Fréttir - Eyjafréttir - 12.06.2008, Qupperneq 13
Fréttir / Fimmtudagur 12. júní 2008
13
KRISTINN: -Mér fannst kcnnslan almennt mjög góð. Kennarar þurftu alveg eins og við
að læra á nýtt kerfi í skólanum og aldursskiptinguna en í hcildina var ég mjög sáttur.
BRYNJA: -Ég stefni á Versló næsta vetur og vona að ég komist inn. Ég vel Versló af því
að mig langar að prófa eitthvað nýtt, búa á nýjum stað og kynnast nýju fólki.
Kristinn og Brynja náðu góðum árangri á samræmdu prófunum:
Hann er með bíladellu og hún
er að læra að fljúga
1 síðustu viku var stór hópur
unglinga útskrifaður úr Grunnskóla
Vestmannaeyja eða alls 86 krakkar.
Útskriftin fór fram við hátíðlega
athöfn í Landakirkju og var fjöldi
verðlauna afhentur vegna góðs
námsárangurs. Fréttir heyrðu
hljóðið í tveimur nemendum á
þessum tímamótum, þeim Kristni
Pálssyni og Brynju Þrastardóttur.
Kristinn Pálsson, sonur Rutar
Haraldsdóttur og Páls Guðmunds-
sonar, útskrifaðist og fékk auk þess
viðurkenningu fyrir góða mætingu
og fyrir góðan árangur í stærðfræði.
Kristinn segist mjög sáttur við skól-
ann og ekki síst eftir þær breytingar
sem gerðar voru á skólastarfmu
síðustu tvö ár.
„Mér finnst hafa gengið mjög vel
að fara í þessar breytingar, að sam-
eina skólann og svo að aldursskipta
honum núna í vetur og í raun er ég
í dag hæstánægður með breyting-
amar. Mér finnst að flestir jafn-
aldrar mínir séu sammála mér.
Sjálfur var ég reyndar mjög á móti
þessum breytingum á fyrstu önn en
þetta var klárað mjög vel. Reyndar
var engin unglingaaðstaða til að
byrja með í vetur en hún kom um
áramót og þá var maður orðinn
sáttur.“
Fannst þér skólinn verða betri við
þessar breytingar?
„Já, ég held það. Mjög fljótlega
fannst mér ég alltaf hafa verið í
Bamaskólanum en ég kom úr
Hamarsskóla en auðvitað kom um
helmingur krakkanna með mér
þaðan. Ég kannaðist því við flesta
og kynndst fleirum úr Bamaskól-
anum og það gekk mjög vel. Við
vomm líka mjög heppin sem kom-
um úr Hamarsskóla að mjög margir
kennarar fylgdu okkur yfir sem
gerði breytinguna enn auðveldari.
Mér fannst stærsta breytingin í
vetur þegar aldursskiptingin var
gerð en árið áður, þegar skólinn var
sameinaður, þá fann maður ekkert
fyrir neinni breytingu. Þaðvarjú
nýtt nafn á skólanum og nýr
skólastjóri en að öðru leyti gekk
skólastarfið bara sinn vanagang.
Ég held samt að það hafi verið
nauðsynlegt að taka tvo vetur í
þessar breytingar svo þær gengju
sem best fyrir sig.“
Nú kemur þú úr Hamarsskóla,
hvernig var tekið á móti ykkur í
Barnaskólanwn ?
„Bara vel. Ég viðurkenni það
alveg að ég var ekkert mjög spennt-
ur fyrir því að skipta um skólahús-
næði og vildi helst af öllu klára
grunnskólann á sama stað. En eftir
á að hyggja var þetta bara gaman
og ég hefði ekki vilja missa af
tækifærinu til að kynnast öllum
krökkunum í árganginum. Ég var
einn af þeim sem var hvað mest á
móti þessari sameiningu en ég var
líka fljótur að skipta um skoðun
þegar veturinn byrjaði.“
Kristinn heldur áfram og segir að
kennslan í vetur hafi verið mjög
góð. „Mér fannst kennslan almennt
mjög góð í tíunda bekk. Kennarar
þurftu, alveg eins og við, að læra á
nýtt kerfi í skólanum og aldurs-
skipdnguna en í heildina var ég
mjög sáttur."
Samræmdu prófin ofmetin
Eins og svo margir kannast við er
hluti útskriftar úr grunnskóla fólg-
inn í því að taka samræmt próf,
sem reyndar eru í dag tekin í fleiri
bekkjum en þeim tíunda. Mörgum
hefur fundist gert fullmikið úr sam-
ræmdum prófum og Kristinn tekur
undir það. „Þessi próf eru vissu-
lega nauðsynleg því próf á milli
bekkja og á milli skóla eru ekki
eins og kannski misþung. I sam-
ræmdum prófum taka allir krakkar
á landinu sama prófið og þá sér
maður virkilega hvar maður stend-
ur. En mér finnst stundum gert
fullmikið úr mikilvægi prófanna.
Ég hafði það stundum á til-
fmningunni í vetur að ef maður
stæði sig ekki vel í samræmdu
prófunum þá ætti maður enga
möguleika á framhaldsnámi. Það
er auðvitað ekki rétt. Ef maður fær
slakar einkunnir þá fer maður bara
hægar yfir í framhaldsskóla þannig
að samræmd próf eru kannski
svolítið ofmetin. En þau skipta
auðvitað máli, mér gekk vel þannig
að ég er sáttur.“
Hvernig var félagslífið í vetur?
