Fréttir - Eyjafréttir - 12.06.2008, Blaðsíða 12
12
Fréttir / Fimmtudagur 12. júní 2008
Hef þroskast mikið sem leik-
maður síðustu tvö ár
- segir knattspyrnumaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem hefur kynnst
hæstu hæðum og dýpstu dölum atvinnumennskunnar á stuttum ferli
GUNNAR: Ég veit að þetta var rétt ákvörðun því ég hef þroskast mjög mikið á þessum tíma sem er liðinn
frá því að ég fór frá Halmstad, bæði sem einstaklingur og sem knattspyrnumaður. Ég hef kynnst þessari
hlið knattspyrnuheimsins og þetta hefur reynt mikið á andlegu hliðina en ég stend enn í báða fætur og horfi
bjartsýnn á framtíðina.
Það er óhætt að segja að Gunnar
Heiðar Þorvaldsson hafi kynnst
öllum hliðum atvinnumannsins í
knattspymu í þann stutta tíma sem
hann hefur verið í þeirri grein.
Gunnar fór til sænska liðsins Halm-
stad frá ÍBV og gekk frábærlega,
var á einu ári orðinn einn vinsælasti
leikmaður liðsins og mikill marka-
skorari. Halmstad gekk á sama
tíma mjög vel, sérstaklega í
Evrópukeppninni. Þar sló liðið
m.a. út portúgalska liðið Sporting
Lissabon með frábærum útisigri
sem Gunnar Heiðar átti apðvitað
stóran þátt í.
I framhaldinu lóru mörg lið að
renna hýru auga til Eyjapeyjans
sem söðlaði um og gekk í raðir
þýska úrvalsdeildarliðsins Hanno-
ver. Eftir að sú ákvörðun var tekin
má segja að allt hafi farið að ganga
á afturfótunum og Gunnar var oft
meiddur. Hann var að lokum
lánaður til norska liðsins Váler-
enga og nú eru blikur á lofti með
stöðu hans þar.
Fréttir slógu á þráðinn til Gunnars
sem var á leið í stutt sumarfrí með
unnustu sinni, Eyjastúlkunni
Bjarnýju Þorvarðardóttur en þau
eiga von á sínu fyrsta barni saman í
næsta mánuði.
Líst vel á Ólaf
Gunnar hefur verið fastamaður í
leikmannahópi íslenska landsliðsins
en hann lék síðasta leik liðsins,
lapleik gegn Wales á Laugardals-
velli. Gunnar var eðlilega ekki
sáttur við niðurstöðu leiksins.
„Miðað við hvemig leikurinn
þróaðist þá er maður ekki sáttur við
að tapa og við hefðum átt að fá
miklu meira út úr þessum leik.
Wales fékk eitt færi, og varla það,
og skoraði úr því en við vorum
alveg ágætir í fyrri hálfleik.
Það var hins vegar fínt að fá
þennan leik því margir ungir leik-
menn fengu tækifæri og stóðu sig
bara nokkuð vel. Þetta var þar af
leiðandi ekki marktækur leikur
varðandi getu íslenska liðsins en
eins og Olafur þjáli'ari sagði, þá er
hann með fjörutíu leikmenn á lista
og maður veit í raun aldrei hvaða
leikmenn hann velur hverju sinni.“
Talandi um Olaf Jóhannesson,
nýráðinn þjálfara íslenska liðsins,
hvernig líst þér á hann?
„Mér líst vel á hann, hann er fínn
náungi og hefur náð mjög góðum
árangri með FH. Hann vill líka að
leikmenn taki ábyrgð á því sem
gert er inni á vellinum og hvetur
okkur til að reyna. Við erum ekki
fastir í einhverju kerfi sem má
ekkert brjóta upp og mér líkar vel
við það.“
Fékk slæma meðhöndlun
lækna
Eins og áður kom fram hefur
Gunnar Heiðar upplifað hæstu
hæðir og dýpstu dali atvinnu-
mennskunnar á síðustu þremur
árum en hann segir að vistaskiptin
úr Halmstad og yfir í Hannover haft
verið erfið. „Eg átti von á því að
þetta gengi betur en ég lendi bæði í
nára- og hnémeiðslum og það er
auðvitað alveg vonlaust að byrja
hjá nýju félagi með því að vera
meiddur nánast allt tímabilið. Ég
fór til Hannover til að byggja ofan
á þann árangur sem ég hafði náð
með Halmstad, taka næsta skref
sem atvinnumaður og verða betri
fótboltamaður. En ég var að ná
mér af fótbroti þegar ég kom til
Þýskalands og svo ég segi bara
alveg eins og er þá fékk ég mjög
slæma meðhöndlun við þeim
meiðslum sem ég tel að hafi leitt að
öðrum meiðslum sem ég varð fyrir
sama vetur.
