Fréttablaðið - 13.02.2013, Qupperneq 2
13. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SPURNING DAGSINS
Reynir, er ætlunin að hleypa
nýju blóði í starfsemi Strætó?
„Nei, nei, okkur bara rennur blóðið
til skyldunnar.“
Reynir Jónsson er framkvæmdastjóri Strætó.
Strætó styður þessa dagana við Blóðbankann
og hvetur farþega sína til þess að gefa blóð.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Borgarstarfs-
menn sem annars hefðu rutt snjó
af götum nýta hlýindi í febrúar til
að hreinsa tyggjóklessur af götum
Reykjavíkur.
„Véladeildin hjá okkur annast
þessi þrif. Þeir finna núna svig-
rúm til að hlaupa í þetta,“ segir
Jón Halldór Jónasson, upplýs-
ingafulltrúi hjá Reykjavíkur-
borg. „Segja má að þetta sé stund
milli stríða, þótt auðvitað sé þetta
töluvert stríð að eiga við tyggjó-
klessurnar.“
Jón Halldór segir misjafnt
eftir svæðum hversu hratt menn
komast yfir við þrifin. Að jafnaði
nái tveir menn með sérhæfð tæki
að þrífa klessur af sem nemur 200
fermetrum á dag. „Þeir mældu
þetta um daginn og voru þá einn
og hálfan dag með 300 fermetra.
Þetta er seinlegt, en við reynum
bara að gera þetta vel.“
Meðan veður leyfir á að halda
áfram að þrífa tyggjó klessur
af götum borgarinnar, sam-
kvæmt Jóni Halldóri. Ekki veiti
hins vegar af því að biðla til
borgaranna um aðstoð því þeir
sem standa í þrifunum sjái að
klessur séu fljótar að koma aftur
á svæði sem nýbúið er að hreinsa.
„Og svona ætlum við að halda
áfram og taka hvert svæðið á
fætur öðru, en um leið og fer að
snjóa fer þessi sami mannskapur
strax í að ryðja snjóinn.“
Allnokkur fyrirtæki taka að
sér að hreinsa tyggjóklessur af
stéttum. Gísli Óskarsson, verk-
efnastjóri hjá Hreinsitækni, segir
mjög misjafnt eftir svæðum og
stærð verkefna hver kostnaður sé
við hreinsunina. „Það er þá sett
eitthvað tímaverð á minni verk-
efni,“ segir hann, en kveður um
leið alveg óhætt að reikna með að
hreinsun á stærri svæðum kosti
250 til 300 krónur á fermetrann.
Er þá gert ráð fyrir gufuþvotti
með lágþrýstingi til að stéttin
verði eins og ný. Hætt sé við að
háþrýstiþvottur geri ekki annað
en að losa upp tyggjó klessuna og
þá verði eftir svartur blettur í
stéttinni. olikr@frettabladid.is
AUSTURSTRÆTI SMÚLAÐ Starfsmenn véladeildar Reykjavíkurborgar nýta sér
veðurblíðu í janúar til að hreinsa tyggjóklessur af götum borgarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Seinlegt og erfitt að
hreinsa tyggjóklessur
Borgarstarfsmenn nota tækifærið meðan ekki snjóar og hreinsa tyggjóklessur af
götum. Tveir menn með háþrýstibúnað ná að hreinsa um 200 fermetra á dag. Fólk
hrækir óhikað út úr sér á nýhreinsuð svæði. Haldið verður áfram ef veður leyfir.
Mikill óþrifnaður af völdum jórturleðurs hafði um árabil verið ráða-
mönnum í Singapúr þyrnir í augum áður en til þess kom að innflutningur
og sala þess var alfarið bönnuð árið 1992, að viðlögðum fésektum.
Fram kemur í æviminningum Lee Kuan Yew, fyrrverandi forsætis-
ráðherra landsins, að hann hafi þegar árið 1983 hugleitt bann, vegna
viðhaldskostnaðar í háhýsum og hreinsikostnaðar á götum úti og í
almenningsvögnum. Á þeim tíma hafi bann hins vegar þótt of róttæk
aðgerð. Kornið sem fyllti mælinn var svo þegar skemmdarvargar klíndu
tyggjói á skynjara hurða nýrrar tegundar neðanjarðarlesta sem teknar
voru í notkun í byrjun tíunda áratugarins. Þótt dæmin væru ekki mörg var
kostnaður mikill vegna röskunar á lestarsamgöngum
og viðgerða. Í kjölfarið var tyggjó gert útlægt.
Síðari breytingar á lögunum hafa heimilað
sölu tannhreinsi- og nikótíntyggjós í
apótekum, en ávísun læknis þarf til að
fá það keypt. Áfram liggja við því háar
sektir að henda ekki tyggjói í ruslið.
Tyggjó var bannað í Singapúr árið 1992
LÖGREGLUMÁL Lögregla handtók í fyrradag 35 ára
karlmann vegna rannsóknar á stórfelldu amfetamín-
smygli sem upp komst í janúarlok. Hann var í gær
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. febrúar.
Fjórir aðrir hafa setið í varðhaldi vegna
málsins síðan um mánaðamót, tveir
Litháar og tveir Íslendingar. Annar
Íslendinganna er 39 ára gamall bróðir
þess sem handtekinn var í fyrradag,
samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Bræðurnir hafa rekið fyrirtæki saman
um skeið.
Málið er mikið að vöxtum. Það
snýst um innflutning á tugum kílóa af
amfetamíni til landsins í nokkrum póstsendingum
sem komu til landsins sjóleiðina frá Kaupmanna-
höfn. Lagt var hald á þær í næstsíðustu viku janúar.
