Fréttablaðið - 13.02.2013, Page 6
13. febrúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Þetta fór því eins
vel og hægt var að þessu
sinni.
Hlíf Steingrímsdóttir, yfirlæknir á blóð-
sjúkdómadeild.
UMHVERFISMÁL Landvernd hefur
sent Skipulagsstofnun athuga-
semdir við tillögu að mats áætlun
HS Orku vegna rannsóknar borana
í Eldvörpum. Sam tökin ítreka
fyrra álit sitt að ekki beri að hrófla
við Eldvörpum en benda jafnframt
á mikilvægi þess að rannsóknar-
boranir valdi sem minnstu raski
verði af þeim á annað borð.
Í álitinu leggja samtökin sér-
staka áherslu á að rökstyðja
þurfi betur fjölda borhola, ekki
síst í ljósi þess að ef til vill verði
ekki af nýtingu á svæðinu. Þá
telja samtökin að rökstyðja þurfi
betur það álit framkvæmdaraðila
að ekki sé líklegt að hægt verði
að nota borplan sem þegar er á
svæðinu, en Landvernd leggur
mikla áherslu á að fundnar verði
leiðir til þess. - shá
Landvernd vill endurskoðun:
Ítreka gagnrýni
vegna Eldvarpa
REYKJANES Eldvörp eru umdeild vegna
virkjunarhugmynda. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÖRYGGISMÁL
Fá 20 milljónir frá ríkinu
Ríkið og Landsbjörg hafa gengið frá
samningi sem gera á Landsbjörgu kleift
að auka kynningu á vefnum Safe Travel,
auk eflingar á vetrarferðaþjónustu
björgunarsveitanna. Ríkið leggur fram
tíu milljónir á móti vinnuframlagi
Landsbjargar næstu tvö árin.
DÓMSMÁL Krafa um ógildingu á
sölu útgerðarfyrirtækisins Bergs-
Hugins ehf. til Síldar vinnslunnar
hf. í Neskaupstað var rædd á
bæjar ráðsfundi í Vestmanna-
eyjum í gær. Bærinn hefur stefnt
bæði kaupanda og seljanda útgerð-
arinnar fyrir dóm. Bæjarráð segir
málið mikilvægt fyrir Eyjamenn.
„Hér er um að ræða tíu prósent
hagkerfis Vestmannaeyja og afar
brýnt að allra leiða sé leitað í vörn
fyrir samfélagið,“ segir bæjar ráð
sem telur sig hafa forkaupsrétt og
að vafi leiki á því að hlutur Sam-
herja/Síldarvinnslunnar í afla-
heimildum megi verða svo stór. - gar
Stefna kynnt í bæjarráði:
Rift verði sölu á
Bergi-Hugin
HEILBRIGÐISMÁL Blóðlækningadeild
Landspítalans (LSH) var opnuð
aftur á sunnudag, en deildinni
var lokað á miðvikudag vegna
bakteríusýkingar sem greindist í
sjúklingi. Stofn bakteríunnar er
ónæmur fyrir sýkla lyfjum. Hann
er landlægur á spítölum erlendis
en sjaldgæfur hér á landi.
„Það voru ekki fleiri sem
greindust með þessa bakteríu og
hún ræktaðist hvergi í um hverfinu.
Það var því hægt að opna deildina
aftur á sunnudeginum. Þetta fór
því eins vel og hægt var að þessu
sinni,“ segir Hlíf Steingrímsdóttir,
yfirlæknir á blóðsjúkdómadeild.
Hlíf hefur bent á sýkingu sem
þessa í samhengi við húsnæðis-
mál spítalans. „Þetta snýst um
öryggi sjúklinga, sérstaklega í
ljósi svona sýkingarvarna,“ sagði
Hlíf í viðtali við Fréttablaðið á
miðvikudag. Björn Zoëga, for-
stjóri LSH, ræðir húsnæðismál
í ljósi undangenginna sýkinga-
faraldra á heimasíðu spítalans.