Læknar liðsins og forráðamenn
virtust ekki hafa neinn skilning á
því að ég væri að ná mér eftir fót-
brot, hentu mér bara í þrekæfingar
og hlaup og læknarnir sinntu mér
ekki rétt. Þetta var orðið mjög
slæmt og ég var mjög kvalinn,
þangað til einn daginn að ég sagði
við þá að ég ætlaði til íslands til að
láta lækna íslenska landsliðsins
kíkja á mig. Það tók ekki nema
fimmtán mínútur að finna út hvað
amaði að mér hér á Islandi sem
sýnir hvemig mér var sinnt þarna
úti. En ég náði einhvérjum leikjum
með Hannover, m.a. æfmgaleik
gegn Real Madrid þar sem ég
skoraði eitt mark. Það er auðvitað
eitthvað sem maður lifir á í ellinni,
að hafa spilað gegn þessum stjöm-
um og skorað gegn þeim.“
Gunnar segir að fyrsti veturinn í
Þýskalandi hafi reynt mikið á hann
andlega vegna meiðslanna. „Já,
þetta var orðið mjög erfitt og vem-
lega erfitt að geta ekki beitt sér
almennilega og fá aldrei að spila."
Gekk vel hjá Válerenga
Veturinn hjá Hannover leið og
þegar Gunnar var orðinn góður af
þeim meiðslum var komið að
ákvörðunartöku hjá honum. „Ég
sagði þjálfaranum að ég vildi spila
en eðlilega gat hann ekki lofað mér
því. Ég þurfti hins vegar mikið á
því að halda að komast í leikform
og maður gerir það ekki með því að
sitja á bekknum. Við fórum því að
þreifa fyrir okkur hjá öðrum liðum
með lánssamning í huga. Einbeitt-
um okkur að Skandinavíu enda var
ég ennþá þekktur þar fyrir frammi-
stöðuna með Halmstad. Válerenga
sýndi mikinn áhuga á að fá mig og
ég ákvað að fara til þeirra í eitt ár
og í raun að byrja upp á nýtt. Ég
fékk líka frið til þess og er núna að
komast í mitt gamla form.“
Gunnar kom til Válerenga á miðju
tímabili í norska boltanum þegar
staða liðsins var slæm, liðið var við
botn úrvalsdeildarinnar og gekk illa
að skora. „Já ég var auðvitað
fenginn til að setja meiri brodd í
sóknarleikinn og það gekk ágæt-
lega. Liðinu gekk í það minnsta
mun betur eftir að ég kom þangað
og við enduðum í sjöunda sæti sem
var mjög gott, miðað við hvar liðið
var.“
Nú er síðara leiktímabilið komið
vel afstað en þú hefur ekkifengið
mörg tœkifœri með liðinu?
„Nei, og ég hef ekki verið mjög
sáttur. Ég reyni að vera þolin-
móður, leggja harðar að mér á
æfingum en það virtist vera alveg
sama hvað ég geri eða hversu vel
ég stend mig, ég fæ aldrei tækifæri.
Það sem meira er, liðinu hefur
gengið illa að skora mörk í byrjun
tímabilsins en samt fékk ég ekki
tækifæri. Reyndar hefur það breyst
í síðustu leikjum og ég hef náð að
skora þrjú mörk í síðustu tveimur
leikjum. Ég var eiginlega farinn að
sætta mig við að fara annað en svo
hefur gengið vel í síðustu leikjum
þannig að ég er í hálfgerðu limbói.“
Lánssamningurinn rennur út núna
í júní. Hafa forráðamenn Váler-
enga eitthvað rœtt framhaldið við
þig? „í raun hefur lítið verið rætt
við mig og ég þyrfti auðvitað að fá
að mína stöðu á hreint. Við Bjarný
eigum von á bami í næsta mánuði
og ég get ekki verið að standa í
flutningum á milli landa þegar að
því kemur.