„Félagslífið var mjög gott, sérstak-
lega eftir að félagsaðstaðan var
löguð. Féló spilar auðvitað stóra
rullu og krakkarnir þekkjast úr
starfmu þar og félagslífið fer að
miklu leyti fram þar.“
Vinnur í Bragganum í
sumar
Eins og flestir þeirra sem útskrif-
uðust er Krisdnn kominn á vinnu-
markaðinn en hann fer kannski
dálítið óhefðbundna leið.
„Já, ég verð að vinna á Bíla-
verkstæðinu Bragganum í sumar og
er spenntur fyrir því. Ég hef alltaf
verið með bíladellu og fékk að
vinna í Bragganum þegar við fórum
í starfskynningu. Það gekk vel og
svo þegar kom að þvf að fá vinnu í
sumar þá sótti ég bara um hjá Darra
og fékk vinnu. Mér finnst þetta
mun betri kostur en að vera lokaður
inni í frysdhúsi og sjá ekki einu
sinni sólina. Annars hef ég lídð
planað hvað ég ætla að gera í
sumar, bara vinna og svo njóta
góða veðursins í Vestmannaeyjum."
Hvað með nœsta vetur, œtlarðu (
skóla?
„Já, ég geri ráð fyrir því og þarf
reyndar að klára það mál í þessari
viku. Mig langar mikið að fara í
Versló. Bæði er það mjög góður
skóli og svo er félagslífið þar
frábært, mikil leiklist og ég er mjög
spenntur fyrir því. En ég hef enn
ekki gert upp huga minn hvar ég
verð næsta vetur.“
Þú œtlar semsagt að taka stúd-
entinn ?
„Já, eins og staðan er núna stefni
ég á það. Ég væri líka alveg til í að
læra bifvélavirkjun en geri ráð fyrir
að laka stúdentinn. Annars veit ég
ekkert hvað mig langar að læra í
framtíðinni, möguleikarnir eru svo
ótal margir enda hef ég áhuga á svo
mörgu þannig að ég geri ráð fyrir
að klára stúdentinn og sjá svo til
eftir það. Helga Tryggvadóttir var
mjög duglega í vetur að kynna fyrir
okkur hina ýmsu möguleika
varðandi námið, bæði bóklegt nám
og iðnnám. Ég held að margir hafi
áhuga á iðngreinum en margir fara
bara í stúdentinn því þeir vita
ekkert hvað þeir vilja,“ sagði
Kristinn að lokum.
Brynja var hlynnt breyt-
ingunum
Brynja Þrastardótdr fékk viður-
kenningu fyrir góða ástundun og
einnig fyrir góðan árangur í
stærðfræði. Brynja var í Hamars-
skóla áður en kom að aldurs-
skipdngunni og tekur undir með
Kristni að skiptingin hefði gengið
vel.
„Mér fannst þessar breydngar
fínar og var alltaf mjög hlynnt
þeim. Ég var mjög spennt yfir því
að kynnast nýjum krökkum og
fannst ekkert erfitt að skipta um
skóla. Ég átti frekar von á þvf að
skólinn yrði betri með sam-
einingunni þar sem þá væru fleiri
krakkar í hverjum árgangi.
Félagslífið verður miklu fjöl-
breyttara enda miklu skemmtilegra
að vera með rúmlega áttatíu
krökkum en fjörutíu. Mér fannst
kennararnir lfka að mörgu leyti
mjög góðir, fannst þeir reyndar
betri í Hamarsskólanum en fínir í
vetur.“
Hvað finnst þér um að taka sam-
rœmd próf í lok grunnskólans?
„Að mörgu leyti er það svolítið
ósanngjamt því ef þú ert eitthvað
stressaður eða illa fyrir kallaður þá
getur þú lent í vandræðum í fram-
haldsskólanum, bara út af einu
prófi. Þessi próf skipta framhalds-
skólana miklu máli þegar þeir raða
nemendum í hrað- eða hægferð og
því mikilvægt að ná góðum árangri.
En það er samt enginn heimsendir
þótt maður fari í hægferð í fram-
haldsskóla."
í flugnám eftir grunnskóla
Það er óhætt að segja að Brynja fari
ótroðnar slóði þegar verkefni
sumarsins eru annars vegar en strax
að lokinni útskrift úr grunnskóla,
dreif hún sig í flugnám í Reykjavík.
En af hverju flugnám?
„Það var eiginlega pabbi sem
hvatti mig áfram til að fara í þetta.
Ég hafði ekkert velt þessu sérstak-
leg fyrir mér en var búin að prófa
að fara í flugtíma í Vestmanna-
eyjum. Núna er ég í Flugskóla
íslands hérna í Reykjavi'k og er á
hraðnámskeiði sem tekur sex vikur.
Eftir það þarf ég að fljúga í eina
fimmtán tíma til að fá sólóprófið og
svo 140 til að fá einkaflugmanns-
réttindin. Eftir það má ég fljúga
með farþega en svo þarf maður að
taka atvinnuréttindapróf ef maður
ætlar sér að vinna við þetta en ég
held að ég megi það ekki fyrr en
eftir stúdentsprófið."
Er ekkert mál að hoppa upp í
flugvél ogfljúga afstað?
„Nei, nei, það er minnsta málið að
stýra vélinni. Hins vegar eru miklir
útreikningar í þessu og mér finnst
stundum svolídð snúið að stilla
mælana og reikna en þetta er samt
mjög gaman. Þetta námskeið, sem
ég er á núna, er eingöngu bóklegt
en ég á vonandi eftir að fljúga eitt-
hvað í framtíðinni."
Hvað með framtíðina, œtlar þú að
verða atvinnuflugmaður?
„Ég held ekki. Ég stefni á að
fara í Versló næsta vetur og vona að
ég komist inn. Ég vel Versló af því
að mig langar að prófa eitthvað
nýtt, búa á nýjum stað og kynnast
nýju fólki,“ sagði Brynja að lokum.