Fréttir - Eyjafréttir - 07.08.2008, Page 15
Fréttir / Fimmtudagur 8. ágúst 2008
15
Knattspyrna:
Ævintýri að koma til Islands
segja brasilísku leikmenn kvennaliðs ÍBV
Þrjár brasilískar knattspyrnukonur
hafa leikið með IBV í sumar og hafa
vakið talsverða athygli fyrir vask-
lega framgöngu á vellinum. Þær
Aline Dos Santos, varnar- og miðju-
maður, Maira Ogata, markvörður og
Katya Arruda, sóknarmaður voru til
í að segja aðeins frá sjálfum sér og
reynslu sinni af Islandi.
Maira
„Ég er frá Sao Paolo og byrjaði að
spila fótbolta þegar ég var ellefu ára
gömul en byrjaði ekki í markinu fyrr
en ég varð 15 ára,“ sagði markvörð-
urinn Maira Ogata. „Ég hef spilað
með tveimur stórum félögum í
Brasilíu, Juventus og Santos en Pelé
spilaði einmitt með því félagi á
sínum tíma. Síðan fór ég í háskóla í
Bandaríkjunum og spilaði fótbolta
með náminu. Ég var reyndar búin
að leggja skóna á hilluna og hafði
lítið spilað í heilt ár en svo kom
þetta tækifæri að koma til Islands í
sumar og ég ákvað að grípa það,“
sagði Maira sem er í mastersnámi í
Bandaríkjunum.
Aline
Aline kemur eins og Maira frá Sao
Paolo í Brasilíu en hún byrjaði
seinna í fótbolta. „Ég byrjaði 14 ára
gömul og ég spilaði fyrir tvö stór
félög, Corinthians og hitt er Palm-
eiras. I mínum vinahópi voru
margir strákar og þeir voru auðvitað
hvattir til að spila fótbolta. Ég fór
að leika mér með þeim og eitt leiddi
af öðru. Eftir nokkur ár var ég farin
að spila sem atvinnumaður og hef
spilað nánast stanslaust síðan. Ég
tók smá pásu þegar ég var 15 ára en
byrjaði aftur á fullu 16 ára görnul."
Katya
„Ég heiti Katya en vinir mínir kalla
mig Katynha, sem þýðir Katya litla.
Það er eins og Ronaldinho, sem var
kallaður litli Ronaldo vegna þess að
það var annar Ronaldo í brasilíska
fótboltanum. í Brasilíu fær fólk oft
svona viðurnefni og þar sem ég er
frekar smávaxin þá þótti tilvalið að
kalla mig þetta. Én ég byrjaði í fót-
bolta með eldri bróður mínum og
við vorum alltaf að spila. Við erum
bara tvö systkinin og vorum því
mikið að leika okkur saman í fót-
bolta en ég var bara 5 ára þegar við
byrjuðum að leika okkur saman.
Þegar ég var 11 ára byrjaði ég hjá
fyrsta félaginu mínu en gerðist
atvinnumaður 16 ára gömul. Ég hef
samt sem áður meira verið í innan-
hússknattspyrnu og spilaði með
tveimur bestu félögunum. Ég fór
svo til Bandaríkjanna og spilaði þar
en ég elska að spila fótbolta og gæti
spilað allan sólarhringinn ef ég
fengi tækifæri til þess.“
Vissum ekkert um ísland
Þegar þær eru spurðar út í það
hvernig þeim leist á að koma til
Islands til að spila fótbolta brosa
þær allar vandræðalega. „Við hugs-
uðum allar það sama, þetta verður
kalt. I sannleika sagt vissum við
ekkert um ísland eða fótboltann hér.
Við vildum samt prófa þetta enda
algjört ævintýri fyrir okkur að koma
hingað til íslands," segir Maira.
Þær segja allar að landið hafi
komið þeim á óvart. „Það var
enginn snjór hérna þegar við
komum eins og við áttum von á
heldur falleg náttúra. Fólkið hérna
hefur líka verið einstaklega
skemmtilegt og hjálplegt og við
erum búnar að taka mikið af
myndum," segja stelpumar.
En hvað með íslenska kvennafót-
boltann, hvernig finnst ykkur hann?
„Hann er harður, mjög harður.
