Fréttablaðið - 13.02.2013, Qupperneq 1
NEYTENDAMÁL Matvæla stofnun
hefur tekið sýni úr íslensku hakki
og framleiðsluvörum á markaði
hérlendis til að kanna hreinleika
kjötsins. Markmiðið er að kanna
hvort hrossakjöt sé að finna í
vörunum. Hrossakjötshneykslið í
Evrópu er tilefni rannsóknarinnar,
segir í fréttatilkynningu.
Rannsóknir á matvörum í
Evrópu hafa leitt í ljós að sumar
þessara vara innihalda hrossakjöt
að hluta eða öllu leyti. Komið hefur
í ljós að vörur sem þessar hafa að
einhverju marki verið fluttar til
Íslands og hafa tvær vörutegundir
verið innkallaðar vegna þess.
Árið 2010 birti Matís niður-
stöður gæðakönnunar á íslensku
nautahakki sem gerð var fyrir
Neytendasamtökin og Landssam-
band kúabænda. Þær sýndu að
öðrum kjöttegundum var ekki
blandað við nautahakkið.
Tekin hafa verið sýni úr fimm-
tán framleiðsluvörum sem lík-
legast má telja að unnt sé að blanda
hrossakjöti í án þess að það sé til-
greint á pakkningum. Sýnin verða
rannsökuð á Keldum og má búast
við niðurstöðum í næstu viku. - shá
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Miðvikudagur
16
RÓM Í FYRSTA SÆTINorska dagblaðið VG gerði könnun á því hvert lands-
menn vildu helst ferðast. Í ljós kom að langflesta
Norðmenn dreymir um að komast til Rómar. Ítalía var
ofar á listanum en Havaí og Karíbahafið. Róm hafði
vinninginn í öllum aldursflokkum en þó með mestum
mun hjá þeim sem eru 25-39 ára.
HESTAR OG ZUMBAÓHEFÐBUNDIN REIÐNÁMSKEIÐ Ester Júlía Olgeirsdóttir zumb kGuðmundur Arnarsson reiðkennari sta d
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerískgæðavara
Amerískgæðavara
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.mistyskor.is
Hugsaðu vel um fæturna
Sími 551 2070Opið mán.-fös. 10-18.
Í meira en hálfa öld hafa milljónir manna um allan heim notað BIRKENSTOCK® sér til heilsubótar. Hvað um þig? Teg: Arisona. St. 35 – 48. Verð: 12.885,- BÓKHALD
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013
Kynningarblað
Skattframtöl,
ársreikningagerð,
bókhaldsþjónusta,
launavinnsla og fjármálalæsi.& ENDURSKOÐUN
2 SÉRBLÖÐ
Bókhald & endurskoðun | Fólk
Sími: 512 5000
13. febrúar 2013
37. tölublað 13. árgangur
Áætlanir stóðust ekki
Eigendur Hörpu ætla að gefa eftir
skuldir og auka framlög til samstæð-
unnar til að bjarga henni frá þroti. 10
Tyggjóið burt Borgin notar
tækifærið meðan ekki snjóar og fjar-
lægir tyggjóklessur af götum. Tveir
starfsmenn ná að hreinsa um 200
fermetra á dag. 2
Lífsgæðin lök Ný skýrsla ASÍ sýnir
að lífsgæði hér á landi hafa dalað
samanborið við hin Norðurlöndin. 6
Enn ögra N-Kóreumenn Öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna var kallað
til neyðarfundar í gær eftir að ljóst
var að N-Kóreumenn höfðu gert
sína þriðju tilraun með kjarnorku-
sprengjur. 12
framleiðsluvörur
hafa verið teknar
til rannsóknar.
15
SKOÐUN Helgi Vilhjálmsson segir
íslenskan verkalýð verða að setja
hnefann í borðið. 20
MENNING Logi Bergmann er kynnir
á Edduverðlaunahátíðinni og lofar
skotum á bransaliðið. 38
SPORT Cristiano Ronaldo mætir
Manchester United í fyrsta sinn síðan
hann kom til Real Madrid. 34
b ó k a b ú ð
f o r l a g s i n s
Ágætu viðskiptavinir. Bjóðum Öryrkjum og
ellilífeyrisþegum 20% afslátt af öllum akstri.
Miðað við staðgreiðslu DEBIT
BORGARBÍLASTÖÐIN
Hrossakjötshneykslið í Evrópu fæðir af sér könnun á íslenskum matvörum:
Leita hrossakjöts í nautahakki
STJÓRNSÝSLA Nauðsynlegt er talið
að gera breytingar á kosninga-
lögum vegna fyrirsjáanlegs
fjölda framboðslista í alþingis-
kosningunum 27. apríl.
