Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 12.06.2008, Blaðsíða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 12.06.2008, Blaðsíða 4
4 Fréttir / Fimmtudagur 12. júní 2008 Blogghclmar Georg Arnarson: Hart hjá leiguliðum Það er frekar hart í ári hjá leigu- liðum þessa dagana og ég var að fá þær fréttir af Suðurnesj- unum, að þar stefni í fjölda- gjaldþrot margra minni útgerðar- manna. Hringdi í mig maður í dag, sem hefur verið að beita á Suðurnesjunum, til að reyna að selja mér nokkur línubjóð. Það var það eina sem hann gat fengið upp í það sem hann átti inni hjá útgerðinni, því útgerðin var farin á hausinn. Hann sagði mér m.a. dæmi um útgerðarmann, sem fór á sjó fyrir nokkru síðan, fiskaði 4,5 tonn, mest þorsk, en þegar út- gerðarmaðurinn hafði borgað leig- una, beitninguna, beituna og olíuna, þá stóðu eftir aðeins innan við 100 þús. krónur fyrir gjöldum og leigu á húsnæði og var þetta samt einn af betri róðmm hjá þessum manni. Leiga á þorskkvóta í dag (ef hann fæst), er um 240-250 kr. kg. og fyrir fisk sem er að seljast á mörk- uðunum frá 200 til liðlega 300 krónur, þá getur verið erfitt að skauta á þessari örmjóu lfnu. Sem betur fer, er ég þó með flestar þær tegundir sem ég veiði í föstum viðskiptum, en það dugar ekki endalaust, enda hefur olían hækkað, beitan hækkað, leigan hækkað og í flestum tegundum, verðið lækkað. Magnús Bragason: Á Spáni Ég er farinn til Spánar ásamt Öddu og Friðriki. Verðum í húsinu hennar mömmu á Torreveje. Með okkur verða tengdaforeldr- amir. Reyndar verða allir afkom- endur þeirra á svæðinu. Bára og Lilja leigðu sér hús við hliðina á okkur, Vigdís og Erlingur verða í húsinu sem Gunný og Rikki eiga og Jón Ingi fékk hús sem er á Marina svæðinu. Þannig að þetta er orðið hálfgert ættarmót. Strákarnir okkar í fótboltanum fara aldeilis vel af stað þetta sumar- ið. 6 sigrar í röð og markatalan í deildinni 11-0. I fyrra vorum við komin með 9 stig eftir fímm umfer- ðir en nú 15. Við vorum hársbreidd frá því að komast upp í fyrra. Nú ætlar Heimir með liðið upp! Skólabróðir minn, hann Svenni, er að standa sig vel sem formaður, en hann tók við keflinu í sumar af öðrum duglegum manni, honum Viðari Elíassyni. Gísli Hjartarson: Skotsjúkt lið Var ekki nóg að svæfa dýrið og koma því ein- hvers staðar fyrir? - Nei, endilega skjótum það, ég sem hélt að þetta væri ein af þeim dýrategundum sem menn teldu að væru um það bil að detta á stig útrýmingarhættu. Bið að heilsa yfirlögregluþjóninum fyrir norðan og vona að hann þurfi aldrei að ferðast um í þoku!!!! Eyjamaöur vlkunnar: Þjóðhátíðarlagið, Brim og boðaföll Hreimur Örn Heimisson, söngvari hljómsveitarinnar Lands og sona, er nú að leggja lokahönd á þjóð- hátíðarlagið í ár. Lagið heitir Brim og boðaföll og er stefnt að því að setja lagið í spilun á öllum betri útvarpsstöðvum á sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Reyndar hefur heyrst að frum- flutningur verði við setningu Pæjumóts TM í kvöld. Hreimur þekkir þjóðhátíðina eins og handar- bakið á sér, hefur margsinnis staðið á stóra sviðinu og skemmt gestum en auk þess