Sjötti maðurinn sat í gæsluvarðhaldi um tíma
vegna málsins en honum var síðan sleppt. Þrír
til viðbótar hafa verið handteknir við rann-
sóknina, tveir karlar og ein kona, en
þeim sleppt jafnóðum.
Efnið sem lagt var hald á er bæði
í vökva- og duftformi og endanleg
greining á magninu liggur ekki fyrir.
Að því er segir í tilkynningu frá lög-
reglu í gær miðar rannsókninni þó vel.
- sh
Enn einn í gæsluvarðhald vegna tuga kílóa amfetamínsmygls frá Danmörku:
Bræður grunaðir um dópsmygl
DÓMSMÁL Helgi Magnús Gunn-
arsson vararíkissaksóknari vill
að Héraðsdómur hafni kröfu verj-
anda Gunnars Andersen, fyrr-
verandi forstjóra Fjármálaeftir-
litsins (FME), um að láta kalla
þau Guðlaug Þór Þórðar son,
Ágústu Johnson, Sigur jón Árna-
son og Hauk Haraldsson til vitnis
í málinu gegn Gunnari. Gunnar er
ákærður fyrir brot á þagnarskyldu
og bankaleynd með því að hafa
fengið starfsmann Landsbankans
til þess að sækja gögn um meint
viðskipti Guðlaugs úr bankanum
og koma þeim til manns sem átti
svo að koma þeim í fjölmiðla.
Guðjón Ólafur Jónsson, verj-
andi Gunnars, sagði að vitnis-
burður þeirra ætti að varpa ljósi
á umrædd gögn sem Gunnari er
gefið að sök að hafa látið berast úr
bankanum, þar á meðal hvort þau
gögn séu sannarlega úr bankanum
og hvort þau viðskipti sem þau
fjalla um hafi í raun farið fram.
Vitnisburður þeirra ætti að geta
varpað ljósi á þá framvindu mála.
Helgi Magnús sagði að þær
upplýsingar sem vitnin ættu að
veita tengdust sakarefnum ekkert
heldur væri þar um að ræða allt
annað mál sem væri „á áhugasviði
ákærða“.
Dómurinn mun tilkynna úrskurð
sinn á næstu dögum eða vikum, en
aðalmeðferð hefst 21. mars.
- þj
Saksóknari hafnar vitnaleiðslum verjanda Gunnars Þ. Andersen:
Guðlaugur og Ágústa vitni ekki
GUNNAR Þ.
ANDERSEN
GUÐLAUGUR ÞÓR
ÞÓRÐARSON
FINNLAND Listamaðurinn Riiko
Sakkinen kveðst hafa falið eitt
þúsund evrur í fimmevruseðl-
um meðal bóka í bókasafni í
Helsinki. Listamaðurinn segir
þetta virðingarvott við bók-
menntir, bókasöfn og lestur. Á
vef Hufvudstadsbladet er haft
eftir starfsmönnum bókasafnsins
að þeim sé ókunnugt um þetta.
Listamaðurinn hafi ekki verið í
sambandi við þá.
Sakkinen segir seðlana, sem
hann hefur undirritað, vera á
meðal fagurbókmennta, fræði-
bóka og barnabóka. Sá sem
finnur seðil má eiga hann. Sakk-
inen biður um að vera látinn vita
finnist seðill. - ibs
Listaverk á bókasafni:
Þúsund faldar
evrur gefins
FERÐAÞJÓNUSTA Áætlað er að innlendir og erlendir ferðamenn hafi
eytt 1.900 milljónum króna í Vestmannaeyjum á árinu 2012. Þetta
kemur fram í markaðskönnun Rannsóknar og ráðgjafar. Fram kemur
að Íslendingum sem heimsóttu Vestmannaeyjar hafi fjölgað um 77
prósent og erlendum ferðamönnum um 350 prósent frá 2004, aðal-
lega vegna Landeyjahafnar. Áætlað er að erlendir ferðamenn eyði að
meðaltali um tólf þúsund krónum, innlendir 22 þúsund krónum og
hver þjóðhátíðargestur fimmtíu þúsund krónum. Samtals er áætlað að
þjóðhátíðargestir eyði 500 milljónum króna í Eyjum. - gar
Ferðamenn eru drjúg búbót í Vestmannaeyjum:
Eyða 1,9 milljörðum í Eyjaferðum
VINSÆLL ÁFANGASTAÐUR Ferðamönnum til Eyja fjölgaði mjög með tilkomu
Landeyjahafnar. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON.
LÖGREGLUMÁL Karlmaður lést
í fyrrinótt þegar hann féll sex
metra fram af svölum í portinu á
bak við JL-húsið við Hringbraut í
Reykjavík.
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu rannsakaði málið í gær
og samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins leikur enginn grunur á
að nokkuð saknæmt hafi átt sér
stað.
Maðurinn var staddur í sam-
kvæmi á staðnum og nokkrir sem
þar voru með honum voru hand-
teknir og vistaðir í fangageymslu
fram eftir degi þangað til þeir
voru í ástandi til að tjá sig um
það sem gerst hafði.
- sh
Andlát ekki talið saknæmt:
Féll fram af
svölum og lést
REYKJAVÍK Borgarstjórn sam-
þykkti á fundi sínum í gær að
heimila Orkuveitu Reykjavíkur
að selja Orkuveituhúsið.
Straumur fjárfestingabanki
hefur gert tilboð í húsið upp á
5,1 milljarð króna en bakhjarlar
tilboðsins eru lífeyris- og verð-
bréfasjóðir. Orkuveitan hyggst
leigja húsið fyrir tæpar 224 millj-
ónir á ári næstu tíu ár, og 290
milljónir næstu tíu ár eftir það.
Þá mun Orkuveitan hafa kauprétt
að þessum tíma liðnum. - þeb
Borgarstjórn í gær:
Sala Orkuveitu-
húss samþykkt