„Fyrirmæli laganna varðandi
kjörseðilinn þýða það að fram-
boðum er stillt upp hlið við hlið,“
segir Jóhannes Tómasson, upp-
lýsingafulltrúi innanríkisráðu-
neytisins. Miðað við stærð núver-
andi kjörseðils sé aðeins hægt að
hafa átta framboðslista á seðlinum.
„Miðað við fyrirspurnir og
hringingar sjá menn fyrir sér að
framboðin gætu orðið það mörg að
það myndi valda vandræðum við
að útbúa kjörseðilinn eins og lögin
mæla fyrir í dag,“ segir Jóhannes
sem kveður stöðuna eins og hún
er í dag geta þýtt fimmtán mögu-
leg framboð þótt ekkert sé ljóst
um það enn þá. „Það þarf blað
sem tekur hálft skrifborð til að ná
þeirri breidd,“ bendir Jóhannes á.
Lausnin sem menn sjá fyrir sér
felst að sögn Jóhannesar í laga-
breytingu sem heimilar að hafa
tvær raðir með framboðslistum
á kjörseðlinum; efri röð og neðri
röð. Þá mætti hafa allt að sextán
lista á seðlinum.
Þótt líklega verði framboðs-
listarnir færri en fimmtán þegar
upp er staðið er jafnvel enn von
á fleirum því framboðsfrestur
rennur ekki út fyrr en fimmtán
dögum fyrir kjördag. Í það eru enn
tveir mánuðir. Jóhannes bendir á
að hins vegar sé stefnt að því að
Alþingi ljúki störfum um miðjan
mars. Samþykkja þurfi lagabreyt-
inguna fyrir þann tíma. „Það má
segja að við séum einfaldlega að
reyna að hafa vaðið fyrir neðan
okkur ef þessi yrði staðan,“ segir
Jóhannes.
Auk þess sem þetta mál hefur
verið til skoðunar í innanríkis-
ráðuneytinu er lagabreytingin nú
undirbúin hjá stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd Alþingis. - gar
Fjöldi lista sprengir kjörseðla
Breyta verður ákvæði kosningalaga um kjörseðla vegna mikils fjölda framboðslista í alþingiskosningunum.
Fimm tán möguleg framboð í spilinu. Seðillinn nær yfir hálft skrifborð að óbreyttu segir innanríkisráðuneytið.
Framboðslistar 2009
B-listi Framsóknarflokkur
D-listi Sjálfstæðisflokkur
F-listi Frjálslyndi flokkurinn (hyggst
bjóða fram með Dögun)
S-listi Samfylkingin
V-listi Vinstri hreyfingin – grænt
framboð
O-listi Borgarahreyfingin (hyggst
bjóða fram með Dögun)
P-listi Lýðræðishreyfingin (ekki
vitað um framboð nú)
Ný framboð með listabókstaf
C-listi Samstaða – flokkur lýðræðis
og velferðar (hætt við framboð)
G-listi Hægri grænir
E-listi Bjartsýnisflokkurinn
A-listi Björt framtíð
H-listi Húmanistaflokkurinn
Óafgreitt
T-listi Dögun
Þ-listi Píratar
Alþýðufylkingin (er í startholunum)
HEIMILD: INNANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
Mögulegir framboðslistar 2013
FORSKOT Á SÆLUNA Börnin á Birkihlíðardeildinni í leikskólanum Björtuhlíð gerðu öskudagsbúningana sína sjálf og
fengu að prófa þá í gær þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði. Krakkarnir voru allir í gervi persóna úr leikritinu Dýrin í
Hálsaskógi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Bolungarvík 0° NA 10
Akureyri 0° A 6
Egilsstaðir 2° A 10
Kirkjubæjarkl. 3° A 12
Reykjavík 2° NA 12
HVASST SYÐST Í dag verða norðaustan
og austan 10-18 m/s, hvassast við
suðurströndina. Slydda eða rigning
sunnan og austan til. Hlýnar í veðri. 4
ALÞINGI Feneyjanefndin bendir á
að hætta sé á því að forseti mis-
noti málskotsrétt sinn. Sé forseti
á öndverðum
meiði í póli-
tík við meiri-
hluta Alþing-
is geti hann
vísað óvin-
sælum lögum í
þjóðaratkvæða-
greiðslu og
skaðað þannig
meirihlutann.
Stjórnlaga-
ráð lagði ekki til breytingar á
þessu ákvæði í drögum sínum að
stjórnar skrá.
Meirihluti stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar telur að hægt sé
að samþykkja nýja stjórnarskrá
á yfirstandandi þingi, þrátt fyrir
fjölmargar ábendingar Feneyja-
nefndarinnar. „Já, ég er sann-
færð um að það er hægt ef vilji er
til,“ segir Valgerður H. Bjarna-
dóttir, formaður nefndarinnar.
- kóp / sjá síðu 8
Ábendingar Feneyjanefndar:
Gæti misnotað
málskotsréttinn
VALGERÐUR
BJARNADÓTTIR