hefur hann komið að fjórum þjóðhátíðarlögum, m.a. hinu geysivinsæla Lífið er yndislegt, sem hefur verið nokkurs konar þjóðhátíðarlag undanfarinna ára. Hreimur Örn er því Eyjamaður vikunnar. Nafn: Hreimur Örn Heimisson Fæðingardagur: l.júlí 1978. Fæðingarstaður: Reykjavík. Fjölskylda: Kvæntur með eitt barn og annað á leiðinni. Draumabíllinn: Það er Toyota Tercel eða Volkswagen bjalla, gamla týpan. Mér hefur alltaf fundist Tercel flottur og bjallan líka en þetta byggist algjörlega á ytra útliti enda hef ég lítið vit á bílum almennt. Uppáhaldsmatur: ítölsk nauta- hakkssúpa sem konan mín gerir. Það er minn uppáhaldsmatur. Versti matur: Skata eða gellur til dæmis. Þetta er það allra versta sem ég reynt að setja ofan í mig. Prófa skötuna samt alltaf aftur en hún breytist ekkert á milli ára. Uppáhalds vefsíða: Þetta er auðvelt, það er Fótbolti.net. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Það er svo margt og erfitt að spyrja tónlistarmann svona spurn- inga. Akkúrat núna er það tónlistin úr myndinni Into the wild sem Eddie Vedder á heiðurinn af. Aðaláhugamál: Þar sem ég vinn við tónlist þá lít ég ekki á það sem áhugamál þannig að ég segi golf. Hreimur Örn er Eyjamaður vikunnar. Hvaða mann/konu myndir þú vilja hitta úr mannkynssögunni: Þetta er gríðarlega erfið spurning en ég held ég verði að segja Gandí. Ég held að hann hafi vitað lengra en nef hans náði og það hefði ekkert verið leiðinlegt að taka einn hring með honum í golfi. Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Þeir eru nokkuð margir staðimir sem em fallegir og erfitt að gera upp á milli. Eg held ég segi samt Rínardalurinn í Þýska- landi, nánar tiltekið Bobbart dalurinn en þar spilaði ég á Jakobsgolfvellinum og var nánast sama í hvaða átt maður horfði, það gat allt verið mynd á póstkorti. Annars eru Vestmannaeyjar alltaf í topp þremur hjá mér. Uppáhalds íþróttamaður og íþróttafélag: Ég held ég verði að segja að þeir Tiger Woods og Michael Jordan séu mínir uppá- haldsíþróttamann. Ætli það séu nokkrir sem komist með tærnar þar sem þeir hafa hælana. Uppáhalds- liðið mitt er Liverpool en eftir að ég sá þá taka United 3:1 þá hef ég verið þeirra maður. John Arne Riise skoraði meira að segja í leiknum. Ertu hjátrúarfullur: Nei. Stundar þú einhverja íþrótt: Ég tel mig meðalgóðan golfara og svo finnst mér alltaf gaman að sprikla í fótbolta. Uppáhaldssjónvarpsefni: Það eru svona skrítnir þættir. Ég var rosa- lega hrifinn af Dexter og núna síðast er það Eureka. Þættir eins og Prison Break og CSI höfða líka þvflíkt til mín. Varstu lengi að semja þjóð- hátíðarlagið: Nei ég samdi það eiginlega um jólin. Tryggvi og fé- lagar voru búnir að hafa samband og biðja mig um að senda þeim lag. Þeir lofuðu mér þó aldrei að það yrði notað enda vildu þeir halda möguleikanum opnum að fá fleiri lög. En ég samdi lag sem mér finnst vera mjög þjóðhátíðarlegt og gerði einfaldan texta með. Þetta er ekki ósvipuð uppskrift og Lífið er yndislegt, þó ég sé ekki að líkja þessum lögum saman enda toppar líklega ekkert Lífið er yndislegt. Land og Synir munu svo flytja lagið