Fréttir - Eyjafréttir - 12.06.2008, Qupperneq 16
/ Sun
aL investmenCs SJ_
FASTEIGNASALA A SPÁNl
LINDA RÓS
(0034)646 930 757
lindarosg@hotmail.com
www.suninvestmentsl.com
piús fz
aw&OÐÍE/jíM
du^ii-j^y^srj-waD
Eyjafréttir.is
- fréttir milli Frétta
KVENNAHLAUP Konur á öllum aldri og einn drengur tóku þátt í Kvennahlaupinu sem í Eyjum varð að
fresta fram á sunnudag vegna veðurs. Hér eru þær Guðrún Helga og Júlíana að hita upp. Fyrstur í mark
var Daníel en hann hljóp stystu leiðina. Fyrst kvenna var Kristín Sigmundsdóttir hún hljóp líka stystu leið-
ina en Gyða Arnórsdóttir var fyrst í lengstu leiðinni, Steinsstaðahringnum.
Tekjuskerðing upp á milljarð
verði farið að tillögum Hafró
Félagsfundur í Útvegsbændafélagi
Vestmannaeyja segir tillögur Hafró
um hámarksafla á næsta fiskveiðiári
mikil vonbrigði. Þar er m.a. lagt til
að veiðar á þorski verði takmarkaðar
enn frekar þrátt fyrir 30% niður-
skurð þorskafla á yfirstandandi ári.
Fari sjávarútvegsráðherra að til-
lögum Hafró þýðir það verulega
tekjuskerðingu fyrir Eyjaflotann.
Félagsmenn segja mikið ósam-
ræmi milli tillagnanna og þess góða
ástands sem sjómenn og útgerðar-
menn hafa upplifað á miðunum í
kringum landið. Hafa þeir efasemdir
um að tillögurnar séu byggðar á
nægilega traustum grunni. Félagið
styður tillögur LÍÚ um hámarksafla
einstakra tegunda á næsta fisk-
veiðiári.
í tillögum Hafró er m.a. gert ráð
fyrir að þorskurinn fari úr 130.000
tonnum í 124.000 tonn, ýsan úr
100.000 tonnum í 83.000, ufsinn úr
75.000 í 50.000 og karfinn úr
57.000 í 40.000.
Ljósi punkturinn er að lagt er til að
humar fari úr 1990 tonnum í 2200
tonn.
Samkvæmt upplýsingum sem
Fréttir hafa aflað sér þýðir þetta
tekjuskerðingu fyrir Eyjaflotann
upp á um I milljarð króna en gert er
ráð fyrir að heildaraflaverðmæti
hans verði 7,5 til 8 milljarðar á yfir-
standandi ári.
Ekki er gert ráð fyrir loðnu í þess-
um útreikninum.
Megas loks á leið
til Vestmannaeyja
Tilboð opnuð í dag:
Minni ferja
á teikni-
borðinu?
Tilboð í gerð Landeyjahafnar og veg
að henni verða opnuð klukkan 11.00
í dag, fimmtudag. Margir hafa sótt
gögn en framkvæmdir eiga að hetj-
ast í sumar og á að vera lokið sumar-
ið 2010.
Upphaflega kostnaðaráætlunin
hljóðaði upp á tæpa fjóra milljarða
en Sigurður Jóhannsson, deildar-
stjóri framkvæmda hjá Vegagerð-
inni, sagði að endanleg kostnaðar-
áætlun yrði birt um leið og tilboð
verða opnuð. Hann sagðist ekki gera
sér grein fyrir því hve mörg tilboð
berist en segir áhugann mikinn.
Samkvæmt upplýsingum sem
Fréttir hafa aflað sér verður smíði á
ferju fyrir Landeyjahöfn boðin út á
næstu vikum. Með útboðsgögnum
mun fylgja smíðalýsing þar sem gert
er ráð fyrir mest 70 m löngu skipi og
ekki breiðara en 16 m.