Forráðamenn Válerenga eru undir
mikilli pressu frá stuðningsmönn-
um að halda mér en það er í raun
bara einn maður sem ræður þessu
og það er þjálfarinn. Það er líka
ekkert auðvelt að vera að skipta um
lið núna þar sem ég hef í raun ekki
spilað neitt af viti síðustu tvö ár.
Ég get ekki endalaust lifað á því
sem ég gerði hjá Halmstad."
*
Ekki inni í myndinni að
fara aftur til Hannover
Gunnar segist þó ekki hafa teljandi
áhyggjur af því að komast ekki að
annars staðar þar sem nokkur lið
hafa þegar spurst fyrir um hann.
„Ég á reyndar enn ár eftir af
samningi mínum hjá Hannover og
veit ekki hvort Hannover og Váler-
enga hafi samið um eitthvert
kaupverð. En ég veit að önnur lið
hafa verið að spyrjast fyrir um mig.
Næsta skref sem ég tek er mjög
mikilvægt því nú er uppbyggingin
eftir meiðslin búin og nú þarf ég
bara að fara að sanna mig.“
Er inni í myndinni að snúa aftur til
Hannover og klára samninginn
þar? „Nei. I sannleika sagt þá er
liðið ekki að spila knattspymu sem
hentar mínum leikstil þannig að ég
er ekki spenntur fyrir því að fara
aftur þangað. Við erum að vinna í
því að fá mig lausan þaðan fyrir
sem lægsta upphæð, helst bara að
losna undan samningi þar enda
myndi það hjálpa mikið til við að
komast að annars staðar."
Nú ertu búinn að spila bœði í
Svíþjóð og Noregi, er mikill munur
á knattspyrnunni í þessum tveimur
löndum? „Já, norski boltinn er
talsvert öðruvísi og að mínu mati
mun líkari enska boltanum en sá
sænski. Hér er meiri hraði og leik-
menn eru sterkari. í Þýskalandi er
hraðinn svo ennþá meiri og mun
meiri hraði á leikmönnum án
bolta."
Var rétt ákvörðun
Var það hugsanlega röng ákvörðun
á sínum tíma að yfirgefa Halmstad?
Hefðir þú kannski átt að taka eitt
tímabil í viðbót í Svíþjóð? „Veistu,
ég er búinn að fara yfir þetta
milljón sinnum og niðurstaðan er
alltaf sú sama. Ég'veit að þetta var
rétt ákvörðun því ég hef þroskast
mjög mikið á þessum tíma sem er
liðinn frá því að ég fór frá Halm-
stad, bæði sem einstaklingur og
sem knattspyrnumaður. Ég hef
kynnst þessari hlið knattspyrnu-
heimsins og þetta hefur reynt mikið
á andlegu hliðina en ég stend enn í
báða fætur og horfi bjartsýnn á
framtíðina. Ég þurfti líka að fara í
mikla naflaskoðun í Þýskalandi
þannig að þegar upp er staðið held
ég að ég komi sterkari út úr þessu
en ef allt hefði gengið eins og ég
hafði hugsað mér.“
Hvenær má svo búast við að þín
mál skýrist?
„Ætli það verði ekki á næstu
tveimur vikum. Lánssamningurinn
er aðtenna úl þannig að það er í
raun ekki eftir neinu að bíða. Eins
og ég sagði áðan þá vill maður fá
þessa hluti á hreint þar sem Eyja-
peyinn okkar Bjarnýjar er á leið-
inni.“
Þarf að ná fleiri mörkum
en Trausti
Eins og alltaf fylgist Gunnar vel
með sínu gamla félagi, ÍBV og
hann segist gleðjast mjög yfir vel-
gengni liðsins í upphafi Islands-
mótsins. „Það hefur verið frábært
að fylgjast með IBV í upphafi móts
og greinilegt að Heimir er að gera
góða hluti með liðið. Mér fannst
maður lesa það á milli línanna í
fyrra að menn ætluðu að taka 1.
deildina með vinstri eins og maður
segir. En mér sýnist það hafa verið
ágætt fyrir liðið að fá svona „wake
up call“ og komast ekki upp. Mér
sýnist menn vera klárir í slaginn
núna. En það slæma við gengi
Eyjaliðanna er að Trausti Hjaltason,
fyrirliði KFS, er búinn að skora
fleiri mörk en ég í sumar. Ég verð
greinilega að hafa mig allan við til
að breyta því,“ sagði Gunnar að
lokum.