Hann segir ástandið endurspegla
„það langvinna baráttu mál okkar
að endurnýja húsnæðið. Það bók-
staflega verður að endurnýja hús-
næðið og við verðum að leggja í
þá vegferð saman, berjast fyrir
því að aðstaðan á spítalanum verði
mannsæmandi fyrir sjúklinga og
ekki síður starfsfólk“. - shá
VEISTU SVARIÐ?
1. Hvaða stóra útgerðarfélag tilkynnti
í gær um fækkun sjómanna á skipum
sínum?
2. Hvað rak Benedikt XVI. páfa til að
segja af sér embætti?
3. Fyrir hvað stendur skammstöfunin
ELO?
SVÖR
1. HB Grandi 2. Hann sagði af sér af heilsu-
farsástæðum sökum aldurs. 3. Electric Light
Orchestra.
E R T U Á L E I Ð T I L Ú T L A N D A ?
Sjónmælingar (tímapantanir): Optical Studio Smáralind, s. 528 8500 og Optical Studio Keflavík, s. 4213811
OPTICAL STUDIO
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ
Verslaðu á hagstæðara verði
í okkar fullbúnu gleraugnaverslun
á fríhafnarsvæðinu í Leifsstöð
ALLT AÐ 50% ÓDÝRARI
EN SAMBÆRILEG VARA Á MEGINLANDI EVRÓPU
Umgjörð: Lindberg Spirit Umgjörð: Chrome Hearts
Bakteríusýking á blóðlækningadeild LSH var bundin við einn sjúkling:
Gátu opnað deild á fjórða degi
EFNAHAGSMÁL Verulega hallar
á Íslendinga þegar lífsgæði hér
á landi eru borin saman við það
sem gengur og gerist á Norður-
löndunum. Þetta kemur fram í
skýrslu sem ASÍ kynnti í gær, þar
sem lífskjör hér á landi eru borin
saman við lífskjör í Noregi, Sví-
þjóð og Danmörku.
Skýrslan tekur til ýmissa atriða
þar sem meðal annars kemur
fram að á tímabilinu 2006 til 2012
hafi dregið úr landsframleiðslu.
Staðan er sérstaklega slök þegar
litið er til þess að vinnu vikan
hér á landi er talsvert lengri en
tíðkast í hinum löndunum, þó
svo hún hafi styst frá 2006, og
þannig ljóst að Íslendingar þurfa
að vinna meira til að halda uppi
þeim lífsgæðum sem þó eru hér.
Samdráttur í einkaneyslu hér
á landi mælist rúm fjórtán pró-
sent á tímabilinu 2006 til 2011.
Til samanburðar stóð einka-
neysla nokkurn veginn í stað
í Danmörku en hún jókst um
fjórtán prósent í Noregi og rúm
níu prósent í Svíþjóð.
Útgjaldamynstur íslenskra
heimila breyttist líka mikið hér
á landi þar sem þau hafa dregið
mikið úr munaði til að eiga fyrir
nauðsynlegum útgjöldum, auk
þess sem kostnaður vegna opin-
berra gjalda, húsnæðis og bíla
hefur aukist stórum.
Segir í skýrslunni að skellurinn
í einkaneyslu hefði eflaust orðið
mikið stærri ef ekki hefði notið
við úrræða í líkingu við sértækar
vaxtaniðurgreiðslur og úttekt
séreignarsparnaðar.
Þá komi neikvæð áhrif einnig
fram í niðurskurði til heilbrigðis-
og menntamála, sem geti reynst
skaðlegur til lengri tíma litið.
Stærsta ógnin við lífskjör
Íslendinga, sé horft til lengri
tíma, er hins vegar skuldir
hins opinbera. Þær hafi áhrif á
almannatryggingakerfið og skatt-
kerfið, en skattar geti til lengri
tíma litið reynst letjandi, dregið
úr atvinnuþátttöku og „skapað
aðstæður fyrir fátæktargildrur“.
