlinu i Friðarhöfn.. FRÉTiiR eru prcntaðar í 3000 eintökum.
FRÉTTiReru aðilar að Samtökuin bæjar- og héraðsfréttablaða Éftirprentun, liljóöritun,
notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sc getið.