Meira að segja á æfingum er tekið
vel á því og það er eitthvað sem við
eigum ekki að venjast. Hér er
hraðinn meiri ef við miðum við
háskólaboltann í Bandaríkjunum.
Hér byrja stelpur mun fyrr að spila
fótbolta og hafa því betri tækni en í
Bandaríkjunum þar sem ungir
krakkar eru bara að leika sér en hér
bæta krakkar tæknina jafnt og þétt.“
Hvernig líst ykkur á möguleika IBV
á að komast upp?
„Önnur lið eru að bæta sig veruleg
eins og IA sem við unnum 7:1 í fyrs-
ta leik en gerðum svo 2:2 jafntefli í
seinni leiknum. En stelpurnar em
að bæta sig lfka og við erum að
verða betri sem lið. Ef ÍB V fer ekki
upp núna þá örugglega næsta sumar
því það em mjög efnilegast stelpur í
liðinu," segir Maira sem hefur að
mestu orðið fyrir stelpumar.
Hvernig fannst ykkur svo Þjóð-
hátíðin?
„Þjóðhátíðin var mjög skemmtileg,"
segja þær allar og brosa. „Við
kynntumst mjög mörgum á Þjóð-
hátíðinni og þetta er flottasta partý
sem við höfum farið í,“ segja þær og
brosa.
Allar segjast þær vera til í að koma
aftur næsta sumar og vildu nota tæki-
færið í lok viðtalsins að þakka öllum
þeim sem þær hafa hitt og hjálpað sér.
Ungmennalandsmót UMFÍ:
Nökkvi meistari
ÍBV sendi tvo keppendur á laugardaginn á skákkeppni Unglingalandsmóts
UMFÍ sem fór fram í Þorlákshöfn, þá Nökkva Sverrisson og Kristófer
Gautason. Keppt var í íjómm flokkum stráka og stúlkna 11-12 ára, 13-14
ára, 15-16 ára og 17-18 ára. Skemmst er frá því að segja að Nökkvi sigraði í
sínum flokki sem var reyndar sameinaður eldri flokkunum. Nökkvi var með
sex vinninga eftir sjö umferðir, þrátt fyrir að fá dæmt jafntefli í fyrstu umferð
þar sem Eyjamenn komu seint á mótsstað og misstu af fyrstu umferðinni,
enda á miðri Þjóðhátíð. Nökkvi gerði einungis jafntefli við Jóhann Óla, sem
reyndar keppti í eldri flokki en vann allar hinar skákimar og því eignuðumst
við Eyjamenn þar okkar eina Landsmótsmeistara þetta árið.
Kristófer átti slæman dag og lenti í fjórða sæti með 6,5 vinning en kepp-
endur voru 8 í hans flokki sem var 11-12 ára.
Stelpurnar höfðu betur
Góð þátttaka var í boðhlaupi sem Ungmennafélagið Óðinn stóð fyrir á
setningu Þjóðhátíðar. A myndinni eru verðlaunahafarnir saman-
komnir en í unglingaflokki öttu kappi sfrákar gegn stelpum og höfðu
stelpurnar betur.
Kristgeir Orri Grétarsson, 16 ára:
Fór holu í höggi
Kristgeir Orri Grétarsson, I6 ára,
gerði sér lítið fyrir og fór holu í
höggi síðasta þriðjudagskvöld þegar
hann var að spila golf með bróður
sínum, Agústi Emil. Kristgeir sló
draumahöggið á 12. braut sem er par
3 og um 140 metra löng. Kristgeir
notaði 8 járn af gerðinni Ben Hogan
og urðu nokkrir kylfingar vitni að
högginu góða.
Kristgeir var þó hinn rólegasti yfir
afrekinu þegar hann ræddi við
blaðamann. „Ég er búinn að vera
leika mér í golfi í tvö ár en ákvað að
taka þetta af meiri alvöru í ár. Við
vorum tveir að spila á
þriðjudagskvöldið, ég og bróðir
minn Agúst Emil en svo voru
nokkrir kylfmgar á brautunum í
kringum okkur. Ég vissi strax og ég
sló að þetta var gott högg enda náði
ég að fylgja boltanum eftir. Hann
skoppaði einu sinni á flötinni og
rúllaði svo bara ofan í.“
Kristgeir segist ekki hafa trúað því
að hafa farið holu í höggi og beðið
aðra um að staðfesta það. „Ég var
auðvitað mjög hissa þegar ég sá
boltann hverfa ofan í holuna og trúði
því ekki að ég hefði farið holu í
höggi. En eftir að ég spurði þá sem
voru í kring þá fór ég að trúa því og
fagnaði auðvitað í kjölfarið. Þeir
sem voru í kring óskuðu mér til
hamingju þannig að þetta var bara
mjög gaman.“
Og draumahöggið hefur vœntanlega
ekki minnkað áhugann á golfinu?