Þrátt fyrir allt ofantalið er
því þó ekki neitað að lífsgæði
eru enn góð á Íslandi í saman-
burði við flest önnur ríki, til að
mynda hvað varðar atvinnu-
þátttöku. Staðreyndin sé þó sú
að Íslendingar miða sig að mestu
við Norður löndin „og í því sam-
hengi er ljóst að verulega hallar
á Ísland“.
Róbert Farestveit, hagfræð-
ingur hjá ASÍ, segir í samtali
við Fréttablaðið að lykillinn að
því að snúa þessari þróun við og
auka kaupmátt almennings liggi í
aukinni fjárfestingu.
„Það að auka kaupmátt tekur
sinn tíma, en á meðan fjárfest-
ing fer ekki af stað og verðbólga
er enn við lýði mun það ganga
hægt.“ thorgils@frettabladid.is
Lífsgæðin lakari hér
en á Norðurlöndum
Ný skýrsla frá ASÍ sýnir að lífsgæði á Íslandi hafa dalað í samanburði við hin
Norðurlöndin. Vinnum meira en hinir og höfum dregið úr einkaneyslu. Niður-
skurður til lykilmálaflokka gæti einnig haft neikvæð áhrif til lengri tíma litið.
Einkaneysla og innflutningur drógust verulega saman á Íslandi á árunum 2006-2011
Danmörk Ísland Noregur Svíþjóð
Einkaneysla -0,27% -14,03% 14,03% 9,40%
Innflutningur 3,68% -32,45% 13,77% 15,87%
Heimild: ASÍ
Minni neysla – minna flutt inn
2.000
1.600
1.200
800
400
0
50
40
30
20
10
0
60
40
20
0%
-20
-40
-60
-80
N
ey
slu
út
gj
öl
d
al
ls
M
at
ur
Fö
t
G
re
id
d
hú
sa
le
ig
a
An
na
ð
ve
gn
a
hú
sn
æ
ði
s
H
ús
gö
gn
o
g
he
im
ili
sb
ún
að
ur
Ka
up
ö
ku
tæ
kj
a
Re
ks
tu
r ö
ku
tæ
kj
a
Tó
m
st
un
di
r o
.fl
.
➜ Útgjöld heimilanna➜ Afköst
2006-2011 eft ir
neyslufl okkum
■ Meðalfj öldi vinnustunda á
ári hjá starfandi (vinstri ás)
■ VLF á mann fyrir hverja
unna vinnustund (hægri ás)
O
EC
D
FRAKKLAND, AP Neðri deild franska
þingsins samþykkti í gær með 329
atkvæðum gegn 229 að heimila
samkynhneigðum pörum að ganga
í hjónaband. Jafnframt verður sam-
kynhneigðum hjónum leyft að ætt-
leiða börn.
Frumvarpið fer nú fyrir efri
deild þingsins. Harðar deilur hafa
verið um frumvarpið í Frakk-
landi og fjölmennar mótmæla-
göngur verið haldnar. Þrátt fyrir
það styður yfirgnæfandi meiri-
hluti Frakka hjónabönd samkyn-
hneigðra, en stuðningurinn við að
samkynhneigðir ættleiði börn er
eitthvað minni. - gb
Neðri deild franska þingsins:
Samkynhneigð
pör fá að giftast
CHRISTIANE TAUBISTAN Dómsmála-
ráðherra Frakklands hefur barist fyrir
frumvarpinu. NORDICPHOTOS/AFP
FASTEIGNAMARKAÐUR Nokkuð
fleiri húsaleigusamningum var
þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í
síðasta mánuði en í janúar í fyrra.
Þetta kemur fram í tölum frá Þjóð-
skrá Íslands um leigumarkaðinn.
Þar segir að 634 samning-
um hafi verið þinglýst í síðasta
mánuði en fjöldinn í janúar 2012
var 538, sem jafngildir tæplega
átján prósenta aukningu. Samn-
ingum fjölgaði einnig á Suður-
nesjum, en fækkun var á Suður-,
Vestur- og Norðurlandi. - þj
Fleiri leigusamningar:
Fjölgun á húsa-
leigumarkaði