Fréttablaðið - 13.02.2013, Page 4

Fréttablaðið - 13.02.2013, Page 4
13. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Fækkar í Afganistan 1BANDARÍKIN Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að 34 þús-und bandarískir hermenn fari heim frá Afganistan innan árs. Bandarískur embættismaður skýrði frá þessu í gær og sagði að Obama myndi tilkynna þetta í stefnuræðu sinni, sem hann flutti seint í gærkvöld. Nú eru 66 þúsund bandarískir hermenn í Afganistan en þeir voru hundrað þúsund árið 2010. Vill verða páfi 2 GANA Peter Turkson, kardínáli kaþólsku kirkjunnar frá Afríkuríkinu Gana, þykir eiga nokkra möguleika á að verða næsti páfi. Hann hefur fullan hug á embættinu og segir að „ungu kirkjurnar“ í Asíu og Afríku séu nú orðnar það öflugar að þær ráði vel við að fara með forystu kaþólsku kirkjunnar. Kominn sé tími til þess að leiðtogi kirkjunnar komi úr þriðja heiminum en þar býr helmingur allra kaþólskra íbúa jarðarinnar. Rússar banna reykingar 3 RÚSSLAND Neðri deild rússneska þjóðþingsins samþykkti í gær með 441 atkvæði gegn einu að banna reykingar á almannafæri. Til þess að frum- varpið verði að lögum þarf þó efri deild þingsins einnig að samþykkja það, og loks þarf Vladimír Pútín forseti að staðfesta lögin með undirskrift sinni. Reykingar eru algengari í Rússlandi en víðast hvar, en hundruð þúsunda látast þar árlega af völdum reykinga. 233,3117 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 128,04 128,66 199,53 200,51 171,56 172,52 22,988 23,122 23,231 23,367 20,012 20,130 1,3581 1,3661 195,59 196,75 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 12.02.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KOMIN Í KILJU Á ÍSLENSKU! Lestu þær allar! Veðurspá Föstudagur 3-8 m/s. SLYDDA EÐA RIGNING Veður batnar víðast er kemur fram á kvöld og á morgun verður yfirleitt fremur hæg norðlæg átt. Dálítil él eða slydduél norðan til en léttir til um sunnanvert landið. 0° 10 m/s 1° 11 m/s 2° 12 m/s 6° 15 m/s Á morgun 5-10 m/s. Gildistími korta er um hádegi -2° -2° 0° 1° -1° Alicante Basel Berlín 20° 0° 1° Billund Frankfurt Friedrichshafen 1° 0° -2° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 0° 0° 20° London Mallorca New York 3° 18° 4° Orlando Ósló París 28° -6° 1° San Francisco Stokkhólmur 16° 0° 3° 12 m/s 5° 13 m/s 2° 10 m/s 3° 10 m/s 0° 6 m/s -1° 7 m/s -2° 12 m/s 3° 2° 3° 2° 0° Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður STJÓRNMÁL „Við teljum að það hafi tekist að afstýra árásinni,“ segir Jón Bjartmarz, yfirlögreglu- þjónn hjá ríkislögreglustjóra, um árás á tölvukerfi Stjórnarráðsins sem var sögð yfirvofandi sumarið 2011. Jón var gestur á sameigin legum fundi allsherjar- og menntamála- nefndar og stjórnskipunar- og eftir litsnefndar Alþingis í gær þar sem farið var yfir komu full- trúa FBI hingað til lands sumarið 2011. Hann mætti til fundarins ásamt Haraldi Johannessen ríkis- lögreglustjóra og Sigríði Friðjóns- dóttur ríkissaksóknara. Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra kom einnig til fundarins til að gera grein fyrir málinu eins og það horfði við honum. Hann hefur verið í Kína og hafði boðað samantekt um málið, sem lögð var fram í ríkisstjórn og á fundinum í gær. Í samantekt Ögmundar segir að skilningur hans og starfs- manna innanríkisráðuneytisins á málinu hafi ekki verið sá að veitt hefði verið heimild fyrir komu FBI-fulltrúanna til Íslands, ólíkt því sem lesa hefði mátt út úr sambærilegri samantekt ríkislög- reglustjóra og ríkissaksóknara um málið. Þeir hafi þvert á móti boðað komu sína óvænt áður en nokkur heimild hafði verið veitt. Að öðru leyti lýsir hann atburðum sumarsins 2011 á sama veg og áður hefur verið gert opinberlega. Íslenskri lög- reglu hafi verið gert að hætta Telja sig hafa afstýrt árás tölvuþrjótanna Ríkislögreglustjóri telur að komið hafi verið í veg fyrir árás á tölvukerfi Stjórnar- ráðsins sumarið 2011. Hann mætti á fund þingnefnda í gær til að svara fyrir stóra FBI-málið, ásamt ríkissaksóknara, innanríkisráðherra og fulltrúa Wikileaks. Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks, segist hafa falið lögmanni sínum að krefja ríkislögreglustjóra og ríkissaksóknara svara um rannsókn þeirra á tölvuárásinni umtöluðu sem Wikileaks var bendlað við og FBI ætlaði að koma hingað til að rannsaka. Þetta sagði Kristinn eftir að hann kom út af fundi allsherjar- og menntamálanefndar og stjórnsýslu- og eftirlitsnefndar þingsins í gær. Þar var hann til að skýra málið frá sínum sjónarhóli. TIL KÖLLUÐ Kristinn Hrafnsson, Sigríður Friðjónsdóttir, Har- aldur Johannessen og Ögmundur Jónasson mættu öll á fund þing- nefndanna í gær. LÖGREGLUMÁL „Það er gott að vera réttur maður á réttum stað,“ segir Sławomir Królikowski, blað- beri Fréttablaðsins, sem bjargaði mæðginum út úr brennandi húsi við Brekku tanga í Mosfellsbæ eld- snemma í gærmorgun. Hann stökk til þegar hann sá reyk liðast út um glugga í kjallara hússins og barði það utan með miklum látum. „Hann bjargaði fólkinu í kjallar- anum hjá okkur – og kannski okkar lífi líka. Við vitum auðvitað ekkert hvernig hefði farið ef hann hefði ekki komið. Það er ómögulegt að giska í eyðurnar,“ segir Hjörtur Sigurpálsson sem býr á efri hæð hússins. Hann segir íbúðina niðri vera gjörónýta, enda hafi skíðlogað í henni. Þá sé enn verið að reykræsta hans eigin íbúð. Sławomir hélt í dagvinnu sína hjá Esju-einingum eftir að allt var um garð gengið. „Fyrst og fremst er ég ánægður með að allir komust út úr húsinu á lífi,“ segir hann. - sh, khn Mæðgin rétt sluppu lifandi út úr brennandi kjallaraíbúð í Mosfellsbæ í gærmorgun: Snarræði blaðbera bjargaði mannslífum HEPPIN Hjörtur og kona hans, Sólveig Sigurgeirsdóttir, kunna Sławomir bestu þakkir fyrir bjargræðið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA að aðstoða FBI-fulltrúana eftir að í ljós kom að þeir voru hér í þeim tilgangi að ræða við íslenskan pilt, fæddan 1992, um Wikileaks. Það hafi ekki rúmast innan réttar beiðninnar sem þeir fengu, sem laut að rannsókn á fyrrnefndri tölvuárás. Ögmundur sagði að loknum fundinum í gær að hann, ríkis- saksóknari og ríkislögreglustjóri töluðu einum rómi um málið. - sh, vg Krefst svara um rannsóknina HEIMURINN 1 2 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.