„Nei alls ekki. Nú verður bara æft
stíft í vetur og svo endurtek ég bara
leikinn næsta sumar.“
Allir þeir sem fara holu í höggi
komast í svokallaðan Einherjaklúbb
GSÍ og fá viðurkenningu þar af
lútandi. Kristgeir er nú kominn í
þennan virta félagsskap en tveir
aðrir hafa farið holu í höggi á
golfvellinum í sumar og báðir eru
þeir í GV. Fyrst fór Sigurgeir
Jónsson holu í höggi á 2. braut 16.
maí og Arsæll Helgi Amason lék
sama leik á 17. braut 3. júlí.
Iþróttir
Sveitakeppnin
á Akureyri
Sveit Golfklúbbs Vestmannaeyja
tekur þátt í Sveitakeppninni í golfi
sem fer fram um helgina. GV
leikur í 2. deild og fer keppnin
fram á golfvellinum á Akureyri.
Atta kylfingar skipa sveit GV en
það em þeir Gísli Steinar Jónsson,
Grétar Eyþórsson, Gunnar Geir
Gústafsson, Hallgrímur Júlíusson,
Júlíus Hallgrímsson, Karl Har-
aldsson, Þorsteinn Hallgrímsson
og Örlygur Helgi Grímsson.
Anton og Egill
hjá ÍBV til
2010
Tveir ungir og efnilegir knatt-
spyrnumenn framlengdu sam-
ningi sínum hjá IBV í síðustu viku
en þeir Anton Bjamason og Egill
Jóhannsson eru nú samnings-
bundnir félaginu til ársins 2010.
Báðir hafa komið talsvert við
sögu hjá ÍBV í sumar, Egill hefur
leikið ellefu af fjórtán leikjum
liðsins og lék alla þrjá leiki ÍBV í
bikarkeppninni. Anton hefur spi-
lað tíu leiki í íslandsmótinu og tvo
bikarleiki. Egill á alls 27 leiki í
meistarallokki ÍBV að baki en
Anton 47.
Stelpurnar í
efsta sæti
Lið ÍBV í öðrum flokki kvenna í
knattspymu hefur staðið sig mjög
vel það sem af er sumri en
síðasta miðvikudag lögðu stelp-
urnar Keflavík að velli í
Vestmannaeyjum.
Kolbrún Stefánsdóttir kom ÍBV
yfir í fyrri hálfleik og urðu það
lokatölur leiksins.
ÍBV er í efsta sæti A-deildar
Islandsmótsins með 18 stig en
Breiðablik er í öðm sæti, þremur
stigum á eftir IBV og á að auki
leik til góða. Eyjastelpur eiga þrjá
leiki eftir í Islandsmótinu, gegn
Þrótti, Val og KR og fara þeir allir
fram í Eyjum.
Framundan
Fimmtudagur 7. ágúst
Kl. 18.00 ÍBV-Víkingur I. deild
karla.
Kl. 19.00 Grótta-ÍBV 3. flokkur
karla.
Föstudagur 8. ágúst
Kl. I7.30 GRV-ÍBV I. deiid
kvenna.
Mánudagur 11. ágúst
Kl. 19.00 ÍBV-KFR 2. flokkur
karla.
Þriðjudagur 12. ágúst
Kl. 18.30 Fjarðabyggð-ÍBV 1.
deild karla.
Kl. 17.00 Þróttur-ÍBV 4. Bokkur
karla AB.
Kl. 17.00 ÍBV-Njarðvík 5.
flokkur karla ABCD.
Miðvikudagur 13. ágúst
Kl. 19.00 ÍBV-FH 1. deild
kvenna.
Kl. 15.50 Breiðablik2-ÍBV2 5.
flokkur karla D.
KI. 17.00 ÍBV-Valur 5. flokkur
kvenna ABC.