sem er kannski meira hljóm- sveitarlag þó svo að allir eigi að geta sungið með. Hvaða þjóðhátíðarlag er í uppá- haldi hjá þér af þeim sem þú hefur komið að: Lífið er yndislegt. Hin lögin eiginlega gleymast eiginlega af því hversu vel það heppnaðist. Vinátta er lfka eftirminnilegt en eiginlega bara af því að það var svo vont veður árið sem það var þjóðhátíðarlag. En ég er með samning við almættið um að það verði gott veður í ár. Verða Land og synir á ferðinni í sumar: Nei, við verðum lítið á ferðinni. Við komum fyrst og fremst saman á þjóðhátíð enda erum við hálfgerð þjóðhátíðar- hljómsveit. Við ætlum reyndar að sjá til eftir þjóðhátíðina hvort við tökum ekki smá rúnl. Eitthvað að lokum: Sjáumst á þjóðhátíð. MANNABREYTINGAR hafa orðið við höfnina undanfarna mánuði þar sem starfsmenn til margra ára hafa náð löglegum heldrimannaaldri. Allir byrjuðu þeir á sama tíma eftir að hafa verið lengi til sjós. Um áramótin síðustu hættu tveir. Fyrstan skal nefna Óla Svein Benharðsson sem byrjaði hjá höfninni árið 1986 og var allan tímann vélstjóri á Lóðsinum. Hinn er Björgvin Magnússon sem byrjaði hjá Höfninni 1987. Björgvin var yfirhafnsögumaður til 2007 en í hálfu starfi til 2008. Loks var það Sveinn Halldórsson sem hætti í þessum mánuði. Hann byrjaði hjá höfninni 1987, þá á Grafskipinu Vestmannaey þar sem hann var í nokkur ár en síðan sem hafnarvörður til júní 2008. Sveinn Haldórsson og ÓIi Sveinn Benharðsson hættu báðir þegar 70. árinu var náð, en Björgvin Magnússon 69 ára. Með þeim á myndunum er Ólafur M. Kristinsson, hafnarstjóri, sem færði þeim gjöf frá höfninni í tilefni tímamótanna. Gamla myndin: Þessi glæsilega kona ber merkið mynd no. 11.439 í safni Kjartans. Annað er ekki vitað um hana. Enn höggvum við í þann sama knérunn að biðja lesendur Frétta að bæta úr. Sem fyrr er síminn hjá okkur á Bókasafninu 481 1184 eða 893 3488 (Gunnar Ólafsson er sér um skráningu á Ijósmyndasafni Kjartans). Jafnframt minnum við á að frammi í anddyri Safnahússins höfum við komið fyrir tveimur möppum með myndum af óþekktum fyrirsætum. Fengur væri okkur að því að fróðir settust niður og hjálpuðu okkur til að þekkja þá sem enn eru nafn- lausir. Nýir Eyjamenn: Þann 11. aprfl sl. eignuðust Jóhanna Kristín Reynisdóttir og Egill Arnar Amgrímsson stúlku sem skírð hefur verið Bima Dögg. Hún fæddist á Landspítalanum í Reykjavík. Stúlkan var 4225 gr. og 53 cm. Með henni á myndinni em bræður hennar, Reynir Þór þriggja ára og Arnar Gauti fimm ára. Kirkjcir bazjarins: Landa- kirkja Laugardagur 14. júní Kl. 14.00. Útfararguðsþjónusta Guðlaugs Guðjónssonar. Sunnudagur 15. júní Kl. 11.00. Guðsþjónusta. Kaffisopi á eftir. Miðvikudagur 18. júní Kl. 11.00. Helgistund á Hraunbúðum. Huítasunnu- kirkjan Fimmtudagur Biblíulestur kl: 20:30 Laugardagur Brauðsbrotning kl: 20:30 Sunnudagur Samkoma kl: 13:00 Allir hjartanlega velkomnir. Guð er góður og miskunn hans varir að eilífu. Aðuent- kirkjan Laugardagur Vertu velkominn að rannsaka með okkur Biblíuna kl. 10:30. Sérstök dagskrá fyrir börnin. Sjáumst! V

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.