Er það breyting frá fyrra útboði þar
sem gert var ráð fyrir 60 til 70 m
löngu skipi og 15 til 17 m breiðu.
Nú eru öll lágmörk dottin út og
segja heimildir Frétta að með
smíðalýsingunni fylgi teikningar af
60 m löngu skipi og 13,5 m breiðu.
Það á að taka 300 farþega og 50 til
60 bfla.
Ferjan sem Eyjamenn buðu var 69
m löng og 16 m breið.
„Það leggst gríðarlega vel í
okkur. Hljómsveitin hefur aldrei
komið til Vestmannaeyja og
Megas hefur, mér vitandi, ekki
spilað í Eyjum í fjöldamörg ár,“
segir Guðmundur Kristinn
Jónsson, forsprakki hljóm-
sveitarinnar Senuþjófanna sem
leika í Höllinni fimmtudaginn 3.
júlí nk. ásamt Magnúsi Þór
Jónssyni - Megasi.
„Við ætlum að leika ný lög í
bland við margar af perlunum
sem Megas hefur samið í gengum
tíðina. Allir ættu þannig að hafa
gaman af. Við höfum verið að
spila víða um landið og það er
mikil tilhlökkun í okkur að spila
í Eyjum. Við lofum kraftmiklum
og góðum tónleikum,“ segir Guð-
mundur Kristinn.
Samstarf Megasar og Senuþjóf-
anna hófst í kringum upptökur á
plötunum „Frágangi“ og „Hold
er mold“ sem komu út í fyrra-
sumar og haust. Ohætt er að
segja að plöturnar hafi hlotið
mikið lof gagnrýnenda og afar
góðar viðtökur plötukaupenda.
Voru þetta fyrstu plötur Megasar
í 6 ár og því kærkomnar.
Samstarf Megasar og Senuþjóf-
anna mun síðan bera enn frekari
ávöxt nú í sumar því þriðja plata
þeirra kemur út á næstu vikum.
Megas sendi fyrst frá sér hljóm-
plötu árið 1972 og bar hún ein-
faldlega nafnið „Megas“. í dag
eru plöturnar í kringum 30
talsins og ófáar dægurlagaper-
lurnar orðnar til. Þannig má
finna níu af plötum Megasar á
lista yfir hundrað bestu hljóm-
plötur tuttugustu aldar á Islandi
í bók Dr. Gunna - „Eru ekki allir
í stuði“ sem kom út árið 2001.
Megas hefur í gegnum tíðina
unnið með mörgum af fremstu
tónlistarmönnum þjóðarinnar.
Samstarf Bubba og Megasar er
Iöngu þekkt en Megas hefur ein-
nig unnið með hljómsveitum á
borð við Ný dönsk, Súkkat,
Spilverk þjóðanna og í dag
Senuþjófunum. Hafa gagnrýnen-
dur haft á orði að Senuþjófarnir
séu þar fremstir í flokki.
Hljómsveitin Senuþjófarnir er
skipuð þeim Guðmundi Kristni
Jónssyni gítarleikara, Sigurði
Guðmundssyni bassaleikara,
Birni Ólafssyni trommara og
Þorbirni Sigurðssyni hljóm-
borðsleikara ásamt Guðmundi
Péturssyni gítarleikara.
Forsala aðgöngumiða fer fram í
Sparisjóði Vestmannaeyja og
hefst fimmtudaginn 18. júní.
Miðaverð í forsölu er 2000
krónur en 2500 krónur við
inngang. Þá er einnig hægt að
tryggja sér miða með því að
senda póst á netfangið
megas @ heimaey.is
Frón Spelt kex - nýtt
verð nú kr 238,-
verð óður kr 269,-
Pepsi / appelsín
verð nú kr 69,-
verð áður kr 88,-
Búrf. Spar skinka
verð nú kr 189/*
verð áður kr 230,-
VIKUTILB0Ð
12. -18. júní
Frón Gróft mjólkurkex
verð nú kr 238,-
verð áður kr 269,-